Skessuhorn - 16.07.2014, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Kátt um
helgina
KJÓS: Sveitahátíðin Kátt í
Kjós verður haldin í áttunda
sinn laugardaginn 19. júlí
nk. Þar verður í mörg horn
að líta enda vegleg dagskrá
í boði. Meðal annars munu
ungir bændur keppa í margs-
konar þrautum á túninu við
Félagsgarð. Á Reynivöllum
verður fróðlegt erindi um
eftirminnileg ár þjóðskálds-
ins Matthíasar Jochumssonar
í Kjósinni. Leiðsögn verður
um hernámsminjar í Hvíta-
nesi kl. 13. Kátína mun ríkja
á Kaffi Kjós, tryllt trjásala
verður að Kiðafelli 3, Gallerí
Nana verður opið við Með-
alfellsvatn, Keramik-vinnu-
stofa Sjafnar Ólafs verður
opin í sumarbústaðahverf-
inu í Eilífsdal og margt fleira
verður í boði. Nánar um há-
tíðina má finna á www.kjos.is
–jsb
Aflatölur fyrir
Vesturland
5. 11. júlí.
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes 23 bátar.
Heildarlöndun: 20.294 kg.
Mestur afli: Hannes Andr-
ésson SH: 5.754 kg í einni
löndun.
Arnarstapi 13 bátar.
Heildarlöndun: 44.065 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
26.274 kg í fimm löndunum.
Grundarfjörður 38 bátar.
Heildarlöndun: 265.601 kg.
Mestur afli: Frosti ÞH:
79.247 kg í tveimur löndun-
um.
Ólafsvík 31 bátur.
Heildarlöndun: 68.854 kg.
Mestur afli: Guðmundur
Jensson SH: 4.560 kg í einni
löndun.
Rif 27 bátar.
Heildarlöndun: 75.425 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
22.324 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur 28 bátar.
Heildarlöndun: 47.539 kg.
Mestur afli: Dísa SH: 4.364
kg í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
68.283 kg. 9. júlí
2. Helgi SH – GRU:
45.992 kg. 6. júlí
3. Frosti ÞH – GRU:
42.139 kg. 6. júlí
4. Frosti ÞH – GRU:
37.108 kg. 9. júlí
5. Magnús SH – RIF:
14.441 kg. 8. júlí
mþh
Ók rútu útaf
DALIR: Rúta fór útaf vegin-
um við Haukadalsvatn í Döl-
um á sjötta tímanum á sunnu-
daginn. Var henni ekið í blaut-
an jarðveg við veginn og varð
því höggið við útafakstur-
inn ekki eins slæmt og ef fyr-
irstaðan hefði verið í fastara
formi. Um borð voru 26 er-
lendir ferðamenn og bílstjóri.
Eitthvað var um minnihátt-
ar meiðsli meðal farþega en
enginn var alvarlega slasað-
ur. Björgunarsveitin Ósk frá
Búðardal var kölluð út til að-
stoðar lögreglu og sjúkraliði á
slysstað en hlúa þurfti að far-
þegum. Voru þeir fluttir í hús
Rauða krossins í Búðardal þar
sem þeim var veitt áfallahjálp.
Vegfarendur er áttu leið hjá
aðstoðuðu einnig við flutning
farþeganna.
–kóp
Sumaruppbót
og samið við
starfsmenn
AKRANES: Bæjarráð Akra-
neskaupstaðar samþykkti á
fundi sínum sl. fimmtudag að
greiða sérstaka sumaruppbót
vegna starfsmanna í Verka-
lýðsfélagi Akraness og Starfs-
mannafélagi Reykjavíkur. Þá
var skrifað undir kjarasamning
milli Verkalýðsfélags Akraness
og Sambands íslenskra sveit-
arfélaga síðastliðinn föstudag
og mun samningurinn fara
til umsagnar hjá félagsmönn-
um á næstu dögum. Samning-
urinn gildir til 30. apríl 2015.
Á föstudag var einnig haldinn
kynningarfundur á Akranesi
á vegum Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar þar sem
nýr kjarasamningur var kynnt-
ur félagsmönnum. Sá samn-
ingur gildir einnig til 30. apríl
á næsta ári. Sumaruppbótin
er að fjárhæð kr. 26.585 mið-
að við fullt starf á ársgrund-
velli og gildir þetta sérákvæði
á meðan gildandi kjarasamn-
ingur er á milli samningsað-
ila. Alls munu 220 starfsmenn
fá sumaruppbót. Í tilkynningu
frá Akraneskaupstað segir að
markmiðið með sumarupp-
bótinni sé að mæta almenn-
um starfsmönnum Akranes-
kaupstaðar sem vinna gjarn-
an við lægst launuðustu störf-
in. Ennfremur samþykkti bæj-
arráðið að greiða þeim starfs-
mönnum Akraneskaupstaðar
sem hafa hvað lengstan starfs-
aldur og eru í Verkalýðsfélagi
Akraness svokallaða sérstaka
orlofsuppbót, eða 6% ofan á
laun í júní.
–þá
Sex sóttu um
rektorsstöðu
BORGARNES: Sex um-
sóknir voru um stöðu rektors
Menntaskóla Borgarfjarðar, en
nýlega var kynnt að Guðrún
Björg Aðalsteinsdóttir hefði
verið ráðin. Aðrir umsækj-
endur voru Aðalsteinn Júlíus
Magnússon, Einar Þorvaldur
Eyjólfsson, Sigríður Jónsdótt-
ir, Sigurlína H Styrmisdóttir
og Unnar Þór Bachmann.
–kóp
Deiliskipulag fyrir nýjan urðunar-
stað í landi Höskuldsstaða í Lax-
árdal var tekið til umfjöllunar á
fundi sveitarstjórnar Dalabyggð-
ar í byrjun mánaðarins. Tillaga að
deiliskipulaginu var auglýst frá 27.
febrúar til 11. apríl sl. og var tillag-
an jafnframt send umsagnaraðilum.
Ein athugasemd barst við skipulag-
ið og var hún frá Vegagerðinni. Þar
var talið að vegtenging svæðisins
við Laxárdalsveg sé ekki í lagi vegna
ófullnægjandi sjónlengda og lögðu
forsvarsmenn Vegagerðarinnar til
að tengingin verði færð 50-60 m til
vesturs nær Höskuldsstöðum. Um-
hverfis- og skipulagsnefnd Dala-
byggðar samþykkti að taka tillit til
athugasemdar Vegagerðarinnar og
færa vegtenginguna. Í greinargerð
og uppdrætti dags. 30. júní 2014
er búið að færa inn þessar breyt-
ingar. Þá er frá auglýstum gögnum
búið að minnka lóð urðunarsvæðis
í 2,5 ha og byggingarreitur minnk-
aður til samræmis. Tillagan er í
samræmi við gildandi aðalskipulag
Dalabyggðar, síðast breytt 15. apríl
2014. Sveitarstjórn Dalabyggðar
samþykki fyrirliggjandi deiliskipu-
lag á umræddum fundi. Sveinn
Pálsson sveitarstjóri segist vona að
umsókn um starfsleyfi fái afgreiðslu
hjá Umhverfisstofnun á næstunni
þannig að framkvæmdir við svæð-
ið geti hafist með haustinu. Um er
að ræða urðun á grófum ómeng-
andi efnum svo sem steypu, bygg-
ingarefni og jarðvegi. Slíkt svæði er
við bæjarmörkin að norðanverðu
en það er orðið fullnýtt og búið að
loka því. þá
Starf sveitarstjóra Hvalfjarðarsveit-
ar var auglýst laust til umsóknar
eftir kosningarnar í vor. Rann um-
sóknarfrestur út 7. júlí síðastliðinn.
Alls sóttu sjötíu og þrír um starfið.
Tíu umsækjendur drógu umsóknir
sínar til baka og því var endanleg-
ur fjöldi umsókna sextíu og þrjár.
Í þessum stóra hópi er fólk ýmist
með mikla reynslu eða menntun,
hvorutveggja eða hvorugt; ráðgjaf-
ar og fyrrum forstjórar svo dæmi
séu tekin. Allt litrófið ef svo má
segja, en ljóst að mikil eftirspurn er
eftir að taka við að stýra einu efn-
aðasta sveitarfélagi landsins.
Umsækjendur voru eftirtaldir:
• Aðalsteinn J. Halldórsson, stjórn-
málafræðingur
• Bergur Hauksson, lögfræðingur
• Bjarni Kr. Grímsson, verkefna-
stjóri
• Björn S. Lárusson, verkefnastjóri
• Davíð Ólafsson, fasteignasali og
viðburðastjórnandi
• Drífa Jóna Sigfúsdóttir, viðskipta-
fræðingur
• Egill Skúlason, umhverfis- og
orkufræðingur
• Einar Kristján Jónsson, verkefna-
stjóri
• Eirný Vals, ráðgjafi
• Elías Pétursson, verkefnastjóri
• Eva Magnúsdóttir, ráðgjafi
• Garðar Lárusson, ráðgjafi
• Grétar Þór Jóhannsson, lögfræð-
ingur
• Guðjón Þórðarson, sérfræðingur
• Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,
oddviti og bílstjóri
• Guðrún Agða Aðalheiðardóttir,
ráðgjafi
• Gunnar Alexander Ólafsson,
verkefnastjóri
• Gunnar Freyr Róbertsson, mark-
aðsstjóri
• Gunnar Þ. Andersen, viðskipta-
fræðingur
• Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir,
lögfræðingur
• Gylfi Þór Þorsteinsson, ráðgjafi
• Hallgrímur Ólafsson, viðskipta-
fræðingur
• Hekla Gunnarsdóttir, verkefna-
stýra
• Hilmar Einarsson, lögfræðingur
og gullsmiður
• Hjördís Sigurðardóttir, lands-
lagsarkitekt
• Hjördís Stefánsdóttir, forstjóri
• Hrönn Pétursdóttir, ráðgjafi
• Jens Pétur Jensen, sveitarstjóri
• Jóhanna Aradóttir, stjórnsýslu-
fræðingur
• Jóhannes Finnur Halldórsson,
sérfræðingur
• Jón Egill Unndórsson, kennari
• Jón Hartmann Elíasson, stjórn-
sýslufræðingur
• Jón Hrói Finnsson, sveitarstjóri
• Jón Pálmi Pálsson, ráðgjafi
• Jón Pálsson, viðskiptafræðingur
• Jónas Pétur Hreinsson, markaðs-
og auglýsingaráðgjafi
• Jónína Kristjánsdóttir, viðskipta-
fræðingur
• Kolbrún Garðarsdóttir, lögfræð-
ingur
• Kristinn Dagur Gissurarson, við-
skiptafræðingur
• Kristján Bjarnar Ólafsson, rekstr-
arráðgjafi
• Lárus Páll Pálsson, viðskipta-
fræðingur
• Magnús Jónasson, byggingafræð-
ingur
• Margrét Einarsdóttir, sérfræð-
ingur
• María Lóa Friðjónsdóttir, fjár-
málastjóri
• Marta Birna Baldursdóttir, stjórn-
sýslufræðingur
• Ólafur Guðjón Haraldsson, við-
skiptafræðingur
• Ólöf Guðmundsdóttir, viðskipta-
fræðingur
• Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri
• Óskar Már Ásmundsson, for-
stöðumaður
• Páll Línberg Sigurðsson, ferða-
málafræðingur
• Ragnar Þorgeirsson, sparisjóðs-
stjóri
• Rannveig Margrét Stefánsdóttir,
viðskiptalögfræðingur
• Rósa Harðardóttir, kennari
• Sigrún Jónsdóttir, stjórnmála-
fræðingur
• Sigurður Óli Hauksson, lögfræð-
ingur
• Sigurður Tómas Björgvinsson,
ráðgjafi
• Skúli Þórðarson, stjórnsýslufræð-
ingur
• Steingrímur Hólmsteinsson, sér-
fræðingur
• Sverrir Berg Steinarsson, ráðgjafi
• Sverrir Þ. Sverrisson, sérfræðing-
ur
• Sævar Birgisson, ráðgjafi
• Theódór S. Halldórsson, fjár-
málaráðgjafi
• Þorsteinn Þorsteinsson, rekstrar-
hagfræðingur.
Félagar í Ungmennafélaginu Reyn-
ir á Hellissandi fögnuðu 80 ára af-
mæli félagsins um síðustu helgi en
þá fór einnig fram Sandara- og Rifs-
aragleði. Afmælishátíðin var haldin
á Reynisvelli á Hellissandi. Sigur-
steinn Einarsson formaður félags-
ins bauð gesti velkomna á hátíð-
ina. Ungmennafélagið veitti Þóru
Olsen viðurkenningu fyrir störf sín
fyrir félagið en hún og maður henn-
ar hafa séð um að koma upp bún-
ingsaðstöðu við völlinn sem stað-
sett er í tveimur gámum og er að-
staðan orðin mjög góð. Voru gám-
arnir látnir heita eftir þeim hjón-
um og heita því Óskar og Þóra.
Stúlkur sem voru á söngnámskeiði
hjá Öldu Dís Arnarsdóttur í sum-
ar sungu fyrir gesti. Að sjálfsögðu
voru veitingar í boði eins og í öllum
betri afmælisveislum og var boð-
ið upp á popp, grillaðar pylsur og
svala. Hátíðinni lauk svo með því
að keppt var í Bubble bolta á vell-
inum. Dómari í leiknum var Krist-
inn Jónasson bæjarstjóri.
þa
Farið að tilmælum Vegagerðar varðandi
nýjan urðunarstað í Dölum
Sigursteinn Einarsson afhenti Þóru Olsen viðurkenningu.
Ungmennafélagið Reynir á
Hellissandi 80 ára
Starf sveitarstjóra í Hvalfjarðarsveit
gríðarlega eftirsótt