Skessuhorn - 11.06.2014, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 24. tbl. 17. árg. 11. júní 2014 - kr. 600 í lausasölu
„Við mælum með því að þú
setjir ekki meira en ��� af
ráðstöfunartekjum í húsnæði,
aðallega vegna þess að það
er dýrt að lifa.“
Jóhanna Hauksdóttir
fjármálaráðgjafi
ARION
ÍBÚÐALAUSNIR
Allt um íbúðalán á arionbanki.is
Ert þú
áskrifandi?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
25%
afsláttur
Omeprazol ratiopharm
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 852 1601
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
OPIÐ
12.00 – 22.00
Fálkaskátar í Erninum í Grundarfirði eru á aldrinum 10-12 ára. Þeir byggðu forláta fleka á dögunum undir leiðsögn séra Aðal-
steins Þorvaldssonar. Hann áætlar að um tólf vinnustundir hafi farið í smíðina. Síðasta föstudag í rjómablíðunni var flekinn
loks sjósettur á lóninu við Kirkjufell. Svo var siglt um lónið og leikið sér. Ljósm. tfk
Í Straumfirði á Mýrum hafa síðustu
ár verið nokkrar aliendur. Refur-
inn hefur hins vegar verið aðgangs-
harður og drepið hluta af hópn-
um. Í vor var aðeins eitt par eftir
og gerði andamamma sér aðstöðu
til hreiðurgerðar í gömlu heyi í af-
lögðu haughúsi á bænum. Þar hef-
ur hún látið lítið fara fyrir sér enda
búin að sjá að aldrei er of varlega
farið sé maður önd á Mýrunum.
Sigrún og Magnús Guðbjarnarbörn
og fjölskyldur eiga og nytja jörðina
og dvelja þar mikið á þessum árs-
tíma. Svanur Steinarsson kveðst
hafa fylgst með andamömmu í
vor. Hafi hún byrjað varp snemma
í apríl en ekki farið að liggja á að
staðaldri fyrr en um miðjan maí.
Hreiður hennar var niðurgrafið í
hey og því beið fólk spennt eftir því
hvernig andamömmu gengi útung-
unin. Karl hennar skipti sér hins
vegar ekkert af því þegar ungarnir
voru að koma úr hreiðrinu og var
bara úti að „chilla“ í staðinn. Rak
hann því, líkt og fólkið á bænum,
upp stór augu þegar andamamma
vagaði stolt út í sumarið með hvorki
fleiri né færri en átján unga í hala-
rófu á eftir sér. Dreif hún sig nið-
ur á tjörn og byrjaði þar að fóðra
unga sína stolt. Andamömmu hefur
í ljósi niðurskurðar í stofni alianda í
Straumfirði runnið blóðið til skyld-
unnar og ákveðið að stækka stofn-
inn sem mest hún mátti. Þess má
geta að venjulega kom endur upp
6-10 ungum og er þessi því sann-
kölluð súperönd.
mm
Tíu börn fæddust á fæðingadeild
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á
Akranesi fyrstu fimm daga mánaðar-
ins. Síðustu fimm dagana í maí fædd-
ust átta börn. Þetta eru því 18 barns-
fæðingar á tíu dögum, sem er töluvert
yfir meðaltali. Anna Björnsdóttir ljós-
móðir og deildarstjóri á fæðingadeild-
inni segir líf og fjör hafa verið undan-
farna daga enda séu þetta óvenjulega
margar fæðingar á deildinni. Þrátt
fyrir aukið álag hafi nóg pláss ver-
ið fyrir nýbakaðar mæður. Ekki voru
allar mæðurnar sem fæddu á Akra-
nesi frá Vesturlandi, heldur var helm-
ingur þeirra af höfuðborgarsvæðinu.
Þess má geta að í fréttum í síðustu
viku var einnig sagt frá mikilli aukn-
ingu í barnsfæðingum á fæðingadeild
Landspítalans, en 40 börn fæddust
þar fyrstu þrjá daga mánaðarins sem
einnig er töluvert mikið yfir meðaltali
þar. Því má segja að frjósemisbylgja
hafi farið yfir landið í septembermán-
uði í fyrra. grþ
Vegfarendur með
lögheimili á höf-
uðborgarsvæð-
inu greiða liðlega
23% af áskrift-
artekjum Spal-
ar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng.
Sambærilegur hlutur áskrifenda af
öllu Vesturlandi er 19,5% og þar af er
hlutur áskrifenda á Akranesi 12,6%.
Af þessu sést að miðað við höfða-
tölu eru íbúar á Vesturlandi að greiða
hlutfallslega langmest í rekstri gang-
anna. Þeir eru um 4,7% íbúa landsins
en greiða eins og fyrr segir 19,5% af
rekstri ganganna.
Niðurstaða nýrrar greiningar á
gögnum úr upplýsingakerfi Hval-
fjarðarganga varðandi tekjur Spalar á
árinu 2013 leiða fyrrgreindar upplýs-
ingar í ljós. Í frétt á heimasíðu fyrir-
tækisins segir að þegar á heildina sé
litið er skipting tekna af umferðinni
sem hér segir: Áskrifendur með veg-
lykla greiða 48,53%, áskrifendur með
afsláttarkort 16,32% og vegfarend-
ur sem staðgreiða í gjaldskýli greiða
35,15%. Hér vekur athygli að hlutur
staðgreiðslunnar hefur aukist umtals-
vert og er skýringin á því sögð fjölgun
erlendra ferðamanna á þjóðvegum á
sumrin. Fyrir fáeinum árum var hlut-
ur staðgreiðslu í heildartekjum um
30%. Stærstu kaupendur afsláttar-
korta eru stéttarfélög sem síðan selja
kortin til félagsmanna sinna. þá
Hér er hin stolta andamamma og sautján af átján ungum sjáanlegir.
Ljósm. Elfa Hauksdóttir.
Kom upp átján andarungum
Vestlendingar
greiða fimmtung
Óvenju margar
barnsfæðingar