Skessuhorn - 25.06.2014, Qupperneq 1
„Við reynum eins og kostur er að
verða við óskum fyrirtækja sem vilja
byggja upp aðstöðu sína á Grund-
artanga. Þetta er traust og örugg
uppbygging á svæðinu, fyrirtækj-
unum fjölgar smám saman,“ seg-
ir Guðmundur Eiríksson forstöðu-
maður tæknideildar Faxaflóahafna.
Um þessar mundir er unnið að frá-
gangi lóðar ofarlega í vesturhluta
athafnasvæðis á Grundartanga, í
krikanum þar sem ekið er niður
að Járnblendiverksmiðjunni. Lóð-
in er fyrir fyrirtækið Rafmiðlun hf.
sem hefur þjónað bæði Elkem Ís-
land og Norðuráli og ætlar nú að
koma upp starfsstöð og aðstöðu á
Grundartanga. Guðmundur segir
að lóðin fyrir Rafmiðlun verði til-
búin 1. ágúst nk. og forsvarsmenn
fyrirtækisins hyggi á byrjun fram-
kvæmda með haustinu. Jafnframt
verði við frágang þessarar lóðar
gerðar lítilsháttar breytingar við
gatnamótin niður á svæðið, með
því að koma þar fyrir aðrein. Það er
verktakafyrirtækið Þróttur á Akra-
nesi sem vinnur verkið og einnig
vinnur Þróttur í yfirborðsfrágangi,
göngustígagerð og frágangi gras-
svæða sem og í frágangi svæðis við
aðstöðu Faxaflóahafna. þá
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 26. tbl. 17. árg. 25. júní 2014 - kr. 600 í lausasölu
„Við mælum með því að þú
setjir ekki meira en ��� af
ráðstöfunartekjum í húsnæði,
aðallega vegna þess að það
er dýrt að lifa.“
Jóhanna Hauksdóttir
fjármálaráðgjafi
ARION
ÍBÚÐALAUSNIR
Allt um íbúðalán á arionbanki.is
Loratadin
Fæst án lyfseðils
LYFIS
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 852 1601
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
OPIÐ
12.00 – 22.00
Vagn Víkinga-
sveitarinnar
Það var enginn tilviljun að stuðn-
ingsmenn Víkings í Ólafsvík voru
valdir stuðningsmenn ársins á síð-
asta ári þegar Víkingur lék í efstu
deild. Þótt liðið hafi fallið um deild
í fyrrahaust halda stuðningsmenn
liðsins áfram að vekja athygli fyr-
ir stuðning sinn hvar sem þeir
koma. Rútan sem hefur síðustu ár
flutt Víkingsliðið var komin á síð-
asta snúning. Hún var í eigu Fisk-
iðjunnar Bylgjunar og svo til orð-
in ónothæf. Gengu forsvarsmenn
Víkingasveitarinnar á fund Bal-
vins Leifs Ívarssonar, framkvæmda-
stjóra Bylgjunnar, og fengu rútuna
fyrir 15 þúsund krónur og hófu síð-
an að laga hana til. Var hún máluð
merkjum félagsins og gert við það
sem þurfti og verður hér eftir not-
uð til að ferja stuðningsmenn Vík-
ings á útileiki.
Það var við hæfi að rútan fengi
nafnið Vagninn, en það var Vagn
Ingólfsson sem málaði merki liðsins
á fararskjótann, með góðra manna
hjálp, og skreytti hann. Vagn er
mikill stuðningsmaður Víkings
Oddur Brynjarsson, Vagn Ingólfsson og Lárus Einarsson ánægðir með árangurinn.
Rafmiðlun á Grundartanga
Unnið að frágangi lóðar fyrir fyrirtækið Rafmiðlun á Grundartanga.
og hefur málað vinnubíl sinn í lit-
um liðsins og skrýtt hann merkjum
þess. Það er nokkuð ljóst að stuðn-
ingsmenn Víkings munu vekja at-
hygli hvert sem þeir fara á hinni vel
skreyttu rútu. af
Vaðandi makríll er nú uppi við land
hjá Baulutanga í Stykkishólmi. Vöð-
urnar voru býsna stórar þannig að
sjórinn kraumaði sl. mánudags-
kvöld. Heimamenn hugsuðu sér
gott til glóðarinnar og fóru nokkrir
með veiðistangir niður á sjávarbakk-
ann. Þrátt fyrir að einungis væri um
bensínstöðvastangir að ræða náðu
þeir feðgar Róbert Arnar Stefánsson
og Aron Alexander að landa á annan
tug fiska en færum á slíkum stöngum
er ekki hægt að kasta langt frá landi.
Býsna góð veiði sem var matreidd á
þeirra heimili í gær.
Talsverður spenningur er fyrir
makrílveiðum smærri báta og marg-
ir sem nú eru að búa sig út til veið-
anna. Makrílkvóta eftir tegundum
fiskiskipa er skipt þannig að 6.000
lestir koma í hlut línu- og handfæra-
báta. 1.300 lestir af því má veiða í
júlí, annað eins í ágúst og 1.700 lestir
frá september til ársloka. Þá verður
tæplega átta þúsund tonnum ráðstaf-
að til ísfiskskipa. Í þriðja lagi verður
tæplega 31 þúsund tonnum úthlutað
til frystitogara og loks fá uppsjávar-
veiðiskip 103 þúsund tonna afla.
mm/ Ljósm. Róbert Arnar Stefánsson.
Kraumandi makríll við Stykkishólm