Skessuhorn - 20.08.2014, Blaðsíða 18
18
Menntastoðir stórt
verkefni
Menntastoðir eru einnig stórt
verkefni sem Símenntunarstöðin
mun bjóða upp á nú í haust í dreif-
námi, en það verður þá þriðji hóp-
urinn sem fer í gegnum slíkt nám.
„Við útskrifuðum fyrsta hópinn í
Menntastoðum sl. vor og margir
hverjir ætla að halda áfram námi.
Menntastoðir er nám fyrir þá sem
hafa ekki lokið stúdentsprófi en
stefna á nám í frumgreinadeildum
háskólanna eða nám innan fram-
haldsskólanna. Þetta nám nær yfir
tvær annir, staðarlotur eru að jafn-
aði einu sinni í mánuði, og síðan er
kennt í gegnum fjarkennslukerfi.“
Stóriðjuskólinn
kominn til að vera
„Stóriðjuskólinn í Norðuráli er
kominn til að vera, hann hefur verið
starfræktur síðan í byrjun árs 2012.
Nú hefur einn hópur lokið grunn-
námi í Stóriðjuskólanum og annar
hópur mun klára grunnnámið nú í
desember og fyrsti hópurinn mun
útskrifast úr framhaldsnámi. Fjöl-
brautaskóli Vesturlands tekur þátt
í þessu verkefni með okkur og ég
held að það séu allir á einu máli um
að þessi samvinna hafi gefist vel,“
segir Inga Dóra.
Tómstundanámskeiðin
skipa stóran sess
Eins og áður skipa tómstunda-
námskeiðin stóran sess í starfi Sí-
menntunarmiðstöðvarinnar, en
næstu daga mun námsvísirinn
detta inn um bréfalúguna hjá íbú-
um á Vesturlandi. Inga Dóra seg-
ir starfsfólk auðvitað hvetja alla til
að skoða hann vel. „Tómstunda-
námskeiðin eru einnig komin inn
á vefinn okkar www.simenntun.is
Í námsvísinum eru flestöll okkar
tómstundanámskeið á önninni, en
þess ber þó að geta að þar er að-
eins hluti allra námskeiða sem við
höldum á hverri önn. Við sérsníð-
um fjölda námskeiða fyrir fyrirtæki
og stofnanir, tökum þátt í þróunar-
verkefnum innanlands sem erlend-
is og veitum náms- og starfsráðgjöf
sem hefur farið mjög vaxandi und-
anfarin ár.“
Menntun fyrir
fólk með fötlun
Símenntun er með samning við
Fjölmennt; símenntunar- og þekk-
ingarmiðstöð fyrir fólk með fötlun.
Þetta samstarf hefur verið farsælt
og segir Inga Dóra að mikill metn-
aður sé lagður í að bjóða upp á fjöl-
breytt námskeið og þróa lengra
nám sem byggist á þessum samn-
ingi. „Við erum m.a. að vinna að
námskrá fyrir listnámsbraut, en við
vinnum þetta verkefni í samvinnu
við Fræðslunet Suðurlands.“
Vaxandi starfsemi
Eins og fram hefur komið hefur
starfseminni vaxið fiskur um hrygg
að undanförnu. „Nú á haustönn
erum við sjö sem störfum hjá Sí-
menntunarmiðstöðinni, auk fjölda
verktaka. Við rekum þrjár starfs-
stöðvar á Vesturlandi, þ.e. á Akra-
nesi, í Borgarnesi og í Ólafsvík,
en erum auk þess mikið á ferð-
inni í landshlutanum. Við hjá Sí-
menntun förum því glöð inn í nýtt
starfsár og hlökkum til að þjónusta
íbúana í landshlutanum og takast á
við fjölda skemmtilegra verkefna,“
segir Inga Dóra Halldórsdóttir
framkvæmdastjóri að lokum.
bgk
Harpa Dögg Heiðarsdóttir, 8 ára
Hitta krakkana í bekknum mínum á
hverjum degi og læra stærðfræði.
Íris Birta Heiðarsdóttir, 10 ára
Hitta krakkana í skólanum aftur og
læra stærðfræði.
Kolbrún Inga Sigmarsdóttir, 10 ára
Hitta alla vini aftur eftir sumarið og
læra íslensku.
Benedikt Þórðarson, 4 ára
Mér finnst skemmtilegast að lita
með hinum krökkunum.
Hvað finnst börnum
skemmtilegast við það að
byrja í skólanum?
(Spurt í Grundarfirði)
abc
Spurning
vikunnar
Hvað finnst þér skemmti-
legast við það að byrja í
skólanum?
(Spurt í Stykkishólmi)
Spurning
vikunnar
Kristján Ásgeir Svavarsson, 13 ára
Hitta krakkana í bekknum eftir
sumarið og fara í íþróttatíma með
þeim.
Steinþór Emil Svavarsson, 11 ára
Hitta vini mína á hverjum degi í
skólanum og fara í smíðatíma.
Andrea Rós Sigurbjörnsdóttir, 12 ára
Læra stærðfræði og hitta
kennarann og krakkana í bekknum
aftur.
Viktoría Ósk Georgsdóttir, 6 að verða 7 ára
Læra íslensku og hitta krakkana í
skólanum aftur.
Inga Dóra Halldórsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Símenntunarstöðvar
Vesturlands. Hún segir framhalds-
fræðsluna skemmtilega því þar séu
ólík verkefni og margar áskoran-
ir. „Starfsemi Símenntunarmið-
stöðvarinnar hefur vaxið fiskur um
hrygg undanfarin misseri og við
horfum björtum augum til fram-
tíðar.“ Í haust verður lögð aukin
áhersla á að heimsækja fyrirtæki og
stofnanir á Vesturlandi og kanna
hug þeirra til að bjóða upp á sí- og
endurmenntun fyrir sitt starfsfólk.
„Okkur hjá Símenntun finnst vera
aukinn áhugi hjá atvinnurekendum
til að styrkja starfsfólkið með því
að bjóða upp á markvissa fræðslu,“
segir Inga Dóra.
Tilraunaverkefni um hækkun
menntunarstigs
Í haust ber hæst hjá Símenntun-
arstöðinni þátttaka í tilraunaverk-
efni um hækkun menntunarstigs
í Norðvesturkjördæmi. „Í þessu
verkefni felst m.a. að við leggjum
aukna áherslu á raunfærnimat, að
þjónusta fyrirtæki og greina þarfir
þeirra m.t.t. sí- og endurmenntun-
ar og síðan er hluti af verkefninu að
kenna íslensku fyrir útlendinga, en
með fjölbreyttari aðferðum en ver-
ið hefur.“
Raunfærnimat felur í
sér gríðarleg tækifæri
Raunfærnimat er tiltölulega nýtt
af nálinni en í því felast gríðarleg
tækifæri fyrir fólk sem ekki hefur
lokið framhaldsskólaprófi en verið
á vinnumarkaði um nokkurt skeið.
Raunfærnimat er komið hvað
lengst í iðngreinum en nú er byrj-
að að raunfærnimeta einstaklinga í
fleiri atvinnugreinum. Í sem stystu
máli þá felst raunfærnimat í því að
samanlögð færni sem fólk hefur náð
með ýmsum hætti, svo sem starfs-
reynslu, starfsnámi, frístundanámi,
námi í skóla, félagsstörfum og fjöl-
skyldulífi. Inga Dóra segir reynslu
af raunfærnimati mjög góða. „Hún
hefur hvatt marga þeirra sem hafa
farið í raunfærnimat til að halda
áfram í menntabrautinni, en raun-
færnimat er framkvæmt í samstarfi
við framhaldsskólana. Nú í haust
munum við leggja áherslu á raun-
færnimat fyrir félagsliða, leikskóla-
liða og stuðningsfulltrúa, en einnig
bjóðum við upp á raunfærnimat í
málmsuðu, vélstjórn og vélvirkjun.
Við hvetjum fólk til að hafa sam-
band við okkur til að fá nánari upp-
lýsingar um raunfærnimat, en hér
geta falist tækifæri fyrir marga til
að koma sér af stað aftur í nám eft-
ir langt hlé.“
Símenntunarstöðin á Vesturlandi
Ýmis verkefni og margar áskoranir í
framhaldsfræðslunni
Inga Dóra Halldórsdóttir
framkvæmdastjóri Símenntunarmið-
stöðvar Vesturlands.
Námsmannakort Strætó gildir aðeins á höfuðborgarsvæðinu
Sala á námsmannakortum Strætó
bs. fyrir komandi skólaár hófst í
síðustu viku. Kortið kostar 42.500
krónur og gildir til 31. ágúst 2015.
Sé miðað við tvær ferðir á dag,
fimm sinnum í viku á tímabilinu,
kostar hver ferð aðeins 82 krónur.
Nemendur geta því sparað sér um-
talsverðan pening þar sem stök ferð
í strætó kostar að jafnaði 350 krón-
ur. Kortið gildir þó aðeins á ferðum
strætisvagna sem eru á gjaldsvæði
eitt, eða á höfuðborgarsvæðinu.
Námsmenn sem eru skráðir í nám
hjá framhaldsskólum eða háskólum
á höfuðborgsvæðinu geta engu að
síður sótt um kortið. Þetta þýðir að
þeir nemendur sem eiga lögheimili
á Vesturlandi, en stunda framhalds-
eða háskólanám á höfuðborgar-
svæðinu, geta nýtt sér kortið til
að komast ódýrara á milli áfanga-
staða innan gjaldsvæðis eitt, þ.e.
innanbæjar á höfuðborgarsvæðinu.
Hins vegar gildir kortið ekki fyrir
ferðir á milli staða sem ná út fyr-
ir gjaldsvæði eitt, svo sem til Akra-
ness, Borgarness eða á Snæfellsnes.
Á Akranesi og í Borgarnesi býr tals-
verður fjöldi nemenda sem ferðast
til Reykjavíkur daglega til að stunda
nám. Hægt er að sækja um kortið
á vefsíðu Strætó bs, http://www.
straeto.is. jsb
Afsláttur sem fylgir nemendakorti
Strætó bs. fæst aðeins á höfuðborgar-
svæðinu.