Skessuhorn - 23.07.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 30. tbl. 17. árg. 23. júlí 2014 - kr. 600 í lausasölu
„Við mælum með því að þú
setjir ekki meira en ��� af
ráðstöfunartekjum í húsnæði,
aðallega vegna þess að það
er dýrt að lifa.“
Jóhanna Hauksdóttir
fjármálaráðgjafi
ARION
ÍBÚÐALAUSNIR
Allt um íbúðalán á arionbanki.is
Fæst án lyfseðils
LYFIS
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 852 1601
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
OPIÐ
12.00 – 22.00
Í HJARTA BÆJARINS VIÐ AKRATORG
Matar- og antikmarkaður
á Akranesi í sumar
- Ekta markaðsstemning!
Opið alla laugardaga
kl. 13 - 17
Hér gæðir erlendur ferðamaður sér á hörpudiski beint úr skelinni í ferð með Pétri í Sæferðum um undraheima Breiðafjarðar.
Blaðamaður Skessuhorns brá sér í ferð eins og lesa má um á bls. 16. Ljósm. jsb.
Skessuhorn kemur næst út miðviku-
daginn 30. júlí, þ.e. í næstu viku. At-
hygli er vakin á því að vegna sumar-
leyfa starfsmanna kemur EKKI út
blað miðviku-
daginn 6.
á g ú s t .
H e f ð
er fyrir
því frá
upphafi
ú t g á f u
S k e s s u -
horns að gefa
öllu starfsfólki frí vikuna sem nær
yfir verslunarmannahelgi. Vakt
verður engu að síður á vef Skessu-
horns þurfi fólk að koma áríðandi
tilkynningum á framfæri. Starfs-
menn koma til vinnu aftur 6. ágúst
og fyrsta blað í ágúst kemur út mið-
vikudaginn 13. ágúst.
mm
Hið bandaríska fyrirtæki Silicor Ma-
terials tilkynnti í síðustu viku með
formlegum hætti að það hyggist
reisa og reka sólarkísilverksmiðju í
landi Klafastaða við Grundartanga.
Framkvæmdir munu hefjast strax í
haust og stefnt að því að verksmiðj-
an hefji rekstur sumarið 2017. Ís-
lensk stjórnvöld, bæði ríki og skipu-
lagsyfirvöld í Hvalfjarðarsveit, hafa
áður tekið afar jákvætt í málaleitan
fyrirtækisins um að reisa verksmiðj-
una á Grundartanga. Á það jafnt við
um ívilnanir í skattamálum sem og
skipulagsmál. Eins og fram kom í ít-
arlegri fréttaskýringu Skessuhorns í
lok maí, þegar skrifað var undir vilja-
yfirlýsingu milli Silicor materials og
Faxaflóahafna um framgang verk-
efnisins, er hér um stóriðju að ræða
á íslenskan mælikvarða. Verksmiðj-
an á að geta framleitt 17-19 þúsund
tonn af sólarkísil á ári og skapar full-
byggð ríflega 400 störf. Þá hefur ver-
ið staðfest að Arion banki mun veita
lán fyrir byggingu fyrsta hluta verk-
smiðjunnar og að Orka náttúrunn-
ar, dótturfyrirtæki OR, ásamt Lands-
virkjun muni sjá verksmiðjunni fyr-
ir raforku. Áætlað er að uppbygging
Silicor materials muni kosta um 77
milljarða króna.
Theresa Jester forstjóri Silicor ma-
terials segir nokkrar ástæður fyrir því
að Grundartangi á Íslandi hafi orðið
fyrir valinu. Nefnir hún að innviðir í
framleiðslu og flutningi séu á heims-
mælikvarða hér á landi. Landið skaff-
ar ódýra endurnýjanlega orku og
segir Theresa að með því móti geti
Silicor materials framleitt eina raun-
verulega græna kísilinn í heiminum.
Silicor materials hefur yfir að ráða
einkaleyfisvarðri framleiðsluaðferð
á sólarkísil. Krafist verður sérfræði-
þekkingar þriðjungs til helmings
starfanna sem þarna munu vinna.
Eins og fram hefur komið nýtist
græn orka í umhverfisvæna starfsemi,
mannfreka, en engu að síður hóflega
orkukrefjandi. Góð hafnaraðstaða á
Grundartanga er talinn lykillinn að
vali Silicor materials á Grundartanga
umfram önnur svæði hérlendis. Þá er
framleiðsla sólarkísils í þessari verk-
smiðju sérstök að því leyti að efnið er
hreinsað með bræddu áli og það síð-
an selt til framleiðenda sólarrafhlaða.
Í framtíðinni er stefnt að hráefnis-
kaupum frá fyrirtækjunum sem þeg-
ar eru á Grundartanga.
Stjórnvöld afar velviljuð
Fyrirhuguð lóð undir verksmiðj-
una er í landi Klafastaða, sem er
land norðan við hafnarmannvirkin
og verksmiðju Norðuráls á Grund-
artanga. Fyrirtækið mun fá úthlutað
frá Faxaflóahöfnum, eiganda Klafa-
staða, um þrjátíu hektara landi en af
því munu verksmiðjuhúsin fullbúin
taka 9,3 ha. Skipulagsmál á Grund-
artanga heyra undir Hvalfjarðarsveit.
Fyrrum sveitarstjórn þar lýsti fyr-
ir kosningar í vor yfir stuðningi við
hugmyndir um byggingu verksmiðj-
unnar og tók jákvætt í ívilnun vegna
byggingar hennar. Ríkisstjórnin mun
einnig veita ívilnanir en þær geta fal-
ist í lækkun tryggingagjalds, tekju-
skatts og fasteignaskatts til ákveðins
tíma. Hugmyndir Silicor materials
byggjast á að þegar í október á þessu
ári geti byggingarframkvæmdir haf-
ist á Grundartanga. Ef skipulags-
mál munu ekki tefja framkvæmdir er
stefnt á að byrjað verði á byggingu
fyrri áfanga verksmiðjunnar í októ-
ber á þessu ári og honum lokið um
mitt árið 2016. Síðari áfanginn verði
síðan tilbúinn síðari hluta árs 2017.
Ef áætlanir um byggingu ganga eftir
mun framleiðsla verða komin í gang
um mitt ár 2017, eins og áður segir.
Viljayfirlýsing um orku-
sölu til sólarkísilvers
Fulltrúar Orku náttúrunnar, dóttur-
fyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur, og
Silicor Materials hafa skrifað und-
ir viljayfirlýsingu um sölu á raforku
til fyrsta áfanga fyrirhugaðs sólarkís-
ilvers. Yfirlýsingin nær til 35 mega-
vatta rafafls og á afhending þess að
geta hafist 2016. „Engin áform um
byggingu nýrra virkjana fylgja sam-
komulaginu. Á næstu misserum renna
út samningar um orkusölu til Lands-
virkjunar, sem Orkuveita Reykjavíkur
gerði á árunum 1997 og 2000. Með
viljayfirlýsingunni er áformað að ráð-
stafa þeirri orku til sólarkísilversins.
Leiði viljayfirlýsingin til samnings
hækkar það verð sem Orka náttúr-
unnar fær fyrir rafmagnið,“ segir í til-
kynningu frá ON. mm
Sólarkísilverksmiðju valinn staður á Grundartanga
Theresa Jester forstjóri Silicor materials og Gísli Gíslason hafnarstjóri kynntu í
lok maí fyrirhugaða framkvæmd. Hér eru þau í landi Klafastaða þar sem nú hefur
verið ákveðið að verksmiðjan rísi.
Útgáfan
næstu vikur