Skessuhorn - 30.07.2014, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
435-1252 • 893-0688 • velabaer@vesturland.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
3
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is Hreppslaug • Skorradal • Borgarfirði • Sími: 437 0027
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
3
Hreppslaug í Skorradal
Opið til 10. ágúst 2014
Fimmtudaga og föstudaga
kl. 19.00 – 23.00
Helgar kl. 13.00 – 22.00
Öll almenn raflagnavinna
Sími: 431 1201 • rafstodin@simnet.is www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Dag ur í lífi...
Nafn: Þórður Sigurðsson
Starfsheiti/fyrirtæki:
Master Distiller fyrir
REYKA VODKA hjá Pu-
res Spirits. Svo er ég líka
Héraðslögreglumaður í
LBD og slökkviliðsmað-
ur hjá Slökkviliði Borgar-
byggðar.
Fjölskylduhagir/búseta:
Stoltur faðir fjögurra
barna, Þórunnar Birtu 13
ára tvíburanna Þorsteins Loga og
Þóru Sóldísar fimm ára og Krist-
jáns Fjeldsted eins árs.
Áhugamál: Skotíþróttir, skot-
veiðar, hestamennska og almenn
útivist.
Vinnudagurinn: Fimmtudagur
24. júlí 2014
Mætt til vinnu og fyrstu verk:
Mætti til vinnu kl. 10:00 en venju-
legur vinnudagur byrjar kl. 07:00
en vegna þess að ég á að vera í
sumarfríi svaf ég aðeins lengur.
Klukkan 10:00: Byrjaði á að fá
mér kaffibolla og ræsti svo gufu-
ketilinn, en við eimingu á vodk-
anum notum við gufu. Því næst
voru eimingartækin gerð tilbúin
og löguninni dælt í tækin en við
framleiðslu á REYKA eru notuð
“Carter head still” eimingartæki
og er hver lögun um 1800 lítrar
af 70% áfengi sem gefa okkur um
2800-3000 lítra af 40% vodka sem
er tilbúinn til átöppunar.
Um klukkan 11:30 er suðan kom-
in af stað og REYKA-spírinn far-
inn að verða til. Þá hefst ferli sem
er fólgið í eftirliti með að kæling-
in á búnaðinum sé rétt, en allt er
kælt með vatni, og að gufuþrýst-
ingurinn sé réttur. Þetta ferli tekur
fimm til sex tíma og að því loknu
er suðan búin. Á meðan eiming-
in fer fram notaði ég tækifærið til
þess að ganga frá umbúðum og
taka til í verksmiðjunni þar sem
verksmiðjan er lokuð vegna sum-
arleyfa. Vegna mikilla vinsælda og
eftirspurnar á REYKA þurfti ég
að framkvæma tvær suður þennan
daginn þar sem stór pöntun þarf
að sendast út í
heim um næstu
mánaðamót.
Hvenær var
hætt og hvað
var það síðasta
sem þú gerð-
ir í vinnunni:
Vi n n u d e g i n -
um lauk um kl.
20:30 og var það
svo seint vegna
þess að ég tók
tvær suður og byrjaði ekki fyrr en
kl. 10:00. Hefðbundinn vinnudag-
ur er frá kl. 07:00-15:30.
Fastir liðir alla daga: Fastir lið-
ir hjá mér þegar að verksmiðjan
er í gangi, er að setja af stað suðu
á REYKA og fara svo í þau störf
sem til falla við framleiðslu á öðr-
um tegundum. Ég vinn við hlið
mikils snillings sem heitir Finnur
Ingólfsson og er mjólkurfæðingur
og sér hann meira um pökkunina
og blöndunina á þeim tegundum
sem við erum að framleiða.
Hvað stendur upp úr eft-
ir vinnudaginn? Um sex þúsund
lítrar af REYKA VODKA hafa
orðið til eftir þennan vinnudag.
Var dagurinn hefðbundinn?
Ekki alveg, eins og fram hefur
komið.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi : Í september 2005.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Já, tvímælalaust.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Já, ég geri það alltaf og er
það ekki síst góðu samtarfsfólki að
þakka að maður hlakkar alltaf til
að mæta í vinnu.
Eitthvað að lokum. Ég er og verð
Mýramaður þangað til að ég dey!
Bruggara
Pennagrein
Hvern er verið að blekkja -
nýtt nafn á gjaldeyrishöftum?
Nú síðustu
daga hafa
bæði Sig-
mundur Dav-
íð og Bjarni
Benediktsson sagt að unnið sé að
losun gjaldeyrishafta og þess vænst
að það sjáist til botns í málinu fyrir
áramótin. Reyndar er það haft eftir
Bjarna á vef VB að krónan muni eft-
ir sem áður þurfa axlabönd. Þannig
að í framtíðinni munu gjaldeyris-
höftin heita axlabönd.
Sjálfsblekking þeirra félaga, for-
ystumanna ríkisstjórnarinnar, er
alger. Enda öllum ljóst að krón-
unni verður aldrei fleytt sem við-
urkenndum gjaldmiðli. Þau um-
mæli sem höfð voru eftir Bjarna
um axlabönd á myntina segja allt
sem segja þarf um það mál. Mun
líklegra er að axlaböndin dugi ekki
ein og sér, heldur þurfi belti með og
síðar bleyju, næst þegar verðgildi
krónunnar fellur eða sígur til hags-
bóta fyrir fáa útvalda, en á kostn-
að almennings. Það segir e.t.v. eitt-
hvað að Bjarni vildi í viðtali á Blo-
omberg ekki svara þeirri spurn-
ingu hversu mikið gengi krónunar
muni gefa eftir þegar og ef gjald-
eyrishöftin verða afnumin. En lík-
legt er að krónan muni falla, verð-
bólga aukast, vextir hækka, lánin
hækka og kjör almennings versna
þegar slakað verður á gjaldeyris-
höftunum.
Framsóknarflokkurinn fær þá
nýtt tækifæri til þess að leiðrétta
“ófyrirséða” hækkun vístölutryggða
lána og nota þá það sem eftir er af
síðustu kosningaloforðum. Gall-
inn við kosningaloforð Framsókn-
ar er að þau hafa tilhneigingu til
að rýrna hraðar en krónan eins og
dæmin sanna.
Við ættum að hætta þessu sjálfs-
blekkingum. Ef við viljum halda í
krónuna sem gjaldmiðil þá þýðir
það lokað hagkerfi, gjaldeyrishöft,
sama hvaða nafni þau verða nefnd,
mikinn kostnað við gjaldeyrisvara-
sjóð til verndar krónunni, óhag-
kvæmt og dýrt fjármálakerfi, háan
vaxtakostnað heimila og fyrirtækja
og efnhagslegan óstöðugleika sem
eins og áður mun enda með gjald-
fellingu krónunnar.
Krónan og höftin leiða til þess
að almenningur mun búa við lak-
ari lífskjör en ástæða er til.
Veruleikinn er einfaldur: Krón-
an sem gjaldmiðill = gjaldeyrishöft,
sama hvað nafni þau verða nefnd,
sama hvaða blekkingum verður
beitt.
Borgarnesi, 25. júlí 2014,
Guðsteinn Einarsson.
Málarahjón frá Ólafsvík í Portoroz
Í liðnum júnímánuði voru hjón-
in Ásdís Kristjánsdóttir og Sævar
Þórjónsson málarameistari í Ólafs-
vík á ferð í Slóveníu. Fóru þau m.a.
til strandbæjarins Portoroz en það
er einn vinsælasti sumardvalarstað-
ur Evrópubúa við Adríahafið. Ás-
dís og Sævar ráku meðal annars
Litabúðina í Ólafsvík og þjónuðu
Ólafsvíkingum og öðrum Snæfell-
ingum í um 40 ár við góðan orð-
stýr, en þau hættu rekstri 2007. Á
ferð sinni hittu það meðal annars
tvo starfsmenn sína frá árinu 1984
sem þar búa en það eru þeir Nevio
Flego og Walter Sker. Báðir mál-
uðu þeir hjá Sævari um tíma í Ólafs-
vík. Nevio starfar sem yfirmaður á
ströndinni í Portoroz og Walter
rekur ásamt konu sinni Nusu, vin-
sælan veitingastað í Portoroz sem
heitir Prego. Það skemmtilega við
þá félaga er að þeir tala afbrags-
góða íslensku, nánast eins og þeir
væru nýfarnir frá Íslandi. Það voru
fagnaðarfundir er þau hittust og
meðferðis höfðu þau Ásdís og Sæv-
ar ljósmyndir af Ólafsvík sem þau
afhentu þeim félögum sem voru
að vonum ánægðir. Báðu þeir um
góðar kveðjur til allra í Ólafsvík
sem þeir þekkja.
Mjög skemmtilegt er að koma til
Slóveníu sem liggur efst í Adría-
hafi og þar er margt að sjá. Land-
ið er litlu stærra en Vestfirðirnir en
þar búa um tvær milljónir manna.
Piran, sem er 5000 manna bær,
er næsti bær við Portoroz. Þar er
gaman að ganga um hinar þröngu
götur sem fólkið býr við og kinnast
því og ekki síður er gaman að hitta
sjómennina þegar þeir komu þar
til hafnar til löndunar og hreinsa
netin sín. Ekki má gleyma hinum
fínu veitingastöðum við ströndina
bæði í Piran og Portoroz. Það er
allt orðið svo flott og fínt eftir að
landið fékk sjálfstæði 1991. Þess
má geta að það er ferðaskrifstofan
Nonni á Akureyri sem alltaf hefur
verið með ferð til Slóveníu í júní ár
hvert síðastliðin fjögur ár.
Pétur S Jóhannsson
Sævar málarameistari og Ásdís ásamt
þeim Walter og Nusu.
Ásdís Kristjánsdóttir með Nevio Flego
og myndina góður.