Skessuhorn - 13.08.2014, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Hin árlega Faxagleði hestamanna-
félagsins Faxa í Borgarfirði var
haldin síðasta laugardag að Stóra
Kroppi í Reykholtsdal. Góð þátt-
taka var í öllum flokkum firma-
keppninnar en keppt var í polla,-
barna,- unglinga,- kvenna- og
karlaflokki. Þá voru einnig haldn-
ar kappreiðar í fjórum greinum.
Mikil uppbygging hefur átt sér að
Stóra Kroppi undanfarin ár og er
þar komin fyrirmyndaraðstaða fyrir
mótshald. „Þetta var skemmtileg-
ur dagur þar sem ungir sem aldnir
gerðu sér glaðan dag og áttu góða
stund saman,“ segir Sigríður Arn-
ardóttir, ein af skipuleggjendum
Faxagleði.
Úrslit í barna og
unglingaflokki
Í barna- og unglingaflokki var
keppt í blönduðum hópum drengja
og stúlkna. Í barnaflokki var Ár-
mann Bjarni Eyjólfsson á Drottn-
ingu frá Kjalvararstöðum í fyrsta
sæti. Alexandra Svavarsdóttir á
Hrímu frá Runnum í öðru sæti.
Trausti Leifur Eyjólfsson á Þrúði
frá Hamraendum endaði í þriðja
sæti. Harpa Rut Jónasdóttir á Rönd
frá Hamraendum í fjórða sæti og
Margrét á Sprota frá Ölvaldsstöð-
um í því fimmta. Í unglingaflokki
var Atli Steinar Ingason á Flotta frá
Akrakoti efstur. Sara Lind Sigurð-
ardóttir á Hvönn frá Syðri Völlum
tók annað sætið. Nathalie Horvei
á Mána frá Skáney hafnaði í þriðja
sæti. Ísak Reyr Hörpuson á Gammi
frá Syðstu Fossum endaði í fjórða
sæti og Andri Dagsson á Mána frá
Deildartungu 2 í fimmta sæti.
Úrslit í fullorðinsflokki
Í keppni fullorðinna var keppt
í bæði kvenna- og karlaflokki. Í
kvennaflokki var Þórdís Fjeldsted
á Snjólfi frá Eskiholti í fyrsta sæti.
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á
Sif frá Syðstu Fossum í öðru sæti.
Inga Vildís Bjarnadóttir á Ljóð frá
Þingnesi náði þriðja sætinu. Björg
María Þórsdóttir á Mjölni frá Hesti
hafnaði í fjórða sæti og Sóley Birna
Baldursdóttir á Lukkudís frá Dalbæ
2 í því fimmta. Í karlaflokki var
Oddur Björn Jóhannsson á Gáska
frá Steinum efstur. Eyjólfur Gísla-
son á Glettni frá Hofsstöðum í
öðru sæti. Í þriðja sæti var Svav-
ar Jóhannsson á Hörpu frá Runn-
um. Davíð Sigurðsson á Þýði frá
Hellubæ í fjórða sæti og Finnbogi
Eyjólfsson á Þeystu frá Hofsstöð-
um í því fimmta.
Úrslit kappreiða
Þá var einnig haldnar kappreiðar í
fjórum greinum. Í stökki sigruðu
Andri Dagsson og Máni frá Deild-
artungu 2. Oddur Björn og Gáski
frá Steinum urðu í öðru sæti og
Dagur og Venus frá Deildartungu
í því þriðja. Í 150m skeiði sigruðu
Bjarni Marínósson og Þorfinnur
frá Skáney. Í öðru sæti urðu Þór-
dís Fjeldsted og Skjóna frá Ölvalds-
stöðum og Oddur Björn og Stjarna
frá Steinum í því þriðja. Í 250m
skeiði sigruðu Bjarni Marínósson
og Þorfinnur frá Skáney og Eyjólf-
ur Gíslason og Þeysta frá Hofstöð-
um urðu í öðru sæti. Þá var einn-
ig keppt í brokki þar sem Andri
Dagsson og Máni frá Deildartungu
2 sigruðu og Svavar og Vestri frá
Runnum urðu í öðru sæti. jsb
Þú leggur ýmislegt á þig til að kom-
ast til okkar. Ekur pínulitlum smábíl
sem er að hristast sundur á hræði-
legum malarvegum, gengur um
með þungan poka eða hjólar jafn-
vel 150 km á einum degi (úúú… þar
voru nú lærvöðvarnir í lagi).
Þú hefur sagt okkur frá þínum
heimahögum og löndum sem þú
hefur ferðast til, eini gallinn er að
börnin vilja fara á heimshornaflakk
„núúúna straxxx“. Gotteríið sem þú
hefur skilið eftir hefur runnið ljúf-
lega niður, já og takk fyrir allar gjaf-
irnar sem þú hefur gefið börnun-
um, þær eru ófáar. Ég er samt enn
ekki búin að taka tásuhitarana sem
litu út eins og hálf dömubindi í sátt.
Þú hefur jafnvel farið í töskuna og
náð í fötin þín og gefið börnunum
(vona þó að það sé ekki af því að þér
fannst börnin svona illa klædd).
Það var þó eitt þarna um daginn
þegar þú stoppaðir á afleggjaranum
heim til okkar. Þú lagðir bílnum svo
þú værir í skjóli fyrir nágrönnunum
mínum í blokkunum en þú gleymd-
ir alveg að líta í hina áttina þar sem
heimilisfólkið stóð og virti fyrir sér
kvöldsólina. Þegar þú beygðir þig
niður og gerðir þarfir þínar þarna í
vegkantinum hvarf sólin snögglega
og við heimilisfólkinu blasti fullt
tungl! Ef þú skyldir ekki hafa átt-
að þig á því þá er opin bensínstöð
allan sólahringinn hér í sveitinni og
ef þú hefðir bankað upp á hefði al-
veg verið möguleiki að hleypa þér
á salernið.
Eins varð ég dálítið leið um dag-
inn þegar ég var að versla í matinn
og lenti í sömu röð og þú við kass-
ann. Þú hefur líklega farið öfugu
megin fram úr rúminu þann dag-
inn því þegar brosandi starfsmað-
urinn bauð þér góðan daginn byrj-
aðir þú að ausa yfir hann skömm-
unum af því eitthvað hafði ekki ver-
ið eins og þú vildir. Þegar þú hafðir
borgað strunsaðir þú í burtu án þess
að segja takk eða svei þér og eftir
stóð dapur starfsmaður sem reyndi
að brosa til næsta viðskiptavinar.
Ég veit ekki hvernig það er í þinni
heimabyggð en hér í bæ erum við
mannleg og gerum mistök en ger-
um okkar besta til að laga það sem
miður fer. Ég vona að þessi dagur
hafi verið einsdæmi hjá þér og ef þú
hefur athugasemdir snúðu þér þá
beint til þess sem er yfir í stað þess
að hella þér yfir unga starfsmann-
inn á kassanum sem er að reyna að
gera sitt besta.
Farðu gætilega á ferð þinni kæri
ferðalangur og mundu að brosa,
segja góðan daginn og takk!
Þinn gestgjafi.
Höf. er Heiður Hörn Hjartardótt-
ir og rekur ferðaþjónustuna á Bjargi
við Borgarnes.
Aðalfundur Skógræktarfélags Ís-
lands verður haldinn í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi helgina 15.-17. ágúst. Skóg-
ræktarfélag Akraness, í samstarfi
við Skógræktarfélag Skilmanna-
hrepps, er gestgjafi fundarins. Auk
hefðbundinna aðalfundarstarfa
verða flutt fjölbreytt fræðsluer-
indi og farið í vettvangsferðir um
Akranes og Hvalfjarðarsveit, þar
sem gestum gefst tækifæri til að
sjá með eigin augum þann árang-
ur sem þar hefur náðst við upp-
græðslu og skógrækt. Hápunktur
fundarins er hátíðarkvöldverður í
fjölbrautaskólanum á laugardags-
kvöld þar sem valinkunnir menn
verða heiðraðir fyrir framlag sitt
til skógræktar og dans stiginn fram
á nótt.
Í fræðsluerindum á fundinum
verður sjónum meðal annars beint
að skógrækt á Akranesi og í Hval-
fjarðarsveit, skaðvöldum í skógi,
eplarækt og ræktun jólatrjáa. Dag-
skrá aðalfundar, starfsskýrslu Skóg-
ræktarfélags Íslands og aðrar gagn-
legar upplýsingar má nálgast á vef-
svæði Skógræktarfélags Íslands. Þá
verður hægt að fylgjast með gangi
fundarins á Facebook-síðu Skóg-
ræktarfélagsins.
mm
Hjónin Völundur Sigurbjörnsson
og Signý Rafnsdóttir í Borgarnesi
sýndu einstaka góðmennsku þeg-
ar þau hjálpuðu fjölskyldu Agnesar
Guðjónsdóttur og Gunnars Sigurð-
arsonar að komast á ættarmót fyrr
í sumar. Agnes og Gunnar voru á
leið á ættarmót í Bolungarvík, búin
að pakka niður, útbúa nesti og fara
í sund í Borgarnesi. Í miðri Bröttu-
brekku bilaði hins vegar bíll þeirra.
Agnes sagði frá aðstæðum á facebo-
ok síðu sinni. Gefum henni orðið:
„Við vorum með öll börnin uppi á
miðju fjalli og bíllinn í rugli. Okkur
tókst að láta bílinn renna og keyra
til skiptis að bílastæðinu við Grá-
brók. Við vissum ekkert hvað við
áttum að gera, börnin orðin pirruð
og enginn gat hjálpað. Við hringd-
um í TM og spurðum hvort þeir
væru með einhverja neyðarbíla-
þjónustu en svo var ekki. Hins veg-
ar var Völundur nokkur sem sá um
tjónabílana hjá þeim með dráttar-
bíl og fengum við númerið hjá hon-
um.“ Að sögn Agnesar svaraði Völ-
undur og sagðist geta flutt bílinn og
um leið allan mannskapinn. Þeg-
ar hann heyrði hversu margir væru
á ferð fékk hann Signýju eiginkonu
sína til að koma á einkabíl þeirra
hjóna til að sækja fjölskylduna. Eft-
ir að í Borgarnes var komið var ljóst
að ekki var hægt að gera við bílinn
að svo stöddu. Signý bauðst þá til að
aka Agnesi og börnunum til Reykja-
víkur, sem sagði það allt of mik-
ið mál en þakkaði henni fyrir. „Fór
hún þá og ræddi við Völund og kom
svo aftur til mín og sagði: „Þið tak-
ið bara bílinn og farið á ættarmót!
Það er ekki hægt að þið séuð búin
að smyrja nesti og plana alla ferð-
ina og fara ekki!“ Ég horfði stórum
augum á konuna og sagði takk fyr-
ir en ég get ómögulega þegið þetta,
ég veit ekki einu sinni hvað þú heit-
ir. „Ég heiti Signý og jú, ég tek ekki
annað í mál.“ Ég þakkaði fyrir með
tárin í augunum og spurði hvað hún
vildi fá greitt fyrir? Hún horfði á
mig og sagði: „Heldur þú að ég sé
að gera þetta til að fá greitt? Kem-
ur ekki til greina. Þið eruð með
þrjú lítil börn og eruð í vandræð-
Pennagrein
Kæri ferðalangur!
Góð þátttaka á Faxagleði að Stóra Kroppi
Keppendur í kvennaflokki etja kappi á reiðbrautinni að Stóra Kroppi.
Andri Dagsson og Máni frá Deildartungu 2 voru sigursælir í
kappreiðunum.
Hér sjást þátttakendur í pollaflokki Faxagleði.
Hvunndagshetjan Völundur Sigurbjörnsson við dráttarbílinn.
Sýndu ókunnugu fólki einstaka hjálpsemi
um, þegar svoleiðis gerist þá hliðr-
ar maður bara til,“ segir Agnes. Það
fór því svo að Agnes og fjölskylda
komst á ættarmótið á nýja jeppan-
um þeirra Signýjar og Völundar. Að
lokum fékk fjölskyldan að keyra alla
leið heim til Reykjavíkur á bílnum
og sóttu Signý og Völundur bíl sinn
svo þangað. „Signý og Völundur frá
Borgarnesi eru fallegar hvunndags-
hetjur sem björguðu okkur án þess
að þekkja okkur og gott betur,“ seg-
ir Agnes þakklát að lokum. grþ Skógurinn við Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit. Grunnafjörður í baksýn.
Skógræktarfólk fundar á
Akranesi um helgina