Skessuhorn - 13.08.2014, Side 21
21MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Leikskólastjóri
Leikskólastjóri ber fag- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans. Leitað er að
einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum og er reiðubúinn að leita nýrra
leiða í skólastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun og kennslureynsla er skilyrði•
Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg•
Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar•
Hæfni í mannlegum samskiptum•
Nánari upplýsingar veitir Sigurlaug R. Sævarsdóttir, skrifstofustjóri, í síma
430 8500 eða með því að senda fyrirspurnir á sigurlaug@grundarfjordur.is.
Umsóknir sendist á framangreint netfang.
Umsóknum um starfið skal fylgja greinargott yfirlit yfir menntun, fyrri störf,
ábendingar um meðmælendur og annað það sem umsækjandi telur máli
skipta.
Umsóknarfrestur er til 17. ágúst nk.
Leikskólakennari
Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun barna undir stjórn
deildarstjóra samkvæmt starfslýsingu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun•
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum er æskileg•
Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi•
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð•
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Kennarasambands Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Matthildur S. Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, í síma
438 6645 eða með því að senda fyrirspurnir á matthildur@gfb.is.
Sótt er um starfið á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar, www.grundarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til 17. ágúst nk.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Lausar stöður á Leikskólanum Sólvöllum
Leikskólinn Sólvellir er tveggja deilda leikskóli með um 60 nemendur frá eins til sex
ára. Skólinn starfar eftir viðurkenndum hugmyndum og kenningum í uppeldis fræði.
Unnið er með lífsleikniefni og ferlimöppur eru fyrir hvern nemanda.
Dag ur í lífi...
Nafn: Anton Jónas Illugason.
Starfsheiti/fyrirtæki: Fram-
kvæmdastjóri Víkings Ó.
Fjölskylduhagir/búseta: Bý í
Ólafsvík og er einhleypur.
Áhugamál: Fótbolti og er gall-
harður stuðningsmaður Víkings
Ó. og Arsenal.
Vinnudagur: Laugardagurinn 9.
ágúst 2014.
Mætt til vinnu og fyrstu verk: Ég
mætti í vinnuna á Ólafsvíkurvelli
klukkan 8:30 og það fyrsta sem ég
gerði var að fá mér kaffi. Klukkan
9 var ég farinn út og byrjaður að
slá völlinn og gera hann tilbúinn
fyrir fótboltaleik sem hófst síðar
um daginn.
Hádegið: Þar sem ég er einn-
ig leikmaður Víkings Ó. var ég
mættur í hádegissúpuna sem lið-
ið fær sér alltaf saman fyrir heima-
leiki.
Klukkan 14: Þá var ég að sjá til
þess að allt væri tilbúið á vellin-
um svo að leikurinn gæti hafist
klukkutíma síðar.
Hvenær var hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Þenn-
an daginn hætti ég um klukkan 18
og það síðasta sem ég gerði var að
fara í sturtu eftir leikinn.
Fastir liðir alla daga: Að sjá til
þess að vellirnir, íþróttahúsið og
umhverfið í kring sé í toppstandi.
Hvað stendur upp úr eft
ir vinnudaginn? Úrslit leiks-
ins standa auðvitað upp úr þenn-
an daginn, en þau voru því miður
ekki ánægjuleg að þessu sinni.
Var dagurinn hefðbundinn?
Hann var hefðbundinn fyrir leik-
dag en annars er þetta ekki hefð-
bundinn laugardagur í mínu
starfi.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Ég byrjaði í þessu starfi um
miðjan maí á þessu ári.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Nei, ég myndi nú ekki segja það.
Ég væri samt alveg til í að vera í
þessu starfi eitthvað áfram.
Hlakkar þú til að mæta í vinn
una? Já, mér finnst alltaf gaman
að mæta og hitta strákanna sem
eru að vinna á vellinum. Það er
mikill karakter í þessum hópi.
Eitthvað að lokum? Ég vill að
lokum þakka öllum þeim frábæru
sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir
að aðstoða okkur hjá Víkingi. Ég
vill sérstaklega þakka Hilmari,
Kristmundi, Jónasi, Tótu, Stjána
og öllum þeim sem mæta alltaf í
gæslu á leikdag. Þá vill ég einnig
þakka stuðningsmönnum félags-
ins. Án þessa fólks væri umgjörð í
kringum leiki ekki nærri því eins
góð og hún er núna.
Vallarstjóra í Ólafsvík
Tónleikar og fjögurra rétta
gala kvöldverður
Borðapantanir í síma 444-4930
Nánari upplýsingar á www.hoteledda.is
Ellen Kristjánsdóttir & Eyþór Gunnarsson
Laugardaginn 16. ágúst
Hótel Eddu Laugum í Sælingsdal
Þá mun Jóhannes Kristjánsson eftirherma
og skemmtikraftur sjá til þess að allt fari
vel fram á sinn einstaka hátt.
Þann 16. ágúst næstkomandi munu þau Ellen
Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson flytja
hugljúfa dægurlagatónlist eins og þeim einum er
lagið á Hótel Eddu Laugum í Sælingsdal.
Í tilefni af tónleikum þeirra munum við blása til
sælkeraveislu, sem hefst kl. 18:30, þar sem í boði
verður ljúffengur fjögurra rétta matseðill að
hætti Ragnars Wessman og Trausta Víglundssonar
en þeir félagar munu sjá til þess að allir fari
saddir og sælir heim.
Skólablað
Skessuhorns
Miðvikudaginn 20. ágúst fylgir Skessuhorni
sérblað um skóla á Vesturlandi.
Fjallað verður um leik- og grunnskóla, framhalds-
skóla, háskóla og Símenntunar miðstöð Vesturlands.
Efni til birtingar í skólablaðinu þarf að berast fyrir
næstu helgi á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is.
Pantanir á auglýsingum eru í síma 433-5500 eða
á netfangið palina@skessuhorn.is í síðasta lagi
mánudaginn 18. ágúst klukkan 14:00.
Fréttaveita Vesturlands