Skessuhorn - 11.06.2014, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2014
Það tók sveitarstjórnarfulltrúa
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks í Borgarbyggð einung-
is þrjá daga að mynda meirihluta í
sveitarfélaginu eftir að niðurstöð-
ur kosninganna lágu fyrir aðfarar-
nótt sunnudags. Skrifað var und-
ir samkomulag í Ráðhúsinu í há-
deginu sl. miðvikudag þess efnis
að flokkarnir taki höndum saman
næsta kjörtímabil. Flokkarnir eiga
sex af níu fulltrúum í sveitarstjórn,
Samfylking tvo og Vinstri grænir
einn. Við sama tilefni var tilkynnt
að búið væri að ráða Kolfinnu Jó-
hannesdóttur í Norðtungu, skóla-
meistara Menntaskóla Borgarfjarð-
ar, í svarf sveitarstjóra. Mun hún
taka við embættinu 1. ágúst næst-
komandi. Fyrri tvö ár kjörtímabils-
ins verður Björn Bjarki Þorsteins-
son oddviti sjálfstæðismanna forseti
sveitarstjórnar en Guðveig Anna
Eyglóardóttir oddviti framsóknar-
manna verður formaður bæjarráðs.
Eftir tvö ár víxla þau síðan embætt-
um. Tilkynnt verður á fundi sveit-
arstjórnar 12. júní um skipan fólks í
nefndir og ráð en búið er að ákveða
að formennska í velferðarnefnd og
umhverfis,- skipulags- og landbún-
aðarnefnd falli í hlut D lista en for-
mennska í fræðslunefnd falli í hlut
B lista. Í stjórnir OR og Faxaflóa-
hafna fara fulltrúar frá D lista.
Mikil áskorun
Kolfinna Jóhannesdóttir sat í tvö
kjörtímabil, frá árinu 1998 til 2006,
í sveitarstjórn Borgarbyggðar fyrir
hönd Framsóknarflokks og er því
hnútum kunnug í stjórnsýslunni og
í Ráðhúsinu. Hún er með BS próf
í viðskiptafræði og MA próf í hag-
nýtum hagvísindum með áherslu á
svæðafræði frá Háskólanum á Bif-
Bændur í Belgsholti í Melasveit
eru að vonast til að tæknileg-
ir örðuleikar við rekstur vindraf-
stöðvar á bænum fari að heyra
sögunni til, en spaðar hafa brotn-
að af vindmyllunni í tvígang frá
því hún var ræst um mitt sumar
2011. Þá snemma vetrar brotnaði
spaði af og mótorinn féll til jarðar
en orsök þess var rakin til bilun-
ar í stýribúnaði. Eftir endurbætur
á vindmyllunni var vindrafstöð-
in ræst að nýju fyrir ári. Spaðarn-
ir liðuðust aftur sundur 2. janú-
ar í vetur, en fyrir viku var kom-
ið fyrir nýjum spöðum með meiri
styrktareiginleikum en voru í fyrri
spöðum myllunnar.
Þegar blaðamaður Skessuhorns
var á ferð í Belgsholti sl. föstudag
í blankalogni og sólskini talaði
Haraldur Magnússon bóndi um
„óveður“ til raforkuframleiðslu,
en þá hreyfðust spaða vindmill-
unar ekki og því lítil raforka fram-
leidd þann daginn. Haraldur seg-
ir að þessa dagana sé unnið að
því að fínstilla tölvustýrðan bún-
að fyrir vindrafstöðina. Spaðarn-
ir eru smíðaðir úr trefjaplasti og
nýju spaðarnir hafa það framyf-
ir spaðana sem brotnuðu í byrjun
ársins að þeir eru með langtrefjar
og hafa því mun meiri styrk gagn-
vart vindálagi en þeir sem fyrir
voru, sem höfðu bara þvertrefjar.
Það sem gerst hafi með spaðana
sem brotnuðu í byrjun ársins seg-
ir Haraldur að álag hafi myndast á
stuttan kafla í spöðunum sem varð
til þess að smám saman myndaðist
í þeim brot. Vindmyllan í Belgs-
holti er fyrsta heimilisvindrafstöð
á landinu sem tengd er við dreifi-
kerfi Rariks.
þá
Spaðar vindmyllunnar í Belgsholti í hvíldarstöðu í blíðunni fyrir helgina.
Nýir spaðar komnir í
vindmylluna í Belgsholti
Meirihluti myndaður í Borgarbyggð og
Kolfinna Jóhannesdóttir ráðin sveitarstjóri
röst. Auk þess hefur hún m.a. dip-
loma í stjórnun. Varðandi ráðningu
Kolfinnu kom fram hjá oddvitum
beggja flokkanna að nafn henn-
ar hafi komið í umræðuna strax á
sunnudaginn og í framhaldi af við-
ræðum við hana hafi verið afráðið
að ráða hana í starfið. Um leið hafi
verið horfið frá því að auglýsa starf
sveitarstjóra eins og reyndar báð-
ir flokkar höfðu boðað í kosninga-
baráttunni að gert yrði, kæmust
þeir til valda. „Kolfinna er kröftug-
ur og afar samviskusamur einstak-
lingur sem við þekkjum einungis
af hinu góða. Hún gengur vasklega
til verka og það eru einmitt þeir
kostir sem prýða þurfa þann sveit-
arstjóra sem nú tekur við,“ sagði
Björn Bjarki Þorsteinsson við þetta
tilefni. Kolfinna kvaðst þakklát því
mikla trausti sem henni væri sýnt
og sagði forréttindi að fá að takast á
við áskorun sem þessa. Hún leyndi
því þó ekki að hún komi til að sakna
starfsins í Menntaskóla Borgar-
fjarðar. „Ég er mjög spennt fyrir
starfi sveitarstjóra og hlakka til að
takast á við það,“ sagði Kolfinna.
Málefnasamningur
Í málefnasamningi flokkanna segir
um stjórnsýsluna að hún verði end-
urmetin og styrkt. Upplýsingagjöf
til íbúa verði bætt t.a.m með sam-
skiptasíðu, kynningarfundum og
föstum viðtalstímum sveitarstjórn-
arfulltrúa. Eftirlit skal eflt með fjár-
hagsáætlun og framvindu á fram-
kvæmdakostnaði og unnið verði
markvisst að lækkun skulda sveit-
arsjóðs.
Í atvinnu,- kynningar- og menn-
ingarmálum verður staðið vörð um
opinber störf í héraðinu og leitað
leiða til að auka fjölbreytni þeirra.
Gert verður samkomulag við
Íbúða lánasjóð varðandi uppsetn-
ingu minni leiguíbúða og gert átak
til að koma húsnæði í eigu sjóðs-
ins í notkun. Þrýst verði á ríkisvald-
ið um úrbætur er varðar vegamál,
nettengingar og þriggja fasa raf-
magn. Farið verður í markaðs- og
kynningarátak til eflingar sveitar-
félagsins, m.a. með það að mark-
miði að laða að nýja íbúa, fyrir-
tæki, ferðamenn og viðburði ýmis-
konar. Menningarssjóður Borgar-
byggðar fær aukið fjármagn og til-
nefna skal listamann Borgarbyggð-
ar á hverju ári.
Í umhverfis- og skipulagsmál-
um verður unnið skipulag varð-
andi „nýja“ miðbæinn í Borgar-
nesi. Skipulag varðandi legu þjóð-
vegarins um Borgarnes verði end-
urmetið og umferðaröryggi á þjóð-
vegum í gegnum þéttbýliskjarna í
Borgarbyggð verði bætt í samstarfi
við vegamálayfirvöld. Áfram verði
þrýst á lagfæringu á Uxahryggja-
vegi og öðrum malarvegum í Borg-
arbyggð. Þá á að bjóða Vegagerð-
inni að Borgarbyggð verði „til-
raunasamfélag“ varðandi endur-
bætur á vegakerfinu. Loks á að efla
umhverfisvitund og þátttöku allra í
samfélaginu varðandi hreinsun og
fegrun.
Í fjölskyldu- og velferðarmálum
verður leitast við að stilla leikskóla-
gjöldum í hóf, sumarlokun verði
tvær vikur frá og með árinu 2015.
Börn frá 12 mánaða aldri fái vist-
un á þeim leikskólum þar sem því
er við komið. Systkinaafsláttur skal
gilda á öllum vistunarstigum sveit-
arfélagsins. Lögð verður áhersla á
samræmingu í þjónustuframboði
og fjárveitingum til grunnskól-
anna í sveitarfélaginu og aðbúnað-
ur í skólum sveitarfélagsins verð-
ur bættur eins og kostur er. Áfram
verði rekinn öflugur tónlistarskóli
í Borgarbyggð, útgáfu á frístunda-
kortum til barna og unglinga verð-
ur komið á og komið skal á heima-
vist fyrir nemendur í Menntaskóla
Borgarfjarðar.
mm
Fulltrúar í meirihluta Borgarbyggðar ásamt verðandi sveitarstjóra. F.v. Hulda Hrönn Sigurðardóttir, Jónína Erna Arnardóttir og Björn Bjarki Þorsteinsson frá D lista,
Kolfinna Jóhannesdóttir verðandi sveitarstjóri, Guðveig Anna Eyglóardóttir, Helgi Haukur Hauksson og Finnbogi Leifsson frá B lista.
Páll S Brynjarsson fráfarandi sveitarstjóri og Kolfinna Jóhannesdóttir sem tekur
við embættinu 1. ágúst nk.