Skessuhorn - 13.08.2014, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 32. og 33. tbl. 17. árg. 13. ágúst 2014 - kr. 600 í lausasölu
ARION
APPIÐ
ARION APPIÐ
– GÓÐUR FERÐAFÉLAGI
Ef þú þarft í bankann í fríinu er best að hafa Arion appið með.
Það tekur ekkert pláss og leysir málið á nokkrum sekúndum.
Sæktu Arion appið á arionbanki.is
Einnig í Play Store og App Store
Loratadin
Fæst án lyfseðils
LYFIS
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 852 1601
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
OPIÐ
17.00 – 22.00
Guðrún Bjarnadóttir í Hespu-
húsinu í Andakíl hlaut viðurkenn-
inguna „sölubás ársins“ á árlegri
handverkshátíð að Hrafnagili í
Eyjafirði um síðustu helgi. Sýn-
ingin hefur þá stefnu að vera vett-
vangur fyrir allt handverksfólk,
hvort sem það er að sýna hand-
verk sitt í fyrsta sinn eða er lengra
komið. Aðsókn á sýninguna var að
venju góð og sóttu hana þúsund-
ir gesta víðsvegar af landinu. Veitt
voru verðlaun í þremur flokkum;
handverksmaður ársins, sölubás
ársins og hvatningarverðlaun. Í val-
nefnd voru Arnar Árnason bóndi
á Hranastöðum og stjórnarmað-
ur Handverkshátíðar, Björg Eiríks-
dóttir myndlistarmaður og kennari
og Rósa Húnadóttir þjóðfræðing-
ur og menningarmiðlari. „Marg-
breytileiki og látleysi skapa fallega
heild,“ var umsögn valnefndar um
bás Hespu. Að launum fékk Guð-
rún handgerðan verðlaunagrip eftir
Einar Gíslason myndlistarmann frá
Brúnum í Eyjafirði.
grþ
Hvalvertíðin í ár hefur staðið yfir síðan 15. júní og
er nú búið að veiða 78 langreyðar og draga að landi
í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Kvótinn þetta árið er 154
dýr og er því búið að veiða rétt ríflega helming kvót-
ans. Að sögn Gunnlaugs Fjólars Gunnlaugssonar,
stöðvarstjóra í Hvalstöðinni, hafa veiðar og vinnsla
gengið vel síðustu daga en ómögulegt sé að spá fyrir
um lengd vertíðarinnar eða hvort náist að fylla kvót-
ann. „Það er búið að vera þokkalegur gangur síð-
ustu daga. Veiðar ganga vel núna en það hefur verið
leiðinda tíð með brælu og þoku í sumar. Það er því
ómögulegt að spá um hvenær vertíðin klárast og fer
það mest eftir veðrinu. Ef allt gengur hins vegar upp
mun það sennilega verða í september,“ segir Gunn-
laugur og bætir við að mikil stemning sé í mann-
skapnum í Hvalstöðinni nú þegar vertíðin er hálfnuð.
„Hér eru allir kátir og tilbúnir að klára seinni helm-
inginn.“
jsb
Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra
landbúnaðarmála, setti á fót starfs-
hóp fyrr á þessu ári til að koma
með tillögur um hvernig efla megi
íslenska geitfjárstofninn, vernda
hann og stuðla að viðgangi. Starfs-
hópurinn hefur skilað tillögum til
ráðherra í fimm liðum og kemur
þar fram að nú þegar þurfi að veita
meira fé til verndar geitastofninum
með sérstöku framlagi ríkisins til
erfðanefndar
landbúnað-
arins.
Lagt er til
að afnumd-
ar verði tak-
markanir á
því hversu
margar geitur
njóti stuðn-
ings á hverju búi en skilyrði fyrir
stuðningi verður skýrsluhald. Áætl-
að er að þetta muni kosta um tvær
milljónir króna á ári. Starfshópur-
inn leggur jafnframt til að við end-
urskoðun á sauðfjársamningi ver-
ið innleiddur sambærilegur stuðn-
ingur og veittur verður til sauðfjár-
ræktar. Þar þurfi að vera hvati til
þess að geitabú verði af þeirri stærð
að vinnsla afurða sé möguleg.
Uppbyggingu á sæðisbanka með
frystu hafrasæði verði haldið áfram,
bæði til að styðja við markvissa
ræktun, en einnig til að þjóna sem
öryggisnet. Leggur hópurinn til að
þessi tillaga komi til skoðunar við
næstu endurskoðun búnaðarlaga-
samnings. Að mati hópsins er brýnt
að koma á fót rafrænni ættbók þar
sem allar tiltækar upplýsingar um
stofninn verði skráðar og að það
verði skoðað við endurskoðun bún-
a ð a r l a g a -
s a m n i n g s .
Að lokum
leggur hóp-
urinn til að
stuðlað verði
að auknum
r a n n s ó k n -
um á íslenska
geitastofnin-
um og afurðum hans. Þar verði sér-
staklega skoðað erfðafræðileg staða
stofnsins og sérstaða afurða.
Starfshópinn skipuðu Torfi Jó-
hannesson, sérfræðingur í atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu
sem jafnframt var formaður, Birna
Kristín Baldursdóttir frá Erfða-
lindasetri Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og Sigurður Eyþórsson frá
Bændasamtökum Íslands.
bgk
Sölubás Guðrúnar í Hespu var litríkur og fallegur á hátíðinni.
Ljósmyndin er fengin af vefsíðu Hespu á Facebook.
Hespa með fallegasta básinn
Leggja til að fé verði veitt til
verndar geitastofninum
Hvalvertíðin
ríflega hálfnuð
Strákarnir í hvalstöðinni sjást hér við vaktarlok þegar
búið er að gera öll bein klár í pott.
Ljósm. Valgeir Valdi Valgeirsson.
Vallholti 5 • 300 Akranesi
434 1413
Opið: Virka daga kl. 12.00 – 18.00
Bara
kökur
Bara
ódýrt
Bakaríið Brauðval