Skessuhorn - 16.07.2014, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Hjónin Hjörtur Sigurðsson og
Eygló Kristjánsdóttir eiga og reka
hestaleiguna á Stóra Kambi á Snæ-
fellsnesi sem nú er opin annað sum-
arið í röð. Þau segja að Stóri Kamb-
ur hafi verið tilraun til að búa í sveit
og sé sú tilraun enn í fullum gangi.
„Árið 2005 ákveðum við Hjörtur
að búa á Stóra Kambi eftir að hafa
verið tvö ár á Arnarstapa þar sem
Hjörtur gerir út bátinn Kviku yfir
vetrarmánuðina. Við höfum verið
lengi í hestamennsku og átt nokkra
hesta fyrir okkur sjálf. Það var svo
í fyrra að við ákváðum að fjölga
hjá okkur hrossum og bjóða upp
á hestaferðir,“ segir Eygló. Hjört-
ur hefur verið lengi á sjó og gert
ýmsar tilraunir með veiðar. „Ég hef
reynt ýmsar veiðar en ákvað að það
væri kominn tími til að prufa eitt-
hvað alveg nýtt. Ég vildi komast í
frí frá sjónum yfir sumartímann
og búa til sumarvinnu fyrir börnin
mín,“ segir Hjörtur en börn þeirra
hjóna, Sigurður og Matthildur, að-
stoða við hestaleiguna.
Þau á Stóra Kambi bjóða upp á
margvíslegar ferðir og leggja upp
með að allir fái þjónustu við hæfi.
„Það er alltaf farið niður á Breiða-
víkursand en þaðan förum við með
hópa í mismunandi ferðir. Það eru í
boði allt frá eins tíma ferðir til fjög-
urra tíma. Við erum nú með um 30
hross í okkar umsjón og ættu all-
ir sem koma að finna hest við sitt
hæfi. Það er ekki mikið af ferðum
sem pantaðar eru með löngum fyr-
irvara. Fólk er mikið að koma við
og taka ferð á staðnum eða pantar
með stuttum fyrirvara. Við reynum
að sjálfsögðu að verða við óskum
allra enda fá allir að fara í ferð sem
vilja. Við erum nú á okkar öðru ári
og það hefur gengið vonum framar.
Gestum hefur fjölgað frá því í fyrra
og við erum að fá hrós frá þeim.
Það spyrst síðan út og eykur vin-
sældir,“ segja þau Hjörtur og Eygló
um fyrstu reynsluna af leigunni.
Þarf ekki að kunna
meira en íslensku
Flestir sem koma eru erlend-
ir ferðamenn og segir Hjörtur að
það geri ekkert til þó hann tali lít-
ið annað en íslensku. „Við höfum
verið að fá til okkar fólk frá öllum
heimshornum. Flestir eru þó Þjóð-
verjar og Bandaríkjamenn. Ég kann
mjög lítið í ensku og þýsku en það
gerir ekkert til. Þjóðverjarnir eru
flestir vanir hestamenn og þurfa
flestir litla tilsögn. Börnin okkar
hafa svo verið að fara með fjölda
hópa og þau tala ensku alveg reip-
rennandi. Það er því ekkert stórmál
þótt ég geti ekki talað við alla gesti.
Ég hins vegar segi oft bara okei og
bless,“ segir Hjörtur, léttur í bragði
um tungumálakunnáttu sína.
Hestaferðir í vondu
veðri vinsælar
„Vont veður getur verið gott fyr-
ir okkur. Ef það er rigning og skýj-
að sést Snæfellsjökull illa og þá fara
ferðamenn ekki upp á jökul en fara
frekar í stuttan reiðtúr hjá okkur. Ef
það er mikill vindur og vont í sjó-
inn er heldur ekki óalgengt að þeir
ferðamenn komi til okkar sem ella
hefðu farið á sjó. Við förum hins
vegar ekki út með fólk ef veðrið er
mjög slæmt enda ekkert skemmti-
legt í útsýnisferð ef fólk sér ekki
handa sinna skil,“ segir Hjörtur sem
vonar samt að það fari að stytta upp
nógu lengi til að geta slegið túnin.
Gott að vera lítið
fjölskyldufyrirtæki
Ásamt því að fara í reiðtúr í ein-
staklega fallegu umhverfi er gest-
um stundum boðið upp á kaffi
og veitingar á Stóra Kambi. „Við
viljum ekki hafa þetta of stórt.
Þetta er fjölskyldufyrirtæki og
við viljum að gestir okkar upp-
lifi persónulega þjónustu. Þetta
er mjög skemmtilegt starf. Við
hittum nýtt fólk á hverjum degi
og það lætur vel af okkar þjón-
ustu. Þó að þetta sé aðeins annað
sumarið sem við erum með leig-
una höfum við verið að fá fólk
til okkar aftur og er það sérstak-
lega ánægjulegt. Við hljótum því
að vera að gera eitthvað rétt og
höfum engin sérstök áform um
að breyta því,“ segir Eygló að
lokum.
jsb
Fyrirtækið Brúnegg ehf hafa fest
kaup á jörðinni Stafholtsveggjum II
í Borgarbyggð. Fyrirtækið er tíu ára
gamalt og hefur fyrir starfsstöðvar í
Mosfellssveit, Kjalarnesi og í Kjós.
Umsjónarmaður búsins á Stafholts-
veggjum er Kristín Elísabet Möller
en eigendur Brúneggs eru bræðurn-
ir Kristinn Gylfi og Björn Jónssynir
frá Brautarholti á Kjalarnesi. Krist-
inn Gylfi sagði í samtali við Skessu-
horn að þeir hefðu verið að leita
að jörð til að auka við starfsemina
þegar í ljós kom að Stafholsveggir
II voru til sölu. Er gengið hafði ver-
ið frá kaupum var farið í að breyta
húsum sem fyrir voru á staðnum og
hófst framleiðsla núna í júní. Þeg-
ar starfsemin verður komin í fullan
gang verða um 14-15 þúsund varp-
hænur á Stafholtsveggjum en í dag
eru þær um fimm þúsund.
Vistvæn egg
Kristinn Gylfi segir að um vist-
væna framleiðslu sé að ræða. „Við
erum með allar okkar hænur aldar
upp á gólfi en ekki í búrum. Það er
mjög mikilvægt þegar kemur að því
að halda framleiðslunni vistvænni.
Þær ganga frjálsar um gólfin, leggj-
ast á hreiður og fara daglega í ryk-
bað á gólfinu. Það er nauðsynlegur
hluti af daglegri þörf hænsna sem
þær geta ekki gert í búrum. Við
erum því að framleiða undir vist-
vænum vörumerkjum.
Töluverð söluaukning
á eggjum
Margt kemur til að töluverð aukn-
ing hefur orðið í eggjasölu. Krist-
inn Gylfi skýrir það nánar. „Egg eru
t.d. ekki óholl með tilliti til kólest-
eróls eins og einu sinni var haldið
fram. Svo hafa sprottið upp ýmsir
matarkúrar þar sem egg eru mikið
notuð. Einnig notar fólk sem mikið
stundar líkamsrækt mikið af eggjum
og jafnvel hreina eggjahvítu í ýmis-
konar búst. Fleiri ferðamenn þýð-
ir einnig meiri eggjaneyslu. Marg-
ir hótelhaldarar bjóða sem dæmi
upp á morgunverð sem er ríkur af
eggjum, matreiddum á margvísleg-
an máta. Svo er fátt eða ekkert eins
ferskt og nýorpið egg og þau eru
afar hagkvæmur kostur þegar kem-
ur að innkaupum. Hollur og sað-
samur matur. Fullt hús matar, eins
og einu sinni var sagt.“
Eggin á markað
innan viku
Eggin frá Stafholtsveggjum fara á
markað 5-7 dögum eftir að hæn-
an hefur verpt þeim. Eggjunum
er pakkað í Brautarholti enn sem
komið er en þau haldast fersk í 6-8
vikur í kæli. Kristinn Gylfi segir
að reyndar sé ekkert gott að fá ný-
orpið egg því þá sé svo erfitt að ná
skurninni af egginu ef á til dæmis
að sjóða þau og nota ofan á brauð.
Það skipti auðvitað engu máli ef
á að brjóta eggið. Stefnt er að því
að egg frá Stafholtsveggjum fari á
markað á Vesturlandi. En Brún-
egg selur í allar matvöruverslan-
ir á svæðinu, hvort sem þær heita
Nettó, Bónus, Krónan eða eitthvað
allt annað.
Stefnt að fleiri
starfsmönnum
Fram hefur komið að Kristín Elísa-
bet Möller sér um búskapinn á
Stafholtsveggjum. Eins og staðan
er í dag er hún eini starfsmaður-
inn á búinu og vinnur því alla daga
vikunnar, en maður hennar, Jonni
Jóhannes Jóhannesson, aðstoð-
ar stundum konu sína í vinnunni.
Hænur vita lítið um það hvort sé
þriðjudagur eða sunnudagur. „Við
stefnum að því að ráða fleiri starfs-
menn,“ segir Kristinn Gylfi að-
spurður. „Við viljum gjarnan eiga
gott samstarf við Borgfirðinga og
ráða heimafólk til vinnu. Hér gætu
orðið tvo stöðugildi þegar allt verð-
ur komið á fulla ferð, þótt fleiri
manneskjur gætu gegnt því.“
Kristín segir skemmtilegt að vera
aftur farin að hugsa um hænur. „Við
Kristinn Gylfi erum systrabörn og
síðast þegar ég starfaði á hænsnabúi
var það fyrir mörgum árum, ein-
mitt í Brautarholti, þar sem hann
er fæddur og uppalinn. Mér finnst
einnig ánægjulegt að hænsnabú sé
aftur komið í Borgarfjörðinn. Held
að það geti verið um þrjátíu ár síð-
an slíkt bú var starfrækt hér síðast.“
Kristín Elísabet sagði jafnframt að
almennt leggist starfið mjög vel
í sig. Og ánægjulegt væri að fá að
vera þátttakandi í svona uppbygg-
ingarstarfi.
bgk
Annað sumar hestaleigunnar á Stóra Kambi gengur vel
Hestaleigan á Stóra Kambi er fjölskyldufyrirtæki. Hér sjást, frá vinstri, Matthildur Hjartardóttir, Hjörtur Sigurðsson, Eygló
Kristjánsdóttir og Leifur Hjartarson ásamt tveimur af þeim 30 hestum sem eru á Stóra Kambi.
Egg frá Stafholtsveggjum á markað á Vesturlandi
Kristín Elísabet Möller tekur hér egg
og raðar í bakka, enda hvert þeirra
meðhöndlað oft áður en neytandinn
fær vöruna í hendur.
Kristinn Gylfi Jónsson og Kristín
Elísabet Möller í hænsnabúinu á
Stafholtsveggjum
Það væsir ekki um hænurnar og eins og sjá má geta þær spígsporað um gólfin að
vild.
Brúneggin tilbúin í verslanir á Vesturlandi.