Skessuhorn - 13.08.2014, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
435-1252 • 893-0688 • velabaer@vesturland.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
3
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Öll almenn raflagnavinna
Sími: 431 1201 • rafstodin@simnet.is www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Ólafsdalshátíðin fór fram í sjö-
unda sinn við Gilsfjörðinn síðast-
liðinn sunnudag. Hátíðin er hald-
in á hverju ári af Ólafsdalsfélaginu
sem vinnur að endurreisn staðarins
en þar var fyrsti búnaðarskóli Ís-
lands stofnaður árið 1880 og rek-
inn til ársins 1907. Vindasamt var
á hátíðinni í ár en þrátt fyrir það
lukkaðist allt vel. Hátíðin hófst á
tóvinnunámskeiði fyrir börn og
ungmenni. Einnig var boðið var
upp á gönguferð með leiðsögn um
fræðslustíginn í Ólafsdal og í skóla-
húsinu var haldinn markaður og
sýndar sýningar.
Eiginleg hátíðardagskrá hófst
klukkan 13 þar sem kenndi ým-
issa grasa. Haraldur Benediktsson
alþingismaður ávarpaði hátíðina,
Sólveig Ólafsdóttir staðarhaldari
í Ólafsdal hélt erindi og Domini-
que Plédel Jónsson formaður Slow
Food samtakanna á Íslandi hélt er-
indi um sjálfbærni. Þá var boðið
upp á tónlistaratriði, hestar teymd-
ir undir börnum og Leikhópurinn
Lotta sýndi Hróa Hött. Rögnvald-
ur Guðmundsson, formaður Ólafs-
dalsfélagsins, telur að um þrjú til
fjögur hundruð manns hafi mætt á
hátíðina í ár og segir allt hafa far-
ið vel fram þrátt fyrir mikið rok.
„Við lentum í smá vandræðum með
tjöldin en það slapp til. Eins þurfti
Leikhópurinn Lotta að færa sig inn
í hús með sýninguna þar sem leik-
myndin ætlaði af stað. En ann-
ars var bjart og fínt veður. Hátíð-
in tókst mjög vel og allir voru glað-
ir. Það var allt eins og best verður
á kosið fyrir utan þessar vindhviður
sem settu mark sitt á hátíðina í ár,“
sagði Rögnvaldur.
grþ/ Ljósm. Rögnvaldur
Guðmundsson.
Blés hressilega á Ólafsdalshátíð
Guðný Björg Rögnvaldsdóttir seldi
miða í Ólafsdalshappadrættið en um
500 miðar seldust. Hér er hún í búning
frá Heimilisiðnarfélagi Íslands.
Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti var
til sölu á hátíðinni og seldist allt upp.
Knattspyrnufélag ÍA hefur í sumar boðið ungum stúlkum upp á
vikuleg fótboltanámskeið. Að sögn Haraldar Ingólfssonar, fram-
kvæmdastjóra KFÍA, hefur aðsókn á námskeiðin verið með ágætum
en algjör sprenging varð í þátttöku á síðasta námskeiðinu sem nú
stendur yfir, dagana 11. til 15. ágúst. „Það hafa verið um tíu stelpur
á hverju námskeiði í sumar en nú á síðasta námskeiðinu eru um 60
stelpur skráðar,“ segir Haraldur.
Þessa miklu aukningu má sennilega rekja til þess að landsliðs-
konurnar Dóra María Lárusdóttir og Skagakonan Hallbera Guðný
Gísladóttir voru fegnar til að þjálfa stelpurnar á síðasta námskeið-
inu. Þær segja að mikil gróska sé í kvennafótboltanum og það sé al-
veg frábært að fá svona góða mætingu. „Þetta er stór hópur og hér
eru stelpur á mismunandi aldri. Sumar eru að prófa fótbolta í fyrsta
sinn en aðrar eru búnar að æfa lengi. Við sjáum að það er mikið af
hæfileikaríkum stelpum á námskeiðinu. Stelpurnar eru áhugasamar
og það er mikil leikgleði og vonandi fara sem flestar að æfa af full-
um krafti eftir námskeiðið,“ sögðu þær Dóra María og Hallbera
Guðný í samtali við blaðamann.
jsb
Stelpurnar á námskeiðinu eru á aldrinum fimm til þrettán ára. Hér sjást þær á
æfingasvæði ÍA ásamt þjálfurum.
Vinsælt að fara á
fótboltanámskeið
með landsliðskonum
Alhliða rafverktaki
Kirkjubraut 37 - Akranes
Símar: 431 1902 - 892 8523
rafsigurdors@simnet.is
Kirkjubraut 37 - Akranes
Símar: 431 1902 - 892 8523
rafsigurdors@simnet.is