Skessuhorn - 16.07.2014, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Næstu blöð
VESTURLAND: Skessu-
horn kemur út miðviku-
dagana 23. og 30. júlí. At-
hygli er vakin á því að mið-
vikudaginn 6. ágúst kem-
ur ekki út blað vegna sum-
arleyfa starfsmanna sem líkt
og áður er vikan í kringum
verslunarmannahelgi. Blöð-
in í ágúst koma því út 13.,
20. og 27. ágúst.
–mm
Ólafur valinn
besti þjálfarinn
LANDIÐ: Ólafur Þórðar-
son var í gær valinn besti
þjálfari fyrri umferðar Pepsí-
deildar karla í knattspyrnu.
Þetta var mat álitsgjafa vef-
síðunnar www.fotbolti.net.
Óli þjálfar nú Víking R. en
Víkingsmenn, sem eru ný-
liðar í deildinni, hafa náð
góðum árangri undir stjórn
Ólafs. Nú hafa ellefu leikir
verið spilaðir hjá öllum lið-
um í Pepsí-deild karla og er
hún því hálfnuð þetta tíma-
bilið. Ólafur hefur í þeim
leikjum stýrt liðinu til sig-
urs í sex leikjum og gert
eitt jafntefli.Víkingur er nú
í fjórða sæti Pepsí-deildar-
innar með 19 stig, jafn mörg
og Íslandsmeistararnir í KR
sem eru í þriðja sætinu með
hagstæðari markatölu.
-jsb
Verkfærum
stolið í
Munaðarnesi
BORGARFJ: Aðfararnótt
síðastliðins föstudags var
brotist inn í tvö sumarhús í
Munaðarnesi í Borgarfirði.
Unnið er við endurbygg-
ingu húsanna. Var talsverðu
af handverkfærum stolið frá
verktakanum, svo sem hjól-
og stingsögum og ýms-
um öðrum handverkfærum.
Húsin eru í eigu SFR stéttar-
félags og eru tvö síðustu hús-
in af tíu sem sami verktakinn
hefur endurbyggt á liðnum
árum fyrir SFR. Lögreglan
í Borgarfirði og Dölum tók
skýrslu af málinu. Eru þeir
sem hugsanlega hafa orð-
ið vitni að grunsamlegum
mannaferðum frá miðnætti
og til klukkan 7:30 sl. föstu-
dagsmorgun, beðnir að láta
lögregluna vita.
–mm
Félagaskipta
glugginn opinn
LANDIÐ: Í gær opnað-
ist félagaskiptaglugginn að
nýju fyrir leikmenn meist-
araflokka og samningsbund-
inna leikmanna yngri flokka
í knattspyrnu. Glugginn er
opinn til 31. júlí en eftir þann
tíma eru engin félagaskipti
leyfð innanlands. Gildir það
jafnt um leikmenn meistara-
flokka eða leikmenn yngri
flokka.
–jsb
Rétt er að koma þeirri ábendingu
til ökumanna bifreiða sem eru
með tengivagna í eftirdragi, svo
sem fellihýsi, hjólhýsi, tjaldvagna
eða hestakerrur, að væða bíla sína
framlengingu á speglum þann-
ig að þeir geti fylgst með umferð-
inni fyrir aftan. Alltof algengt er að
menn viti lítið eða ekkert hvað er
í gangi fyrir aftan bílinn sinn og
skapi með því hættu þar sem öku-
maður bíls númer tvö t.d. þorir ekki
eða getur ekki tekið framúr.
Spáð er hægvirði og mildu næstu
dagana. Sunnanáttir verða ríkjandi
fram á helgina og víða skúrir en
bjart með köflum. Hiti 10 til 20 stig
og hlýjast fyrir norðan og austan.
Á sunnudag og mánudag er sama
hægviðrið áfram, úrkomulítið og
hlýtt í veðri. Á þriðjudag er útlit
fyrir austanátt með vætusömu og
hlýju veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Fylgdist þú með HM
í knattspyrnu?“ Niðurstaðan var sú
að 30,1% fylgdist með öllum leikj-
um mótsins, 45,6% fylgdust með
nokkrum leikjum en 24,3% sáu
engan leik.
Í þessari viku er spurt:
Hvað finnst þér verst við mikla
rigningu?
Forsvarsmenn ferðaþjónustufyrir-
tækja á Vesturlandi sem bjóða upp
á góð tjaldstæði, með t.d. hreinlæt-
isaðstöðu til fyrirmyndar og að-
stöðu t.d. til að þurrka föt, eru Vest-
lendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Eggert Herbertsson læt-
ur af starfi framkvæmda-
stjóra í upplýsingatækni-
fyrirtækinu Omnis á
næstu dögum, en hann
hefur gengt því starfi í
níu ár. Eggert hefur til-
kynnt starfsmönnum um
þessa ákvörðun sína, en
við starfinu tekur Skaga-
maðurinn Andrés Helgi
Hallgrímsson. Eggert verður áfram
einn af stærstu hluthöfum fyrirtæk-
isins og situr í stjórn þess. Omnis er
með starfsemi á Akranesi, Borgar-
nesi, Reykjavík og Reykjanesbæ.
„Ég er búinn að vera í þessu starfi
í níu ár og fannst vanta smá fersk-
leika. Ég var orðinn þreyttur sjálfur
og vildi fara að gera eitthvað ann-
að, það er heiðarlega svarið,“ seg-
ir Eggert um ástæður þess að hann
lætur af störfum. Hann segist hafa
ýmsar hugmyndir um
hvað taki við, en ætli
sér þó að taka því rólega
fyrst um sinn og ekkert
sé fast í hendi með það.
Hann er ánægður með
stöðu fyrirtækisins.
„Omnis hefur skil-
að hagnaði síðustu þrjú
árin og fyrstu sex mán-
uðir þessa árs líta vel út.
Auðvitað vill maður alltaf að þetta
gangi betur, en þetta hefur verið
réttu megin síðustu þrjú ár. Ég geng
því sáttur frá borði og hlakka til að
vinna áfram með þessum strákum
sem eigandi og í stjórninni. Efst í
huga mér er þakklæti til samstarfs-
fólksins.“ Eggert kveðst sérstak-
lega ánægður með eftirmann sinn
og segir gott að fá Andrés Helga til
liðs við fyrirtækið.
-mm
Ný stjórn hefur verið skipuð fyrir
Höfða hjúkrunar- og dvalarheim-
il á Akranesi. Frá Akraneskaupstað
voru kjörnir í stjórnina sem aðal-
menn Kristjana Helga Ólafsdóttir
formaður, Ólína Ingibjörg Gunn-
arsdóttir og Kristján Sveinsson.
Varamenn þeirra eru Atli Harð-
arson, Svanberg J. Eyþórsson og
Guðjón V. Guðjónsson. Ólína
Ingibjörg Gunnarsdóttir var kjör-
in varaformaður stjórnar. Frá Hval-
fjarðarsveit var Margrét Magnús-
dóttir kosin aðalmaður og Daníel
Ottesen varamaður í stjórn Höfða.
Sem kunnugt er á Akraneskaup-
staður 90% eignarhlut í Höfða og
Hvalfjarðarsveit 10%.
Stjórnarkjörið var kynnt á fundi
stjórnar Höfða sl. miðvikudag. Þar
var einnig tilkynnt að svar hafði
borðist frá Velferðarráðuneytinu
fyrir skömmu þar sem ráðuneytið
fellst á að breyta fjórum dvalarrým-
um í tvö hjúkrunarrými, frá og með
16.júní sl. Eftir breytinguna verða
55 hjúkrunarrými og 21 dvalarrými
á Höfða.
þá
Skagamaðurinn Sævar Freyr Þrá-
insson er nýr forstjóri fjölmiðla-
fyrirtækisins 365 og tekur við starf-
inu af Ara Edwald. Sævar Freyr hóf
nýlega störf hjá fyrirtækinu eftir
að hafa verið forstjóri Símans um
nokkurra ára skeið. Ari Edwald frá-
farandi forstjóri verður Sævari inn-
an handar næstu mánuði. Sævar
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fimmtudag í síðustu viku
ályktun þar sem hún lýsir áhuga
og metnaði til þess að koma að
samtali við ríkisvaldið um eflingu
Hvanneyrarstaðar sem háskóla- og
fræðastaðar. Þá tekur sveitarstjór-
nin heilshugar undir ályktun Holl-
vinasamtaka Landbúnaðarháskóla
Íslands (LBHÍ), en þau skoruðu á
dögunum á stjórnvöld að tryggja
stöðu og sjálfstæði skólans.
Ályktun sveitarstjórnar:
„Sveitarstjórn Borgarbyggðar fagn-
ar framkominni ályktun Hollvina-
samtaka Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og tekur heilsuhugar undir
þau sjónarmið sem þar koma fram.
Jafnframt lýsir sveitarstjórn Borg-
arbyggðar yfir áhuga og metnaði til
þess að koma að samtali við ríkis-
valdið um eflingu Hvanneyrarstað-
ar sem háskóla- og fræðastaðar.
Sveitarstjórn Borgarbyggð-
ar bindur vonir við að ríkis-
stjórn Íslands muni ötullega fram-
fylgja stefnumótandi byggðaáætl-
un 2014-2017 sem samþykkt var á
síðasta þingi. Þar er m.a. kveðið á
um að stuðlað verði að fjölbreytt-
um atvinnutækifærum um allt land
með dreifingu starfa á vegum rík-
isins og að staðsetning opinberra
starfa verði notuð með markviss-
um hætti til að skapa störf og efla
mannauð og fagumhverfi um land
allt. Á gildistíma áætlunarinnar er
stefnt að því að fækkun opinberra
starfa utan höfuðborgarsvæðisins
snúist í fjölgun með nýjum verkefn-
um eða tilflutningi verkefna.
Sveitarstjórn Borgarbyggð-
ar áréttar þá skoðun sína að sjálf-
stæði Landbúnaðarháskóla Íslands
sé tryggt og að skólanum þurfi að
tryggja aukið fjármagn til rekst-
urs og heimild til að selja eignir.
Skólinn hefur ekki farið varhluta af
miklum niðurskurði á síðustu árum
sem m.a. hefur leitt til fækkunar
starfa á landsbyggðinni. Áfram-
haldandi sjálfstæði LBHÍ er ein
grunnforsenda þess að það takist að
skapa störf og efla mannauð og fag-
umhverfi á landsbyggðinni.“
mm
Snorri Þorsteinsson frá Hvassafelli
lést síðastliðinn miðvikudag, 83 ára
að aldri. Snorri var lengi kennari
við Samvinnuskólann á Bifröst og
fræðslustjóri Vesturlands frá 1975
til 1996. Hann veitti Skólaskrifstofu
fyrir Vesturland, utan Akraness, for-
stöðu frá 1996 til 2000. Snorri var
fæddur og uppalinn á Hvassafelli í
Norðurárdal og bjó þar alla tíð með-
an hann kenndi í Samvinnuskólan-
um á Bifröst. Hann sinnti búskap
meðfram kennslunni. Árið 1976, ári
eftir að hann tók við starfi fræðslu-
stjóra, flutti hann í Borgarnes, en þar
var fræðsluskrifstofan sett á stofn.
Snorri gegndi ýmiskonar trúnaðar-
störfum í gegnum tíðina og var til að
mynda fulltrúi í svæðisráði um mál-
efni fatlaðra á Vesturlandi í 28 ár.
Sagan var Snorra hugleikin og
skrifaði hann fjölmörg rit um söguleg
málefni, meðal annars Sögu Spari-
sjóðs Mýrasýslu og bók um barna-
fræðslu í Mýrasýslu frá 1880-2008.
Þá skrifaði hann um sögu Sambands
veiðifélaga. Snorri starfaði lengi með
Sögufélagi Borgfirðinga, var formað-
ur þess um skeið og gegndi einnig
starfi framkvæmdastjóra. Þar kom
hann að útgáfu Borgfiskra æviskráa
og hafði forgöngu um að Borgfirð-
ingabók var gefin út á ný. Snorri var
kvæntur Eygló Guðmundsdóttur, en
hún lést árið 2012. Fósturdóttir hans
og dóttir Eyglóar er Margrét Guð-
jónsdóttir. kóp
And lát:
Snorri Þorsteinsson
Kosin ný stjórn fyrir Höfða
Sævar Freyr verður
forstjóri 365
Freyr segir í tilkynningu að verk-
efnið sé spennandi. „Við búum
yfir afar hæfu starfsfólki, öflugum
miðlum og ekki síst góðum við-
skiptavinum til langs tíma,“ seg-
ir hann í fréttatilkynningu. „Sævar
Freyr hefur mikla reynslu í rekstri
og þekkingu sem mun nýtast 365 á
spennandi tímum,“ segir Ingibjörg
S. Pálmadóttir, stjórnarformaður
365. Framundan hjá 365 miðlum
eru tímamót sem felast m.a. í end-
urfjármögnun og hlutafjáraukn-
ingu. mm
Eggert hættir sem fram
kvæmdastjóri Omnis
Sveitarstjórn vill koma að
viðræðum um LbhÍ