Skessuhorn - 16.07.2014, Síða 15
15MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Að óska eftir aðildarviðræðum við ESB og leggja kosti og galla aðildar undir dóm þjóðarinnar.
Að auka aflaheimildir í þorski um 30 til 40 þúsund tonn og leigja þær á frjálsum markaði.
Að stöðva útflutning á óunnum gámafiski, en slíkt myndi skapa fjölmörg störf hér á landi.
Að auðlindum hafsins verði komið aftur í eigu þjóðarinnar.
Að afnema verðtrygginguna við fyrsta tækifæri.
Að koma með skýra aðgerðaáætlun um hvernig á að hjálpa skuldsettum heimilum. Þessar vikurnar er
þeim að blæða út.
Að koma með skýra aðgerðaáætlun um hvernig á að örva og efla atvinnulífið.
Að atvinnuleitendum verði heimilt að stunda nám á meðan þeir eru á atvinnuleysisbótum.
Að koma okkar sjónarmiðum vegna deilna við Breta vel á framfæri við alþjóðasamfélagið.
Að misbjóða ekki þjóðinni með því fá Breta til að sinna hér loftrýmisvörnum á sama tíma og þeir telja
okkur vera hryðjuverkamenn.
Að skipt verði út stjórnendum í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu enda virðast þeir aðilar ekki njóta
trausts og trúnaðar íslensku þjóðarinnar.
Að stórefla upplýsingaflæði til almennings. Íslenska þjóðin vill vita, hvað er verið að gera - hvað er búið að
gera og hvað hyggist þið gera.
Að fenginn verði óháður erlendur aðili til að rannsaka hrun bankakerfisins og þar verði hverjum steini velt
við.
Að leitað verði allra leiða til að frysta eigur þeirra útrásarvíkinga sem stóðu að útrás bankanna á meðan
rannsókn fer fram á hruni bankakerfisins.
Að allir þeir aðilar sem skuldsettu íslenska alþýðu uppí rjáfur á erlendri grundu verði látnir sæta ábyrgð og
einnig þeir eftirlitsaðilar sem brugðust sínu hlutverki.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness
skorar á ríkisstjórn Íslands
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness
www.vlfa.is
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
Verkalýðsfélag Akraness
Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 430 9900 | Fax 430 9901 | skrifstofa@vlfa.is
Kynningarfundur á kjarasa ningi við
Samband íslenskra sveitarfélaga
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
www.vlfa.is
Að óska eftir aðildarviðræðum við ESB og leggja kosti og galla aðildar undir dóm þjóðarinnar.
Að auka aflaheimildir í þorski um 30 til 40 þúsund tonn og leigja þær á frjálsum markaði.
Að stöðva útflutning á óunnum gámafiski, en slíkt myndi skapa fjölmörg störf hér á landi.
Að auðlindum hafsins verði komið aftur í eigu þjóðarinn r.
Að afnema verðtrygginguna við fyrsta tækifæri.
Að koma með skýra aðgerðaáætlun um hvernig á að hjálpa skuldsettum heimilum. Þessar vikurnar er
þeim að blæða út.
Að koma með skýra aðgerðaáætlun um hvernig á að örva og efla atvinnulífið.
Að atvinnuleitendum verði eimilt að stunda nám á meðan þeir eru á atvinnuleysisbótum.
Að koma okkar sjónarmiðum vegna deilna við Breta vel á framfæri við alþjóðasamfélagið.
Að misbjóða ekki þjóðinni með því fá Breta til að sinna hér loftrýmisvörnum á sama tíma og þeir telja
okkur vera hryðjuverkamenn.
Að skipt verði út stjórnendum í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu enda virðast þeir aðilar ekki njóta
trausts og trúnaðar íslensku þjóðarinnar.
Að stórefla upplýsingaflæði til almennings. Íslenska þjóðin vill vita, hvað er verið að gera - hvað er búið að
gera og hvað hyggist þið gera.
Að fenginn verði óháður erlendur aðili til að rannsaka hrun bankakerfisins og þar verði hverjum steini velt
við.
Að leitað verði allra leiða til að frysta eigur þeirra útrásarvíkinga sem stóðu að útrás bankanna á meðan
rannsókn fer fram á hruni bankakerfisins.
Að allir þeir aðilar sem skuldsettu íslenska alþýðu uppí rjáfur á erlendri grundu verði látnir sæta ábyrgð og
einnig þeir eftirlitsaðilar sem brugðust sínu hlutverki.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness
skorar á ríkisstjórn Íslands
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness
www.vlfa.is
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
Verkalýðsfélag Akraness
Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 430 9900 | Fax 430 9901 | skrifstofa@vlfa.is
Félagsmenn sem starfa eftir kjarasamningi
sem Verkalýðsfélag kra ess hefur gert
vi Samband íslenskr sveitarféla og
undirritaður var þann 11. júlí sl. athugið!
Kynningarfundur verður haldinn fi mtudaginn 17. júlí
kl. 18:00 á Gamla Kaupfélaginu, Akranesi og eru þeir félagar
sem starfa efti samningnum eindregið hvattir til að mæta.
Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu félagsins og
fá kynningu og nánari upplýsingar.
Kosið verður um samninginn með póstatkvæðagreiðslu og
hafa kjörgögn þegar verið póstlög ásamt kynningarefni.
Atkvæð greiðslu lýkur mánudaginn 28. júlí og þurfa atkvæða
seðlar að hafa borist kjörstjórn félagsins, Sunnubraut 13,
300 Akranesi fyrir kl. 14:00 þann dag.
Póststimpill gildir ekki og eru félagsmenn því beðnir að koma
kjörseðlum tímanlega í póst.
Berist kjörgögn ekki til félagsmanns sem
telur sig hafa atkvæðisrétt um samninginn,
er viðkomandi félagsmanni bent á að hafa
samband við skrifstofu félagsins hið fyrsta.
Kjörstjórn Verkalýðsfélags Akraness
Fjölbreytt dagskrá frá kl. 12.00 til 22.00
út um alla sveit
Ýmislegt skemmtilegt verður á boðstólum sem hægt er að fá
nánari upplýsingar um á kjos.is og „Kátt í Kjós“
Á túninu við Félagsgarð munu ungir bændur etja kappi sín á
milli kl. 14.00 – 16.00 um titilinn Ungi bóndi ársins 2014
Kátt í
KJÓS
Laugardaginn 19. júlí 2014
VELKOMIN Í KJÓSINA
OG NJÓTIÐ DAGSINS
MEÐ OKKUR
KJÓSARHREPPUR
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Húsvíkingurinn Guðrún Björg
Aðalsteinsdóttir var nýlega ráðin
skólameistari Menntaskóla Borgar-
fjarðar. Hún tekur við af Kolfinnu
Jóhannesdóttur sem tekur brátt við
starfi sveitarstjóra í Borgarbyggð.
Guðrún Björg er viðskiptafræðing-
ur frá Bifröst og tók kennslurétt-
indin við Háskólann á Akureyri.
Hún hefur einnig lokið meistara-
námi í alþjóðlegum viðskiptum frá
Bifröst og hefur starfað við skól-
ann undanfarin ár. „Ég flutti árið
2003 ásamt þáverandi eiginmanni
mínum og tveggja ára syni okkar á
Bifröst í Borgarfirði þar sem ég hóf
nám í viðskiptafræði. Þremur árum
seinna fékk ég vinnu við Háskólann
á Bifröst í nemendaskránni þeg-
ar maðurinn minn var nýbyrjaður í
námi. Ég fékk að þroskast og þró-
ast í starfi þar jafnt og þétt og hef
sinnt ýmsum störfum innan skól-
ans,“ segir Guðrún Björg í samtali
við Skessuhorn.
Hún segist hafa tekið sér pásu frá
Bifröst og farið á Húsavík frá 2012
til 2013. „Þar starfaði ég hjá Orku-
veitu Húsavíkur. Það var fróðleg-
ur og góður tími en Borgarfjörður-
inn kallaði mig heim. Ég réði mig
sem forstöðumann Háskólagáttar
og bætti fljótlega á mig starfi fram-
kvæmdastjóra kennslu og þjón-
ustu.“ Spurð um hvers vegna hún
sótti um starfið sem skólameistari
MB segir hún að henni hafi þótt
það eðlileg framvinda fyrir sinn
starfsframa. „Auk þess hef ég mik-
inn áhuga á að vinna að mennta-
málum og að vinna með ungu fólki
finnst mér rosalega spennandi. Mér
fannst hreinlega sem verið væri að
auglýsa eftir mér. Ég er metnaðar-
full manneskja og vil setja markið
hátt.“
Vill reyna að tengja
skólastigin
Guðrún Björg segist hlakka mikið
til að hefja störf við menntaskólann.
„En fyrst og fremst hlakka ég til að
kynnast því góða fólki sem starfar
við MB, ræða við það og átta mig á
hver staðan er nákvæmlega. Svo vil
ég eiga gott samstarf við alla aðila
hvað varðar mögulegt umbótastarf
innan skólans og mögulegar breytt-
ar áherslur. Af því sem ég hef þegar
kynnst þá get ég ekki séð annað en
að MB sé góður skóli og þar hef-
ur mikið og gott starf verið unnið.“
Hún segist hrifin af því kerfi þar
sem nemendur geta útskrifast eftir
þrjá vetur í námi og hinu svokall-
aða símati eða vörðum. Hún segir
formleg próf ekki endilega eiga allt-
af við. „Mér finnst samt mikilvægt
að nemendur kynnist fjölbreyttum
námsmatsaðferðum, til að undirbúa
sig fyrir háskólanám. Ég vil einnig
reyna að tengja skólastigin betur í
góðu samstarfi við viðeigandi aðila,
svo sem við grunnskóla í Borgar-
byggð, Símenntunarmiðstöð Vest-
urlands og háskólana í sveitarfé-
laginu. Þar á ég nokkuð gott tengsl-
anet og hlakka til að finna flöt á
slíkri tengingu,“ útskýrir hún. Að
öðru leyti telur Guðrún mikilvægt
að sinna þeim nemendum sem eru
við skólann eins vel og kostur er.
„Ég tel að ánægðir nemendur séu
besta auglýsing skólans. Mig lang-
ar einnig að kynna skólann betur í
nærsveitum Borgarness, með það í
huga að fá fleiri nemendur úr sveit-
unum í skólann. Nú er skólinn og
sveitarfélagið búið að festa kaup á
húsnæði sem mun þjóna hlutverki
heimavistar. Það mun styrkja þann
lið.“
Hlakkar til að flytja í
Borgarnes
Guðrún Björg mun flytja í Borg-
arnes í haust ásamt sonum sínum,
Fannari Óla 13 ára og Jökli Smára 6
ára. „Mér finnst mikilvægt að skóla-
meistari MB sé sýnilegur í samfé-
laginu og því vil ég búa í Borgar-
nesi og taka þátt í daglegu lífi þar.
Við fjölskyldan flytjum því í haust
og strákarnir fara í Grunnskólann í
Borgarnesi. Við erum bara að leita
okkur að leiguhúsnæði sem hæf-
ir okkur. Við hlökkum mikið til
að taka þátt í samfélaginu í Borg-
arnesi, strákarnir æfa fótbolta og
körfubolta og eiga nú þegar nokkra
vini á sínum aldri úr Skallagrími,“
segir Guðrún Björg og bætir því við
að henni hafi líkað mjög vel að búa
á Bifröst. „Drengjunum leið einnig
vel þar. Það sem helst vantaði upp
á var tækifærið til að stunda íþrótt-
ir af kappi og því hlökkum við mik-
ið til að þurfa ekki að takmarka það
eins mikið vegna keyrslu og við
þurftum að gera þar.“ Hún segir
Borgarbyggð hafa upphaflega orð-
ið fyrir valinu þar sem hún stundaði
nám við Bifröst og vann síðar þar.
Á þeim tíma kynntist hún mikið af
fólki og eignaðist góða vini. „Ég
hlakka því mikið til að flytja í Borg-
arnes og vera í nánum samskiptum
við vini mína. Og auðvitað að sinna
starfi skólameistara af trúmennsku
og dugnaði,“ segir Guðrún Björg
Aðalsteinsdóttir skólameistari MB
að lokum.
grþ
Nýlega barst Ungmennafélaginu
Íslendingi í Borgarfirði staðfesting
frá forsætisráðuneytinu um frið-
lýsingu Hreppslaugar, sem sótt var
um síðasta haust. Friðlýsingin tek-
ur til steinsteypts hluta upphaf-
legs laugarmannvirkis en nær ekki
til seinni tíma breytinga eða þjón-
ustuhúss. Ulla R Pedersen formað-
ur Umf. Íslendings segir að frið-
lýsingin staðfesti upplifun félags-
manna í Íslendingi fyrir þýðingu
Hreppslaugar fyrir félagið og sam-
félagið. „Við fögnum því að fá frið-
lýsinguna. Laugin hefur verið baggi
á félaginu en þarna er tekið af skar-
ið með verndun hennar. Rekstur
sundlauga er kostnaðarsamur og
við höfum sótt um styrki til margra
aðila á hverju ári, þar á meðal sveit-
arfélagsins. Það er mikil þörf á að
ráðast í viðhald á Hreppslaug og
vonandi hjálpar þetta okkur að fá
styrki til þess. Fólk er sammála um
að Hreppslaug er dásamlegur stað-
ur og í fyrra komu um 3600 gestir á
níu vikna opnunartímabili sem telst
sjálfsagt nokkuð gott,“ segir Ulla R
Pedersen.
Að mati Minjastofnunar hef-
ur Hreppslaug gildi fá sjónarhóli
byggingarlistar sem óvenjulegt
steinsteypumannvirki, hannað af
Sigurði Björnssyni yfirsmið Hvít-
árbrúar. Í friðlýsingarplagginu segir
einnig að laugin hafi mikið menn-
ingarsögulegt gildi sem vitnisburð-
ur um félags- og íþróttastarf ung-
mennafélaganna og sem mikilvæg-
ur staður í menningar- og félags-
lífi héraðsins. Mannvirkið sitji fal-
lega í landinu og tengist umhverfi
sínu á áhrifamikinn hátt. Ung-
mennafélagið Íslendingur réðist í
byggingu Hreppslaugar árið 1928.
Mannvirkið reis í landi Efri-Hrepps
í Skorradal og er byggt samkvæmt
þeim tíðaranda sem þá ríkti. Með-
al annars var hesthús reist undir
laugarhúsinu við hlið búningsklefa.
Vegna ónógs viðhalds og peninga-
leysis var Hreppslaug ekki opin al-
menningi á tímabili en fyrir 80 ára
afmæli laugarinnar árið 2008 réð-
ust félagsmenn í að hressa upp á
mannvirkin með góðum stuðningi
Skorradalshrepps. Í byrjun sum-
ars er jafnan skólasund í Hrepps-
laug og sundæfingar þar stundaðar.
Þar eru haldin af og til svokölluð
Ármót, þar sem sundfólk frá ung-
mennafélögunum Íslendingi, Da-
grenningu, Reykdælum og Staf-
holtstungum reyna með sér. Var
Ármótið í ár haldið þar sl. mánu-
dagskvöld. Þá er Hreppslaug opin
almenningi og oft þar fjör í kring-
um fóninn að sögn Ullu. Ekki síst á
fimmtudagskvöldum en þá er laug-
in opin frá kl. 19-23 og tónlist spil-
uð milli klukkan 21 og 22.
þá/ Ljósm. Helga Jensína
Svavarsdóttir.
Hreppslaug er í góðu ástandi miðað við aldur. Myndin er frá Ármótinu á
laugardaginn.
Friðlýsing Hreppslaugar staðfest
Það var glaður hópur sem kom saman í Hreppslaug sl. mánudagskvöld. Þar fór
fram Ármót sem jafnan er haldið árlega til skiptist hjá ungmennafélögum í upp-
sveitum Borgarfjarðar. Þar kemur saman og reynir með sér í ýmsum sundgreinum
ungt íþróttafólk frá Íslendingi, Dagrenningu, Reykdælum og Stafholtstungum.
Fannst að verið væri að auglýsa eftir sér
Rætt við Guðrúnu Björgu Aðalsteinsdóttur, nýjan skólameistara
Menntaskóla Borgarfjarðar
Guðrún Björg ásamt sonum sínum Fannari Óla og Jökli Smára. Ljósm. Lukasz
Machul.