Skessuhorn


Skessuhorn - 11.06.2014, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 11.06.2014, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2014 Sláturfélag Suðurlands svf. • Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík • Sími 575 6000 • www.ss.is Rúlluplastið sem bændur treysta Magn Litur Verð* á bretti Teno Spin – 750 x 0,025 x 1500 Hvítt 11.800 15 rúllur Westfalia Net – 123cm x 3000m 25.530 Randofil Garn – 3500 m pr. rúllu 3.500 Verð á rúlluplasti Ef gengið er frá pöntun fyrir 1.maí er frír flutningur til bænda. *Verð án vsk. – kr/rúllu „Við byrjuðum veiðarnar á svoköll- uðu innra svæði hér í Breiðafirði þegar mátti hefja þær þar þann 20. maí síðastliðinn. Við höfum lagt netin hér út við mynni Grundar- fjarðar. Aflabrögðin hafa verið í góðu meðallagi hjá okkur og held- ur betri en í fyrra,“ sagði Krist- inn Ólafsson skipstjóri og útgerð- armaður á grásleppubátnum Birtu SH 203 þar sem hann var við lönd- un í Grundarfjarðarhöfn á föstu- daginn. Kristinn hafði róið ásamt Heið- dísi Lind dóttur sinni og Skarphéðni bróður sínum. Þau voru kampakát í sólskininu og veðurblíðunni. „Gall- inn er bara að verðið fyrir gráslepp- una og hrognin er svo lágt í ár. Við erum mest að þessu fyrir áhugann. Fyrir þremur árum fengum við 180 þúsund kall fyrir tunnuna af hrogn- um. Núna erum við að fá 60 til 70 þúsund krónur fyrir hverja tunnu. Í fyrra voru greiddar 200 krónur fyr- ir kílóið af heilli og óskorinni grá- sleppu. Núna fáum við 160 krón- ur fyrir kílóið. Við seljum alla grá- sleppuna okkar heila. Hún fer til Fiskkaupa í Reykjavík,“ sagði Krist- inn. mþh Heldur betri hrognkelsaveiði í Grundarfirði en í fyrra Heiðdís Lind Kristinsdóttir, faðir hennar Kristinn Ólafsson og Skarphéðinn bróðir hans nýkomin úr hrognkelsaróðri á föstudaginn. Birta SH frá Grundarfirði. Skarphéðinn Ólafsson með væna rauð- sprettu sem fékkst sem meðafli á grá- sleppuveiðunum uppi við harða land. Andri Þórðarson hjá Fiskmarkaðinum í Grundarfirði höndlar hrognkelsin.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.