Skessuhorn - 17.06.2014, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 25. tbl. 17. árg. 17. júní 2014 - kr. 600 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/sparnaður
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
25%
afsláttur
Omeprazol ratiopharm
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 852 1601
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
OPIÐ
12.00 – 22.00
Síðastliðinn laugardag fór hið ár
lega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fram
í 25. skipti. Alls tóku um fimmtán
þúsund konur þátt í hlaupinu að
þessu sinni sem er svipuð þátttaka
og hefur verið á undanförum árum.
Hér á Vesturlandi var hlaupið á
ellefu stöðum og var þátttaka al
mennt prýðileg. Kvennahlaupið er
nú sem fyrr einn stærsti íþróttavið
burður ársins. Hátíðardagskrá var á
mörgum hlaupastöðum og víða var
frítt í sundlaugar fyrir þátttakend
ur að loknu hlaupi. Engin tímataka
er í Kvennahlaupinu en hefð hef
ur skapast hjá mæðgum, systrum,
frænkum og vinkonum að mæta
saman í hlaupið og hvetja hver
aðra áfram. Meðfylgjandi mynd var
tekin við upphaf og endi Kvenna
hlaupsins á Akranesi.
mm
Norðurálsmótið, eitt stærsta polla
mót landsins í knattspyrnu, fer fram
á Akranesi um næstu helgi. Af því
tilefni fylgir 16 síðna sérblað
með Skessu
horni í dag til
einkað mótinu.
Blaðinu verður
dreift til gest
anna á Akra
nesi, en áætl
að er að um
fjögur til fimm
þúsund manns
bætist við
íbúafjöldann
þessa þrjá daga sem mótið stendur
yfir. Í sérblaðinu er að finna praktísk
ar upplýsingar fyrir mótsgesti, rætt
við forsvarsmenn mótsins og þjálf
ara í Knattspyrnufélagi ÍA. Einnig er
rætt við Sigurð Jónsson knattspyrnu
kappa sem kominn er heim og byrj
aður að starfa fyrir sitt gamla uppeld
isfélag. mm
Síðustu tvær vikur hafa staðið yfir
kynbótasýningar á Miðfossum í
Borgarfirði. Mikill fjöldi hrossa,
flest af Vesturlandi, var skráður til
sýningar. Greinilegt er að knapar
sækjast eftir að leiða hross til dóms
á Miðfossum, enda aðstæður mjög
góðar bæði fyrir hross og knapa.
Í fyrri vikunni voru alls sýnd 110
hross. Efsti stóðhesturinn eftir fyrri
vikuna var Straumur frá Skrúð með
8,41 í aðaleinkunn en hæsta dæmda
hryssan var Gleði frá Kaldbak með
8,45.
Í seinni vikunni voru sýnd 165
hross. Efstu hross eftir þá viku
voru Skaginn frá Skipaskaga með
8,45 í aðaleinkunn og hæst dæmda
hryssan var Terna frá Auðs
holtshjáleigu með 8,51 í aðal
einkunn.
Úrtaka hestamannafélaganna á
Vesturlandi fyrir Landsmót hesta
manna á Hellu fór fram sl. laugar
dag í Borgarnesi. Lesa má um úr
slitin í Skessuhorni í dag. iss
Lýðveldið Ísland á sjötíu ára afmæli í dag, 17. júní. Skessuhorn óskar landsmönnum til hamingju með daginn. Meðfylgjandi
mynd er frá Þingvöllum. Ljósm. mm.
Sérblað um
Norðurálsmót
Kvennahlaupið á ellefu
stöðum á Vesturlandi
Byr frá Borgarnesi var í hópi hrossa sem vöktu töluverða athygli. Byr er fimm vetra
jarpvindóttur og hlaut 8,27 í aðaleinkunn. Knapi er Jakob S Sigurðsson.
Vinsælt að mæta með hross á
kynbótasýningar á Miðfossum
S K Ó L A B R A U T 3 7