Skessuhorn - 16.07.2014, Blaðsíða 7
7MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Starf á skrifstofu UMSB
Ungmennasamband Borgarfjarðar óskar eftir starfsmanni
í fullt starf á skrifstofu sambandsins í nýtt og spennandi
starf á sviði tómstundamála í Borgarbyggð.
Helstu verkefni eru:
Skipulagning og yfirumsjón með íþrótta- og tómstundaskóla
fyrir börn í 1. - 4. bekk, sumarstarf grunnskólabarna og starfsemi
félagsmiðstöðva í Borgarbyggð ásamt öðrum verkefnum á sviði
tómstunda og íþróttamála.
Menntunar og hæfniskröfur:
Menntun á sviði uppeldis-, félags- eða tómstundamála er kostur.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi auk grunnþekkingar á tölvum
í t.d. Word og Excel. Þekking á íþrótta og tómstundastarfi
ungmenna er kostur.
Nánari upplýsingar um starfið og starfsemi UMSB gefur
framkvæmdastjóri í síma: 869 7092 eða umsb@umsb.is
Umsóknarfrestur er til 23. júlí 2014 og skal skila umsóknum
ásamt ferilskrá á netfangið umsb@umsb.is eða á skrifstofu
UMSB á Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður
öllum umsóknum svarað.
Ungmennasamband Borgarfjarðar - Borgarbraut 61 - 310 Borgarnesi
Sími 437 1411 - www.umsb.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Opið alla daga
11.00 - 18.00
Verið velkomin
Sólbakka 2, Borgarnesi - 437 1400 - ljomalind.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
„Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur
áður lýst yfir stuðningi við að að-
alskrifstofa lögreglustjóra Vestur-
lands verði í Borgarnesi og gerir
ekki athugasemdir við að aðalskrif-
stofa sýslumanns Vesturlands verði
í Stykkishólmi.“ Þetta kemur fram
í bókun frá fundi sveitarstjórnar
Dalabyggðar í byrjun mánaðarins
þar sem fjallað var um framkomn-
ar tillögur frá Innanríkisráðuneyt-
inu um breytingar á umdæmum
embætta sýslumanna og lögreglu-
stjóra. Samkvæmt þeim er gert
ráð fyrir að einn sýslumaður verði
fyrir Vesturland allt með aðsetur
í Stykkishólmi og einn lögreglu-
stjóri með aðsetur í Borgarnesi.
Gert er ráð fyrir að lögreglu-
stöð verði áfram í Búðardal sem
og sýsluskrifstofa með takmark-
aðri þjónustu við íbúana. Í bókun
frá fundinum segir að margra ára
barátta gegn niðurlagningu emb-
ættis sýslumanns Dalasýslu og lok-
un lögregluvarðstofu sé greini-
lega töpuð, en sveitarstjórn Dala-
byggðar ítreki áður fram sett-
ar kröfur um að í Búðardal verði
bæði mönnuð varðstöð lögreglu
og sýsluskrifstofa þar sem íbúar
gangi að eðlilegri þjónustu. „Sjálf-
sögð krafa er að þessi starfsemi
verði styrkt frá því sem verið hefur
t.d. þannig að tveir lögregluþjónar
verði staðsettir á varðstöð í Búðar-
dal og sýsluskrifstofu verði úthlut-
að nýjum verkefnum. Það mætti
gera t.d. með því að á sýsluskrif-
stofu í Búðardal verði staðsettur
löglærður fulltrúi sem gæti einn-
ig þjónað sýsluskrifstofu á Hólma-
vík,“ segir í bókun sveitarstjórnar
Dalabyggðar.
þá
Um síðustu helgi var haldin í
Stykkishólmi þjóðbúningahátíð-
in Skotthúfan. Þetta var í tíunda
sinn sem þjóðbúningadagurinn
var haldinn hátíðlegur í Hólmin-
um. Jafnan hefur hann farið fram í
Norska húsinu, Byggðasafni Snæ-
fellinga og Hnappdæla. Á síðasta
ári voru einnig haldnir tónleikar í
gömlu kirkjunni. Heppnuðust þeir
og þjóðbúningahátíðin það vel að
í framhaldinu kom fram hugmynd
um að halda þriggja daga þjóðbún-
ingahátíð. „Hátíðin núna heppnað-
ist mjög vel og gestirnir voru yfir
sig ánægðir með skemmtilega helgi
í Hólminum. Dagskrá hátíðarinn-
ar gekk samkvæmt áætlun og bær-
inn var sneisafullur af fólki. Það
stytti upp á föstudeginum áður en
hátíðin byrjaði og veðrið var gott
um helgina. Það var gaman að sjá á
ferðinni milli húsa margt prúðbúið
fólk sem tengdist hátíðinni,“ segir
Anna Melsteð, formaður Listvina-
félags Stykkishólmskirkju, sem var
einn nokkurra aðila sem stóðu að
Skotthúfunni. Auk listvinafélagsins
og byggðasafnsins voru það Vinnu-
stofan Tang & Riis, Menningarfé-
lagið Embla, danshópurinn Spor-
ið úr Borgarfirði og Heimilisiðnað-
arfélag Íslands sem stóðu að þjóð-
búningahátíðinni. Um 40 manns
sá um undirbúning hátíðarinnar að
sögn Önnu Melsteð.
Frumlegasta og
fallegasta skotthúfan
Dagskrá Skotthúfunnar hófst með
setningu hátíðarinnar í Gömlu
kirkjunni á föstudagskvöld. Á laug-
ardeginum var fjölbreytt dag-
skrá, m.a. í vinnustofu Ingibjarg-
ar Ágústsdóttur í Tang & Riis þar
sem Bjarni Lárentsínusson og Ingi-
björg fræddu gesti um ýmiss stig
langspilssmíði. Á fyrstu hæð Tang
& Riis þar sem alla jafna er anddyri
útgerðarfyrirtækisins Agustsson ehf
var komið fyrir verslun Heimilis-
iðnarfélags Íslands, sem félagsmenn
fluttu með sér frá Reykjavík. Er það
eina sérhæfða verslunin í landinu
sem býður upp á efni til þjóðbún-
ingagerðar. Guðrún Bjarnadótt-
ir frá Hespuhúsinu í Andakíl sýndi
handlitað band í Krambúð Norska
hússins auk þess sem félagskonur úr
Heimilisiðnaðarfélagi Íslands voru
að störfum við sitt handverk. Krist-
ín Bjarnadóttir hélt fyrirlestur um
breiðfirsku handlínuna. Tónlistar-
menn litu inn í Norska húsið og kl.
16 sýndi þjóðdansahópurinn Spor-
ið á torginu við húsið en dansararn-
ir stóðu einnig fyrir örnámskeiði í
þjóðdönsum síðar um kvöldið í
gamla KST frystihúsinu. Tón-
leikar voru í Gömlu kirkjunni þar
sem leikið var á langspil, sungið og
kveðnar rímur Sigurðar Breiðfjörð
af þeim Erni Magnússyni, Eyjólfi
Eyjólfssyni, Pétri Húna Björnssyni,
Júlíu Traustadóttur og Hildi Heim-
isdóttur. Þá var meðal margra dag-
skrárliða á laugardag þjóðdansaball
sem haldið var í gamla frystihúsinu
KST. Við Frúarhúsið kom Hörð-
ur Geirsson sér fyrir og tók mynd-
ir með votplötutækni af búninga-
fólki. Efnt var til skotthúfukeppni
þar sem gestir Norska hússins kusu
frumlegustu húfuna og dómnefnd
valdi svo fallegustu húfuna. Að
þeirra mati var það Arnór Orri S.
Hjaltalín 13 ára strákur sem hann-
aði frumlegustu húfuna og Una M.
Karlsdóttir prjónaði. Brynhildur
Bergþórsdóttir átti fallegustu húf-
una.
Þjóðbúningahátíðinni lauk síð-
an þar sem hún hófst í gömlu kirkj-
unni um hádegisbil á sunnudaginn.
Þar var haldin þjóðlagamessa og
sá tónlistarfólkið frá tónleikunum
daginn áður um tónlistina ásamt
Kór Stykkishólmskirkju en séra
Gunnar Eiríkur Hauksson messaði.
Anna Melsteð segir að hátíðin núna
lofi góðu og sé stefnt að næstu há-
tíð aðra helgina í júlí 2015.
þá
Ítreka mönnun hjá lögreglu og
sýslumanni í Dölum
Pétur Björnsson í Norska húsinu þar
sem hann var að kveða Númarímur
Sigurðar Breiðfjörð.
Ljósm. Anok/Stykkishólmi.
Vel heppnuð þjóðbúningahátíð
haldin í Stykkishólmi
Dansfólk úr Sporinu úr Borgarfirði sýnir.
Ljósm. Guðrún Jónsdóttir.
Þau tóku sig vel út í búningunum Ingibjörg Ágústs-
dóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Marta Halldórsdóttir og Örn
Magnússon. Ljósm. Guðrún Jónsdóttir.
Brynhildur Bergþórsdóttir vinnings-
hafinn í skotthúfukeppninni með
verðlaun frá Ístex, Sæferðum og
Byggðasafni Snæfellinga og Hnapp-
dæla. Ljósm. Anok/Stykkishólmi.
Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi
auglýsir eftir matráð
Starfið felur í sér yfirumsjón með starfsemi eldhúss og
eldamennsku fyrir íbúa Dvalarheimilisins og annarra sem
kaupa mat á heimilinu.
Auk þess er á veturna eldaður matur fyrir nemendur og
starfsfólk Grunnskólans og hann fluttur í skólann.
Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja menntun
í matreiðslu og næringarfræði og góða reynslu af starfi í
mötuneyti.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí, ráðið verður í starfið frá
og með 15. ágúst n.k.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu
Stykkishólmsbæjar – www.stykkisholmur.is og á skrifstofu
Stykkishólmsbæjar.
Umsóknir berist undirritaðri á Dvalarheimili aldraðra,
Skólastíg 14, 340 Stykkishólmur eða á netfangið
hildigunnur@stykkisholmur.is.
Allar nánari upplýsingar á staðnum eða í síma: 433 8165 alla
virka daga.
Hildigunnur Jóhannesdóttir
Forstöðumaður Dvalarheimilis aldraðra
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4