Skessuhorn - 04.06.2014, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
TRÉSMIÐJAN AKUR EHF.
Trésmiðjan Akur ehf. • Smiðjuvöllum 9
300 Akranesi
Sími 430 6600 • akur@akur.is • www.akur.is
ÖLL ALMENN TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Endurbætur og nýsmíði
Þök – Klæðningar – Gluggar – Útihurðir – Sólpallar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
435-1252 • 893-0688 • velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
Nýverið var opnuð málverkasýning í
Átthagastofunni í Ólafsvík á verkum
Hreins Jónassonar. Sýningin er í boði
Sjómannadagsráðs Ólafsvíkur, lista-
og menningarnefndar Snæfellsbæjar
og Átthagastofu. Hreinn er fæddur í
Ólafsvík 1951 og hefur lengi lagt stund
á myndlist. Á þessari fyrstu sýningu
hans í Ólafsvík sýnir hann 33 myndir
og ber hún nafnið Fjöllin okkar.
Hér er Hreinn Jónasson fyrir framan
tvær af myndum sínum.
af
Fyrsta sýning sumarsins í Leir 7 í
Stykkishólmi var opnuð sl. laug-
ardag. Sýningarnar í sumar verða
þrjár talsins og standa frá júní og
fram í september. Allar fjalla þær
um keramik, nýtt og gamalt, fínt
og gróft, dökkt og ljóst, heitt og
kalt. Á þessari fyrstu sýningu mun
Anna Eyjólfsdóttir myndlistarmað-
ur sýna verk úr safni sínu. Anna er
menntuð frá Myndlistaskólanum
í Reykjavík, Myndlista-og hand-
íðaskóla Íslands og listaháskólan-
um í Dusseldorf. Hún hefur hald-
ið einkasýningar hér heima og er-
lendis og tekið þátt í ýmsum sam-
sýningum. Auk þess að stunda eigin
myndlist hefur Anna mikinn áhuga
á söfnun íslenskra leirmuna og er
þessi sýning úr hluta safns sem
hún á. Hún vonast til þess að dag
einn verði sett á stofn leirmuna- og
smáskúlptúrasafn, ætlað íslenskum
munum úr keramiki eða skildum
efnum. Anna hefur áður sýnt hluta
úr safni sínu. Hér setur hún fram
nytjahluti og skoðar þá í nýju sam-
hengi.
Önnur sýningin hefst dagana
12. -13. júlí og verður þá „raku-
brennsla“ framkvæmd fyrir utan
Leir 7. Þessi brennsla er skemmti-
legt sjónarspil, japönsk að uppruna.
Aðferðin gefur keramikinu sér-
stakan blæ með björtum og sindr-
andi glerungum. Sjö leirlistarmenn
munu brenna verk sín þessa helgi
og setja þau svo upp til sýningar
sem stendur fram í miðjan ágúst.
Þriðja og síðasta sýningin hefst
um miðjan ágúst og stendur fram í
miðjan september. Þar verða sýnd-
ir hlutir þar sem keramik sem unn-
ið með hefðbundnum aðferðum
aldanna (rennslu og brennslu). Því
verður svo teflt fram með keramiki
nýrri aðferða, svo sem steypu og
nýjum glerungum. Frekari fréttir
af því verða er nær dregur.
- Fréttatilkynning
Myndlistarkonan Áslaug Bene-
diktsdóttir mun halda málverkasýn-
inguna Litaljóð í vitanum á Akra-
nesi nú í júní. Áslaug er meðlim-
ur í myndlistarfélaginu Litku, sem
er félagsskapur myndlistarmanna
af öllu landinu og hét áður Frí-
stundamálarafélagið. Litka er með
samsýningu í Hörpunni um þessar
mundir og á Áslaug eitt verk þar.
Hún er einnig meðlimur í Mynd-
listarfélagi Kópavogs og er þar einn
af fjölmörgum listamönnum sem
hefur vinnustofu í Norm-X húsinu
við Auðbrekku 6 þar í bæ. Sýning-
in Litaljóð í vitanum verður opnuð
laugardaginn 7. júní kl. 13 til 16.
Allir eru velkomnir á opnunina og
verður boðið upp á léttar veiting-
ar. Sýningin mun standa yfir út all-
an júnímánuð. grþ
Gradualekór Langholtskirkju fer
í tónleikaferð um Vesturland og
Vestfirði dagana 6. - 9. júní
næstkomandi. Kórinn verð-
ur með tónleika í Borgar-
neskirkju föstudaginn 6. júní
kl. 20, í Hólmavíkurkirkju
7. júní kl. 17 og í Ísafjarðar-
kirkju þann 8. júní kl. 20. Á
efnisskránni verða íslensk og
erlend lög ásamt stærri verk-
um, meðal annars úr frönsku
myndinni Drengjakórinn
eftir Gabriel Fauré og þættir
úr messu eftir slóvenska tón-
skáldið Ambrož Copi. Stjórnandi
og undirleikari kórsins er Jón Stef-
ánsson. Aðgangurinn á tónleikana
er ókeypis.
Gradualekór Langholtskirkju tók
til starfa 1991. Kórfélagar eru á aldr-
inum 14 – 18 ára og eru gerðar mikl-
ar kröfur til þeirra sem fá inngöngu
í kórinn. Margir kórfélagar eru
langt komnir í tónlistarnámi.
Verkefnaval kórsins spannar
verk frá barokktónlist til erfið-
ustu nútímaverka. Kórinn hefur
gefið út fimm geislaplötur ásamt
því að hafa sungið með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á geisla-
plötu. Þá hefur hann margsinn-
is komið fram með Sinfóníu-
hljómsveitinni, síðastliðið haust
í Maxímús Músíkús, Skilaboða-
skjóðunni og Jólatónleikum
hljómsveitarinnar ásamt öllum kór-
um kórskólans. -fréttatilkynning
Sumarsýningar í Leir 7
í Stykkishólmi
Fjöllin okkar nefnist málverkasýning
í Átthagastofunni
Áslaug Benediktsdóttir
myndlistarkona.
Sýningin Litaljóð í vitanum
Tónleikaferð Gradualekórs
Langholtskirkju í Borgarnesi