Skessuhorn - 16.07.2014, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Illugi Gunnars-
son mennta- og
menningar mála-
ráðherra hefur
skipað dr. Björn
Þ o r s t e i n s s o n
aðstoðar rektor
k e n n s l u m á l a
tíma bundið sem rektor Landbún-
aðarháskóla Íslands frá 1. ágúst nk.
til 31. desember 2014. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá skólan-
um. Þessi skipan kemur í framhaldi
af ákvörðun sem tekin var á fundi
háskólaráðs LbhÍ 8. júlí síðastlið-
inn. En á þeim fundi var eftirfar-
andi samþykkt gerð: „Skipunartíma
núverandi rektors Landbúnaðarhá-
skóla Íslands lýkur 31. júlí nk. Fyrir
liggur að hann sækist ekki eftir end-
urráðningu á nýju skipunartímabili.
Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um
opinbera háskóla, nr. 85/2008, ber
háskólaráði við þessar aðstæður að
undirbúa tilnefningu nýs rektors.
Í ljósi þessa leggur háskólaráð
Landbúnaðarháskóla Íslands til við
mennta- og menningarmálaráð-
herra að Dr. Björn Þorsteinsson
aðstoðarrektor kennslumála verði
með heimild í 24. gr. laga um rétt-
indi og skyldur starfsmanna ríkis-
ins, nr. 70/1996, settur í embætti
rektors til 31. desember nk. Há-
skólaráðið mun þegar hefja und-
irbúning að tilnefningu nýs rekt-
ors Landbúnaðarháskóla Íslands
sem ráðherra skipar til fimm ára frá
og með 1. janúar 2015. Háskólaráð
hefur ákveðið að starfið verði aug-
lýst opinberlega.“
Háskólaráð hefur skipað sérstaka
undirbúningsnefnd sem í sitja Sig-
ríður Hallgrímsdóttir, Bjarni Stef-
ánsson og Hilmar Janusson sem
mun undirbúa ráðningarferlið.
Gert er ráð fyrir að auglýsa starf-
ið í byrjun september. Stefnt er að
því að niðurstaða um ráðningu nýs
rektors liggi fyrir í desember“
kóp
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is
Jóhann Skúli Björnsson, blaðamaður jsb@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Tinna Ósk Grímarsdóttir (vefauglýsingar) tinna@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Heppnasti áhorfandinn og
óheppnasti spilarinn
Á næstu dögum mun það koma í ljós hvort Íslendingar eiga sér líf eftir HM
í fótbolta. Nú 64 leikjum og heilum mánuði síðar er mótinu loks lokið, með
næstum eins fyrirsjáanlegum úrslitum og búast hefði mátt við. Reyndar hefði
ég giskað á að Holland myndi spila úrslitaleikinn en ég tek það fram að sú
spá byggir eingöngu á ummælum annarra. Ég er nefnilega einn af þeim sem
hef áhuga á fótbolta í afskaplega litlum skömmtum, af og til. Finnst t.d. al-
veg fráleitt að fótboltaleikir skuli þurfa að vara í heilar 90 mínútur ásamt
löngu hléi á milli. Það mætti svo hæglega gera út um það á skemmri tíma
hvort liðið af tveimur er betra. Svo skil ég alls ekki hvernig gera má úr þess-
ari íþrótt svona mikla peningamaskínu. Að leikmenn þurfi að kosta millj-
arða. Svo kannski eru þessir milljarðamenn búnir að vera eftir eina slæma
tæklingu. Oft þarf ekki mikið til. Hvenær haldið þið til dæmis að hinn arg-
entíski landsliðsmaður Javier Mascherano verði búinn að ná sér, andlega og
líkamlega, eftir að hann reif á sér endaþarminn í undanúrslitaleiknum gegn
Hollandi? Reyndar var það hann sem var að tækla einn hollenska spilarann
og getur því sjálfum sér um kennt. Til allrar hamingju var Mascherano hik-
andi þegar hann greindi frá þessum óförum sínum á blaðamannafundi eftir
leikinn; „sagðist ekki vilja vera dónalegur með því að lýsa meiðslunum of ná-
kvæmlega,“ sagði orðrétt á fréttavef RUV og augljóst að fréttamanninum var
ekki skemmt. Líklega er Macherano óheppnasti spilari mótsins. Svipurinn á
honum eftir tapið í úrslitaleiknum ýtti allavega undir þá skoðun mína.
Reyndar hef ég ekkert á móti fótbolta og hef heldur ekki almennt skoðun
á ólíkum gerðum íþróttameiðsla. Hef þó meiri áhyggjur af því þegar hross
t.d. meiða sig af því óíþróttamannslegum mélum er troðið upp í þau fyrir
keppni. Þau hafa nefnilega ekki val. Engu að síður finnst mér miklu meira
spennandi að horfa á fótboltakappleik heldur en t.d. beina lýsingu frá golf-
móti í rigningarsudda á Bretlandseyjum, eða beina lýsingu frá heimsmeist-
aramótinu í skák. En fyrst á annað borð þarf að sýna alla þessa fótboltaleiki í
Ríkissjónvarpinu, sem ég borga áskrift fyrir hvernig svo sem mér líkar dag-
skráin, er ég þakklátur fyrir að mótið er haldið að sumri til. Mér er nefni-
lega miklu meira sama hvort dagskránni er spillt með því að sýna fótbolta á
bestu áhorfstímum, dag eftir dag í heilan mánuð, ef valinn er heitasti tími
ársins til þess.
Ég ítreka enn og aftur að ég tel mig alls ekki vera svona öfga andstæð-
ing knattspyrnu. Ég hafði meira að segja fyrirfram ákveðið að horfa sjálfur á
einn leik á þessu HM móti og valdi að sjá leik Brasilíu og Þýskalands í und-
anúrslitunum. Reyndar var ég alveg svakalega heppinn, heppnasti áhorfandi
í heimi. Þetta kvöld var ég átta mínútum of seinn framan við skjáinn þannig
að ég sá ekki þessar fyrstu mínútur, enda gerðist víst ekkert á þeim. Svo sett-
ist ég - og viti menn! Á næstu þrjátíu mínútum skoraði þýska stálið hvorki
fleiri né færri en fimm mörk án þess að Brassarnir gætu rönd við reist. Eft-
ir það gat þessi leikur ekki orðið spennandi þannig að mínúturnar mínar
framan við sjónvarpsskjáinn á þessu HM í knattspyrnu 2014 urðu einung-
is 30 og uppfylltu þær með öllu þörf mína á þessu sviði að minnsta kosti til
ársins 2018. Eftir á að hyggja er ég handviss um að enginn áhorfandi á heilu
heimsmeistaramóti hafi orðið vitni að jafn mörgum mörkum á áhorfstíma,
eins og ég. Þetta var mark á sjöttu hverri mínútu, svona rétt eins og í miðl-
ungsslöppum handboltalandsleik. Þetta heitir því að fá mikið fyrir pening-
inn og fyrir þessar 30 mínútur er ég afskaplega þakklátur fyrir að hafa borg-
að afnotagjaldið mitt til RUV. Eftir þennan hálftíma við skjáinn fannst mér
reyndar alveg einboðið að Þjóðverjar yrðu heimsmeistarar og fannst mót-
ið búið í mínum huga. Ég frétti svo seint á sunnudagskvöldið að þeir þýsku
hefðu unnið með einu marki og að það hafi tekið þá heilar 113 mínútur að
skora það. Þá var ekki mark sjöttu hverja mínútu. Nei, það eru ekki allir jafn
heppnir!
Magnús Magnússon.
Dr. Björn Þorsteinsson skipaður rektor LbhÍ
Vindhæli flutt
Íbúðarhúsið Vindhæli sem stóð við
Vesturgötu 51 á Akranesi var flutt
síðastliðinn föstudag. Áður hafði
verið veitt heimild til að rífa húsið
en það var talið ónýtt. Líkt og fram
kom í síðasta tölublaði Skessu-
horns var það Jón Friðrik Jónsson
frá Hvítárbakka sem flutti húsið á
heimaslóðir sínar í Bæjarsveitinni.
Hið rúmlega hundrað ára gamla
Vindhæli hefur því fengið nýtt
stæði að Vindheimum í Borgar-
firði.
grþ
Vindhæli var flutt frá Akranesi að Vindheimum aðfararnótt föstudagsins. Ljósm.
Jónas Ottósson.
Tilboð barst í húsin í Englendingavík
Hjá Byggðastofnun liggur nú fyrir
kauptilboð í húsin í Englendinga-
vík í Borgarnesi. Eignin er skráð
sem Skúlagata 17 og er ríflega
650m² safn/veitingahús. Að sögn
Hjalta Árnasonar lögfræðings hjá
Byggðastofnun er tilboðið jafnhátt
ásettu verði fyrir eignina, eða 50
milljónir króna. Í húsunum í Eng-
lendingavík hefur á annað ár ver-
ið starfrækt Edduveröld, veitinga-
og kaffihús. Eigendur Edduver-
aldar hafa frest til 22. júlí nk. til að
ganga inn í tilboðið. Þeir funduðu
með sveitarstjórn Borgarbyggð-
ar á dögunum um málið. Sveitar-
stjórn taldi sig ekki hafa aðkomu að
málinu lengur, en húsin í Englend-
ingavík fóru á sínum tíma úr eigu
sveitarfélagins við kaup Brúðu-
heima á þeim. Húsin fóru síðan í
fang Byggðastofnunar við gjald-
þrot Brúðuheima. Tilboð í hús-
in í Englendingavík setja rekstur
Edduveraldar í uppnám. Eigend-
ur Edduveraldar sögðust ekki vilja
tjá sig um málið að svo stöddu þeg-
ar haft var samband sl. mánudag.
Það mun vera rekstraraðili Iðnós
veitingahúss í Reykjavík sem hefur
gert tilboð í húsin í Englendinga-
vík.
þá
Þrjú skip væntanleg í Grundarfjörð í dag
Franska skemmtiferðaskipið Le
Austral átti viðkomu í Grund-
arfirði síðastliðinn miðvikudag.
Þetta var í fyrsta skipti sem skip-
ið kom til Grundarfjarðar, en hér
er um að ræða systurskip Le Bori-
al. Tæplega 300 farþegar voru um
borð og fóru þeir flestallir í rútu-
ferð um Snæfellsnes áður en skip-
ið sigldi burt klukkan 17. Le Astral
er 10.944 brúttótonn og 181 metri
á lengd.
Eins og við greindum frá í
Skessuhorni í síðustu viku er von á
alls 19 skipum til Grundarfjarðar í
sumar, sem er met. Það stefnir þó í
að það met verði slegið strax næsta
sumar. „Við höfum nú þegar feng-
ið 32 bókanir fyrir sumarið 2015
og hafa þær aldrei verið fleiri,“
segir Hafsteinn Garðarsson hafn-
arstjóri í Grundarfirði í samtali við
Skessuhorn. Í dag, miðvikudag-
inn 16. júlí, mun það í fyrsta skipti
gerast að þrjú skip verða samtímis
í Grundarfirði.
mm/ Ljósm. sk.