Skessuhorn - 13.08.2014, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Skagakonur heimsóttu Val að Hlíð-
arenda síðasta fimmtudag í 12. um-
ferð Pepsí-deildar kvenna í knatt-
spyrnu. Lauk leiknum með 3-1 sigri
heimamanna. Valskonur byrjuðu
leikinn af miklum krafti og skor-
uðu fyrsta markið strax á annarri
mínútu. Áfram héldu Valskonur að
sækja og skoruðu annað mark þegar
um stundarfjórðungur var liðinn af
leiknum. Skagakonur gáfust þó ekki
upp. Á 23. mínútu átti Maren Leós-
dóttir fast skot sem markvörður Vals
varði en Bryndís Rún Þórólfsdóttir
fylgdi eftir og kom boltanum í netið
fyrir þær gulklæddu.
Í seinni hálfleik var Valur áfram
sterkari aðilinn en gestirnir frá
Akranesi vörðust þó vel. Á 57. mín-
útu misstu svo Skagakonur leik-
mann af velli þegar Gréta Stefáns-
dóttir var rekin útaf eftir að hún
fékk sitt annað gula spjald í leiknum.
Þrátt fyrir að vera einum leikmanni
færri börðust Skagakonur áfram og
voru nálægt því að jafna leikinn með
skoti beint úr aukaspyrnu þegar um
15 mínútur voru eftir af leiknum.
Það voru hins vegar Valskonur sem
skoruðu lokamark leiksins rétt fyr-
ir leikslok og gulltryggðu sér sigur.
Lokatölur á Vodafonevellinum að
Hlíðarenda 3-1 fyrir Val.
Næsti leikur Skagakvenna er gegn
Selfossi á fimmtudaginn 14. ágúst á
Akranesvelli klukkan 19:15. jsb
Hvað finnst þér nauðsyn
legt að hafa í bílnum yfir
sumartímann?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Ólafsvík)
Rúnar Gestsson
Konuna, annars væri ég alveg
ósjálfsbjarga.
Kristbjörg Kristjánsdóttir
Góða tónlist og góðan svala-
drykk.
Alexandra Kristjánsdóttir
Góða tónlist sem skapar stemn-
ingu.
Sirrý Arnardóttir
Picknick-körfu, kaffibrúsa og
teppi. Svo að hægt sé að fara í
lautarferð.
Kristján Franklín
Það sem er mikilvægast að hafa
með sér í bílferðum er góða
skapið.
Sjentilmenn setja upp
folfvöll á Bifröst
Síðustu drög að frisbígolfvelli, eða
folfvelli eins og íþróttin er stundum
kölluð, voru lögð á Bifröst á fimmtu-
daginn þegar nýr völlur var mældur
út. Það er Sjentilmannaklúbburinn á
Bifröst sem stendur fyrir gerð vall-
arins en fyrir skemmstu festu sjen-
tilmenn kaup á níu körfum sem not-
aðar eru sem endamark í folfi. Til
aðstoðar við hönnun vallarins fékk
klúbburinn engan annan en Jón
Símon Gíslason, Bifresting og Ís-
landsmeistara í folfi. Eftir ráðlegg-
ingar frá Jóni var að lokum hann-
aður sjö körfu völlur en tvær körfur
verða notaðar fyrir púttvöll við Ás-
garð. „Þetta verður mjög skemmti-
legur völlur hér á Bifröst og ennþá
skemmtilegri hindranir,“ sagði Jón
Símon um völlinn í frétt sem birtist
á vefsíðu Háskólans á Bifröst. „Það
er afar ánægjulegt að það sé starf-
andi svo öflugur klúbbur í samfé-
laginu hér á Bifröst og ber að þakka
fyrir það,“ segir einnig í frétt frá
skólanum. jsb
Mælt fyrir nýja folfvellinum á Bifröst á fimmtudaginn.
Ljósm. Folfklúbburinn Bifröst.
Skagakonur töpuðu fyrir
Val að Hlíðarenda
Vestlendingar sigursælir á
Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki
Boðhlaup SamVest vann til gullverðlauna í 4x100m boðhlaupi 15 ára pilta. Hér
sjást þeir Jamison Ólafur úr HSS, Steinþór Logi úr UDN, Grímur Bjarndal og Helgi
úr UMSB á verðlaunapalli.
Stúlknasveit HSH í körfubolta 17 til 18 ára varð í þriðja sæti á mótinu.
Unglingalandsmót UMFÍ var
haldið á Sauðárkróki um verslun-
armannahelgina. Mótið var sett
fimmtudaginn 31. júlí og lauk á
miðnætti á sunnudag. Á mótinu
kepptu einstaklingar á aldrin-
um 11 til 18 ára og er það einn
stærsti íþrótta- og fjölskylduvið-
burður sem haldinn er árlega hér á
landi. Keppt var í 17 keppnisgrein-
um og hafa þær aldrei verið fleiri í
17 ára sögu unglingalandsmótsins.
Um 1500 keppendur voru skráðir
til leiks frá íþróttahreyfingum víðs
vegar af landinu en lögreglan áætlar
að um átta þúsund manns hafi ver-
ið á Sauðárkróki yfir helgina. Vest-
lendingar voru bæði fjölmennir og
sigursælir á mótinu að þessu sinni.
Héraðssamböndin UMSB, UDN
og HSH sendu öll keppendur að
þessu sinni auk keppenda frá Vest-
urlandi sem fór á eigin vegum.
Unglingalandsmótsmet
úr röðum UMSB
Hjá Ungmennasambandi Borgar-
fjarðar voru skráðir 52 keppend-
ur og átti félagið fulltrúa í nánast
öllum keppnisgreinum. Ellefu lið
á vegum UMSB voru á mótinu og
kepptu þau í körfubolta, fótbolta,
strandblaki og í tölvuleiknum
FIFA2014. Að sögn Pálma Blængs-
sonar, framkvæmdastjóra UMSB,
gekk félaginu vel á mótinu og náðu
nokkrir liðsmenn UMSB í medal-
íur. Besti árangur UMSB að þessu
sinni var sigur Helga Guðjónsson-
ar í 800 metra hlaupi 15 ára pilta.
Helgi hljóp á tímanum 2:07:25 og
setti þar með nýtt unglingalands-
mótsmet.
Hlaupagikkir SamVest
Fyrir hönd Ungmennasambands
Dalamanna og Norður-Breið-
firðinga keppti 20 manna hópur
vaskra drengja og stúlkna. Krakk-
arnir í UDN stóðu sig vel á mótinu
en þeir kepptu í fótbolta, frjálsum
íþróttum og sundi. UDN var með
sitt eigið lið í fótbolta hjá 15-16 ára
strákum en aðrir keppendur sam-
bandsins í fótbolta voru í blönduð-
um liðum. Besti árangur UDN var
að þessu sinni í frjálsum íþróttum
en þar náðu Vignir Smári Valbergs-
son og Steinþór Logi Arnarsson
að komast á verðlaunapall. Vign-
ir Smári bætti persónulegan árang-
ur sinn um tvo metra í spjótkasti og
vann til silfurverðlauna í flokki 14
ára pilta. Steinþór Logi var ásamt
Jamison Ólafi Johns (HSS), Grími
Bjarndal Einarssyni (UMSB) og
Helga Guðjónssyni (UMSB) í boð-
hlaupssveit SamVest sem vann til
gullverðlauna í 4x100m boðhlaupi
15 ára pilta. SamVest er samstarfs
héraðssambanda á Vesturlandi og
hafa liðsmenn þeirra æft frjálsar
íþróttir nokkrum sinnum saman
síðan í vor.
HSH sigursælt í körf
unni
Héraðssamband Snæfellsnes og
Hnappadalssýslu tók einnig þátt á
Unglingalandsmóti UMFÍ. Kepp-
endur frá HSH voru alls 52 tals-
ins og skráði héraðssambandið ell-
efu lið til leiks. Þrjú lið í fótbolta
og strandblaki, fjögur lið í körfu-
bolta og eitt lið í FIFA2014 tölvu-
leiknum. Öll liðin náðu ágætis ár-
angri og komust þrjú lið af fjór-
um á verðlaunapall í körfunni. Þá
átti HSH einnig fulltrúa í flestum
greinum frjálsra íþrótta þar sem
allir liðsmenn stóðu sig með stakri
prýði. Þar var Ari Bergmann Æg-
isson hlutskarpastur en hann varð í
fyrsta sæti í 600 metra hlaupi ellefu
ára pilta.
Samkvæmt upplýsingum frá Jóni
Þór Þórðarsyni, íþróttafulltrúa ÍA,
var enginn skipulagður hópur á
vegum félagsins á unglingalands-
mótinu í ár. Hins vegar er talið að
fjöldi krakka frá Akranesi hafi keppt
á eigin vegum í ýmsum keppnis-
greinum. Þar má nefna Björn Vikt-
or Viktorsson sem skráður er í golf-
klúbbinn Leynir en Björn hafnaði
í 2.-3. sæti í golfi ellefu til þrettán
ára pilta.
jsb
Helgi Guðjónsson úr UMSB varð í
fyrsta sæti í 800 m hlaupi 15 ára stráka
og setti unglingalandsmótsmet. Hann
er hér á milli keppninauta sinna þeirra
Daða Arnarsyni úr Fjölni og Jamison
Ólafi Johnson úr HSS.
Vignir Smári Valbergsson UDN varð í 2.
sæti í spjótkasti 14 ára pilta.