Skessuhorn


Skessuhorn - 20.08.2014, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 20.08.2014, Blaðsíða 11
Hætt að senda út greiðsluseðla fyrir áskriftum Óbreytt áskriftarverð - Innheimt mánaðarlega - Einstaklingar hætta að fá greiðsluseðla Frá og með 1. september 2014 verður innheimtu áskriftar á Skessuhorni breytt hjá þeim sem fengið hafa senda greiðsluseðla. Ekkert breytist hjá þeim sem greiða áskrift með greiðslukortum og hvetur Skessuhorn áskrifendur til að færa áskrift yfir á þau. Áskrift verður hér eftir innheimt mánaðarlega hjá öllum áskrifendum í stað tveggja mánaða eins og verið hefur. Reikningar verða gefnir út 1. hvers mánaðar með eindaga á virkum degi 15. sama mánaðar fyrir yfirstandandi áskriftarmánuð. Hætt verður að senda út greiðsluseðla í pósti fyrir áskrift. Innheimtukrafa mun eftir sem áður birtast í heimabanka áskrifenda þar sem hægt er að framkvæma greiðslu. Breyting þessi mun fyrst um sinn einungis gilda um einstaklinga. Fyrirtæki fá áfram senda greiðsluseðla fyrir áskriftir, auglýsingar og aðra þjónustu. Þeir sem þess óska sérstaklega geta áfram fengið greiðslu seðla í pósti, en þurfa þá að senda beiðni um slíkt í tölvu pósti til skrifstofu- stjóra Skessuhorns á netfangið bokhald@skessuhorn.is fyrir 1. september nk. Breyting þessi er gerð til að draga úr póst- og dreifingarkostnaði og felur hún engan viðbótar- kostnað í sér fyrir áskrifendur. Áskriftarverð verður óbreytt út 2014. Allar nánari upplýsingar um áskrift eru fúslega veittar í síma 433-5505 milli klukkan 10 og 14 alla virka daga.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.