Skessuhorn - 07.05.2014, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 19. tbl. 17. árg. 7. maí 2014 - kr. 600 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/sparnaður
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
25%
afsláttur
Omeprazol ratiopharm
Eurovision
party
með Ingó og
Veðurguðunum
Laugardaginn
10. maí
Kirkjubraut 11
Akranesi
Sími 431-4343
Gengið hefur verið frá kaup-
um Borgarverks ehf. í Borgarnesi
á jarðvinnu- og klæðningarstarf-
semi Ræktunarsambands Flóa og
Skeiða. Undanskilin í kaupunum er
borstarfsemi Ræktunarsambands-
ins sem Viðskiptahúsið ehf. kaupir.
Seljendur fyrirtækisins eru erfingj-
ar Ólafs B Snorrasonar og búnað-
arfélög á Suðurlandi, en um rótgró-
ið fyrirtæki er að ræða sem upphaf-
lega var stofnað sem samvinnufélag
í ársbyrjun 1946. Að sögn Óskars
Sigvaldasonar framkvæmdastjóra
felst mikið hagræði í kaupunum
fyrir Borgarverk. „Nú færast þrett-
án menn til okkar sem áður unnu
hjá Ræktunarsambandinu. Þetta er
m.a. fullbúinn klæðningarflokkur,
fjórar gröfur og verkefni sem búið
var að semja um. Við munum reka
deild á Selfossi í nafni Borgarverks
og hafa þar aðstöðu,“ segir Óskar.
Starfsmenn Borgarverks í Borg-
arnesi eru nú 30 og bætast 13 við
á Selfossi. Óskar segir að miðað
við mjög góða verkefnastöðu verði
fyrirtækið með a.m.k. 50 í vinnu í
sumar þegar mest verður. Viðræð-
ur um kaupin hafa staðið yfir frá
því í febrúar. Kaupverð er ekki gef-
ið upp. mm
Á föstudaginn var búið að sækja um
leyfi fyrir liðlega 350 báta til Fiski-
stofu vegna strandveiðanna sem
hófust á mánudaginn. Umsóknir
á svæði A voru þá 169 en þar gera
flestir út frá Snæfellsnesi enda ein
fengsælustu mið landsins skammt
frá. Á svæði B var búið að sækja
um leyfi fyrir 65 báta, á svæði C
45 og á svæði D voru umsóknir 74.
D svæðið nær frá Höfn, vestur um
að Haffjarðará. Við upphaf strand-
veiðanna í fyrravor voru mun fleiri
búnir að sækja um leyfi en nú, eða
462 og hófu 407 þeirra veiðar fyrsta
leyfilega veiðidaginn. Minni ásókn
í strandveiðileyfi nú gæti helg-
ast af því að sumir hyggjast frek-
ar gera út á makrílinn í sumar. Þá
gengu strandveiðarnar fremur illa
í fyrrasumar og kann það að hafa
fælt menn frá veiðunum. Veiðarnar
nú fyrsta daginn gengu ágætlega og
víða fengu menn upp í skammtinn.
Einstaka vélarbilun gerði þó vart
við sig og þá kviknaði eldur í ein-
um báti eins og lesa má um á bls.
9. Meðfylgjandi mynd tók Tómas
Freyr Kristjánsson á bryggjunni í
Grundarfirði á mánudaginn.
Svo virðist sem ís-
lenska lágfótan sé sífellt
að færa sig nær byggð
og verða mannvanari.
Hér áður fyrr heyrði
það til undantekninga
ef tófur hættu sér nærri
mannabústöðum enda
þurftu þær þess ekki. Þá
voru þær færri og höfðu
nægt æti til fjalla án
þess að hætta sér nálægt
byggð. Þessa tófu skaut
Magnús Magnússon
refaskytta á Hamraend-
um í Borgarfirði síðast-
liðið sunnudagskvöld.
Vegfarendur um hring-
veginn sáu tófuna þar
sem hún vappaði um í
varpi mófugla skammt
frá þjóðveginum í Stafholts-
tungum. Stöðvuðu ferðalangar för
og hringdu í refaskyttuna sem býr
í sömu sveit. Allan tímann beið tóf-
an en fylgdist grannt með fólkinu
og þéttri umferð um þjóðveginn.
Skyttur fá einungis eitt tækifæri
þegar skjóta þarf bráðina með riffli.
Magnús nýtti það og hitti tófuna
þótt af 150 metra færi væri, enda
vanur maður, hefur verið grenja-
skytta í á fimmta áratug. Meintum
sparnaði stjórnvalda og friðunar-
stefnu á ref má kenna um offjölg-
un tófu, eins og fjallað er um nánar
bls. 4. mm/ Ljósm. gó.
Ert þú
áskrifandi?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Færri til
strandveiða
Tófan orðin hagvön í byggð
Borgarverk fjárfestir
í ræktunarsambandir á Suðurlandi