Skessuhorn - 30.07.2014, Blaðsíða 13
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2014
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudaginn 14. ágúst
Föstudaginn 15. ágúst
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2014
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & smur, Nesvegi 5
Fimmtudaginn 7. ágúst
Föstudaginn 8. ágúst
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
SKE
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
www.skessuhorn.is
Líkt og undanfarin ár fer starfsfólkið og útgáfan
í viku frí yfir verslunarmannahelgina og KEMUR
ÞVÍ EKKI ÚT BLAÐ miðvikudaginn 6. ágúst.
Fyrsta blað eftir sumarleyfi kemur síðan út
miðvikudaginn 13. ágúst.
Ef koma þarf áríðandi tilkynningu á vef, vinsamlega hafið
samband í síma 894 8998.
Útgáfan
í næstu
viku
Starfsfólk Skessuhorns.
Enn einn bíllinn útaf við Grófarvegamót
Vegamótin við Gróf í Reykholts-
dal eru vafalítið í hópi þeirra staða
sem flestir aka út af. Á miðviku-
daginn í síðustu viku fór jeppa-
bifreið með áföstu fellihýsi út af
á þessum stað á Borgarfjarðar-
brautinni. Skemmdist vagninn lít-
ilsháttar. Dagur Andrésson garð-
yrkjubóndi og ábúandi í Gróf seg-
ir marga bíla hafa farið út af á þess-
um sama stað í sumar og fjölmarga
áður, eða allt frá því vegamótunum
var breytt fyrir um tveimur árum.
Þessi óhöpp eru nær öll á sömu
lund. Ökumenn sem koma niður
hæðina framhjá Deildartungubæj-
unum draga ekki úr hraðanum þeg-
ar þeir nálgast nýleg T-vegamótin
og lenda því út af. Í þessum hópi
eru jafnt heimamenn sem og þeir
sem minna þekkja til. Eftir að ný
brú var byggð yfir Reykjadalsá var
ný vegtenging tekin í notkun norð-
ar brúar. Breyttist þá lega Borgar-
fjarðarbrautar og ríkjandi aksturs-
stefna er nú í Reykholt í stað þess
að liggja upp hæðina við Deildar-
tungu áleiðis í Hvítársíðu. Dagur
í Gróf segir það rannsóknarefni í
umferðarsálfræði hvernig standi á
því að svo margir aki þarna útaf á
sama staðnum. Vegagerðin hafi í
febrúar síðastliðnum, í kjölfar fjöl-
margra útafkeyrslna, lofað að bæta
úr, þannig að ökumenn hafi frek-
ar varan á sér. Það loforð hafi hins
vegar ekki verið efnt.
Buldurspelir enn
ókomnir
Í frétt Skessuhorns í febrúar síð-
astliðnum sagði Ingvi Árnason,
deildarstjóri viðhalds og þjónustu
hjá Vegagerðinni, að allar merk-
ingar við gatnamótin væru eðli-
legar og í samræmi við reglugerð-
ir. Hins vegar væri ljóst að eitthvað
í umhverfinu við gatnamótin gerði
það að verkum að ökumenn hefðu
tilhneigingu til að taka seint eftir
þeim. „Við þessu ætlar Vegagerð-
in að bregðast,“ sagði Ingvi í fyrr-
greindri frétt. „Og þegar vora tek-
ur segir Ingvi að stefnt sé á að setja
yfirborðsmerkingar á veginn, svo-
kallaða buldurspeli. Um er að ræða
upphleyptar og málaðar þverrend-
ur sem munu þjóna þeim tilgangi
að vekja ökumenn til vitundar um
að gatnamót séu framundan. Að
auki er stefnt á að koma upp bið-
skyldumerki 200 metrum frá gatna-
mótunum.“ Buldurspelir eru enn
ókomnir og áfram fipast ökumenn
á akstri sínum, dolfallnir yfir fallega
umhverfinu. mm
Jeppi með fellihýsi fór út af veginum sl. miðvikudag.
Þessi mynd var tekin á vegamótunum í febrúar 2014 og sýnir fjölfarinn troðning-
inn þar sem bílar hafa steypst framaf vegamótunum.
Orgel- og trompettónleikar í Reykholtskirkju
Stéphane Rigat píanóleikari og
organisti og Olivier Gillet tromp-
etleikari frá Frakklandi halda tón-
leika í Reykholtskirkju sunnudag-
inn 3. ágúst kl. 16. Á efnisskránni
eru verk eftir Torelli, Vivaldi,
Hummel and Böhme.
Stéphane Rigat stundaði nám í
píanóleik við Conservatoire Natio-
nal de Region de Marseille þar sem
hann útskrifaðist með láði og í org-
elleik hjá Annik Chevalier-Naddéo.
Síðar stundaði hann nám við Con-
servatoire National de Region de
Paris og kynnti sér tónlist fyrri tíma
hjá André Rossi við Conservatoire
National de Marseille. Hann hefur
tekið þátt í fjölda masterclass nám-
skeiða og hlotið fjölda viðurnkenn-
inga. Stéphane er organisti í Lam-
besc þar sem hann leikur á sögulegt
orgel sem gert var af J. Isnard 1789
og einnig við Saint-Joseph kirkjuna
í Marseille.
Olivier Gillet útskrifaðist með
láði frá Ecole Superieure Departe-
mentale de l’Yonne og hlaut æðstu
viðurkenningu Conservatoires des
Hauts-de-Seine. Olivier Gille hef-
ur líka hlotið fjölda viðurkenninga
á ferli sínum sem og stóðst inn-
tökupróf sem flugelhorn einleik-
ari í French Marines Orchestra.
Hann stofnaði trompetkvartettinn
Resonance og lék með Big-Band
BF de la Malmaison um skeið. Oli-
vier Gillet er mjög vinsæll gestaein-
leikari og eftirsóttur tónlistarmað-
ur og hefur leikið með fjölmörgum
hljómsveitum í París og víðar. Frá
2010 hefur hann helgað sig kennslu
og rekstri Ecole Municipale de
Musique, Danse et Art Dramatique
d’Oraison.
-fréttatilkynning
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
Sólbakka 8 • Borgarnesi • ejiehf@simnet.is
Eiríkur 894 5151 • Ingólfur 892 8610
Sumarhús • Gluggar • Hurðir • Fög
Sk
es
su
ho
rn
2
01
3