Skessuhorn - 03.09.2014, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
3 Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Alhliða rafverktaki
Kirkjubraut 37 - Akranes
Símar: 431 1902 - 892 8523
rafsigurdors@simnet.is
Kirkjubraut 37 - Akranes
Símar: 431 1902 - 892 8523
rafsigurdors@simnet.is
Norski kórinn Hemne og Vinje
Songlag verður á ferð um suðvestur
horn landsins dagana 4. – 8. septem
ber. Hann mun halda stutta tónleika í
Reykholtskirkju föstudaginn 5. sept
ember og hefjast þeir kl. 12:45. Þeir
eru haldnir í samstarfi við grunn
skólann og munu nemendur skólans
mæta til að hlusta á lög eftir Thor
bjørn Egner og fleiri norska höf
unda. Aðgangur er ókeypis og von
ast kórinn til að sem flestir geti séð
sér fært að mæta í Reykholtskirkju.
Hemne og Vinje Songlag er bland
aður kór 47 áhugasöngmanna. Að
setur hans er sveitarfélagið Hemne,
sem er vestast í SuðurÞrændalög
um. Þar stendur bærinn Kyrksæte
røra við Hemnefjord, en heitið út
leggst Hafnarfjörður á íslensku. Nær
allir kórfélagar taka þátt í ferðinni.
En hvers vegna Ísland og þá sérstak
lega Reykholt? Björn Leifsson verð
ur fyrir svörum en hann starfaði eitt
sinn við Tónlistarskólann í Borg
arnesi. Björn er stjórnandi norska
kórsins: „Kórinn hélt upp á 25 ára
afmæli sitt í fyrrahaust, og var sam
þykkt á aðalfundi kórsins að gefa
sér fimm daga Íslandsferð i afmæl
isgjöf. Ekki kom annað til greina
en að skoða Reykholt í Borgarfirði,
en Norðmenn halda mikið upp á
Snorra Sturluson og Heimskringlu.
Það er haft fyrir satt að konunga
sögur hans hafi átt stóran þátt í að
norska þjóðin stefndi á sjálfstæði og
hlaut það frá Svíum árið 1905,“ seg
ir Björn.
Um aðdraganda þess að Björn
tók við norska kórnum segir hann:
„Vegna forfalla fyrrverandi kórstjóra
haustið 2011 var farið á stúfana að
leita að forfallastjórnanda. Þar á
meðal var leitað til organista kirkj
unnar í Hemne, en ég var þá ný
fluttur þangað. Síðan hef ég stjórnað
kórnum.“ Björn stjórnaði meðal
annars Samkór Mýramanna þegar
hann bjó í Borgarnesi.
mm
Það var haustið 2004
sem var efnt til söng
starfs meðal eldri
borgara í Borgarnesi
og nærsveitum. Jón
Þ. Björnssonar var
fyrsti söngstjóri þessa
hóps sem hlaut nafn
ið Gleðigjafar. Kór
félagar eru nálægt 30,
formaður kórsins er
Björk Halldórsdóttir,
núverandi stjórnandi
er Súsanna (Zsuzs
anna) Budai. Kórinn æfir einu sinni
í viku frá september og fram í maí.
Hann kemur fram nokkrum sinnum
á starfsárinu, bæði heima og síðan
eru farnar dagsferðir sem gjarnan
tengjast samstarfi við aðra kóra.
Við það er miðað að kórfélag
ar hafi náð sextíu ára aldri og hafi
nokkra hæfileika til söngs.
Ef þú lesandi góður ert
orðinn sextugur, hef
ur sungið í kór eða ligg
ur undir grun um hæfi
leika til söngs, hringdu þá
endilega í síma 844 6665.
Þá svarar Björk Halldórs
dóttur og segir þér hvar
þú átt að mæta. Nú, ef þú
vilt athuga fyrst hvort þú
„getir sungið,“ þá geturðu
fengið að prófa án margra
áheyrenda, ekkert mál.
Það er alveg hægt að mæla með
þessum kór, þetta er góður félags
skapur og glaður stjórnandi.
Kórfélagi í Gleðigjöfum
Ágæti lesandi.
Dagana 5.7. september næst
komandi stendur Rauði krossinn
á Íslandi fyrir landssöfnun undir
yfirskriftinni „Göngum til góðs“.
Að þessu sinni verður safnað fyr
ir innanlandsstarfi félagsins, en
mikið og fjölbreytt starf fer fram
á vegum deilda um allt land. Má
þar nefna ýmis félagsleg verkefni
eins og heimsóknavini og föt
sem framlag, auk neyðarvarna,
áfallahjálpar, skyndihjálpar
fræðslu og fleiri verkefna. Sjálf
boðaliðar deilda Rauða krossins
munu ganga með söfnunarbauka
í hús og gefa fólki kost á því að
styrkja starfið innanlands og þau
fjölmörgu verkefni sem deildir
starfa að hér á landi og hvetjum
við íbúa á Vesturlandi og aðra til
að taka vel á móti söfnunarfólki
okkar.
Í ár eru 90 ár síðan Rauði
krossinn á Íslandi var stofnaður.
Eitt af fyrstu verkefnum félags
ins var fræðsla í skyndihjálp, eða
„hjálp í viðlögum“ eins og það
var kallað þá, og hefur útbreiðsla
og fræðsla í skyndihjálp alltaf
verið áhersluverkefni félagsins. Á
afmælisárinu, sem sérstaklega er
tileinkað skyndihjálp, hefur mik
ilvægi skyndihjálpar verið kynnt
með ýmsum hætti. Má þar með
al annars nefna að skyndihjálpar
app á íslensku hefur verið útbú
ið og er fjöldi þeirra sem hlaðið
hafa niður appinu að nálgast 30
þúsund. Appið, sem er ókeyp
is að hlaða niður, hefur nú þegar
margoft sannað gildi sitt, en þar
er að finna fræðslu sem hjálpað
getur til að bjarga í neyð. App
ið má nálg
ast á heima
síðunni www.
skyndihjalp.is.
Á haustmánuð
um munu svo
deildir Rauða
krossins heim
sækja grunn
skóla og fræða
nemendur um
nokkur aðal
atriði skyndi
hjálpar. Þetta
mikilvæga verk
efni skiptir máli
fyrir alla, en
reynslan sýnir
að oftar en ekki
er það einhver nákominn okkur
sem þarf á hjálp að halda vegna
slyss eða skyndilegra veikinda.
Við hvetjum fólk til að taka
þátt í söfnuninni og fá sér hress
andi göngutúr með söfnunar
bauk í hendi. Það hressir okk
ur öll og styrkir um leið Rauða
krossinn í starfi sínu innanlands.
Hægt er að skrá sig á heimasíðu
Rauða krossins www.rki.is eða
hafa samband við deildina á sínu
svæði.
Kær kveðja,
Rauða kross deildir
á Vesturlandi.
Pennagrein
Söfnunin göngum til góðs
verður um næstu helgi
Gáfu sér Íslandsferð í afmælisgjöf
og munu syngja í Reykholti
Hemne og Vinje Songlag fyrir utan Grieg-tónleikahöllina í Bergen 2012. Björn Leifsson er lengst til vinstri.
Pennagrein
Gleðigjafar að verða tíu ára