Skessuhorn - 17.09.2014, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 38. tbl. 17. árg. 17. september 2014 - kr. 600 í lausasölu
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
Fæst án lyfseðils
LYFIS
Ert þú
áskrifandi?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Barinn opinn
til kl. 03.00
föstudags- og
laugardagskvöld
Tveir fyrir einn af krana
frá kl. 22-24 bæði kvöldin
Boltinn í beinni
Dúndur boltatilboð í gangi
Takeaway tilboð
föstudag til sunnudags
Vitaborgari, franskar og sósa
kr. 1200.-
Stillholti 16-18 • Akranesi
Sími 431 1401
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Á haustmisseri í Fjölbrautaskóla
Vesturlands eru nú fleiri nemendur
í tréiðn en verið hafa síðustu árin.
Núna eru 13 nemendur í húsasmíði
í dagskóla en nemendur hafa ekki
verið í dagskóla í tréiðn í nokk-
ur ár. Í helgarnáminu eru nú 28 og
eru þeir nemar heldur fleiri en fyr-
ir ári. Helgarnámið er fyrir þá sem
hafa unnið í greininni í nokkurn
tíma en eru án starfsréttinda. Sam-
tals eru því rúmlega 40 í húsasmíð-
anámi hjá FVA um þessar mund-
ir, en það er sú iðngrein sem hvað
mest hefur átt undir högg að sækja
frá hruni. „Það má segja að orð-
ið hafi sprenging núna síðustu tvö
árin í húsasmíðanáminu. Við erum
mjög bjartsýnir á að það sé að lifna
yfir byggingamarkaðinum. Það
er þó ástæða til að hvetja meistara
og byggingafyrirtæki að fara nú að
taka iðnnema á samning. Það klár-
ar enginn námið án þess að kom-
ast á samning hjá meistara. Ennþá
vantar upp á þá hlið til þess að það
verði hægt að fjölga iðnaðarmönn-
um eins og markaðinum er þegar
farið að kalla eftir,“ segir Sigurgeir
Sveinsson deildarstjóri í tréiðna-
deild Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi í samtali við Skessuhorn.
Þegar blaðamaður Skessuhorns
kíkti inn í tréiðnadeild FVA sl. laug-
ardagsmorgun var Steinn Helgason
umsjónarkennari að skipa mönnum
til verka, en nemarnir vinna m.a. að
smíði húsa á staðnum. Húsasmiðj-
an hefur um áraraðir styrkt starf-
semi deildarinnar með því að leggja
fram efni í bústað. Núna var ein-
mitt að hefjast smíði á 25 fermetra
bústað. Þá kom Golfklúbburinn
Leynir til samstarfs við deildina á
dögunum, en fyrir klúbbinn verður
í sumar sett saman 7,4 fermetra sal-
ernishús. Gestir á Garðavelli koma
væntanlega til með að nýta það hús
frá og með næsta vori.
þá
Ná sér í beitu í höfninni
Helgarnemar í húsasmíði í FVA við vænan timburstafla sem þeir nýta til að smíða úr bústað. Þá verður einnig sett saman
salernishús fyrir Golfklúbbinn Leyni í vetur.
Nemendum í tréiðn fjölgar í Fjölbrautaskóla Vesturlands
Þrátt fyrir að makrílveiðar með
krókum séu bannaðar halda menn
áfram að veiða þennan nýja nytja-
fisk á Íslandsmiðum, en nú með
sjóstöng. Í gærmorgun voru
margir á makrílveiðum á bryggj-
unni í Ólafsvík og meðal þeirra
smábátasjómenn sem voru að
fiska í beitu. Óhætt er að segja
að menn hafi ekki farið tómhent-
ir heim. Algjört mok var í höfn-
inni og sumir komnir með góð-
an slatta eftir smá stund. Ósk-
ar Skúlason sem gerir út bátinn
Þernu SH var ásamt konu sinni að
veiða í beitu. Sagðist hann ætla út
á sjó um kvöldið með nýveiddan
makríl í beitu, en hann rær með
beitningartrekt og segir að þetta
sé albesta beita sem hægt sé að fá.
Sagðist vera búinn að fara í einn
róður og með þessari beitu hafi
aflinn verið 200 kíló á balann.
Þorvarður Jóhann Guðbjartsson
sem gerir út bátinn Guðbrand SH
tók í sama streng. Hann var einn-
ig að veiða á bryggjunni og ætlaði
að nota makrílinn í beitu.
Handfærabátar sem fóru út í
gærmorgun frá Ólafsvík, voru
einnig fljótir að fá makríl á krók-
ana skammt frá höfninni í Ólafs-
vík. Einn skipstjórinn sagði í sam-
tali við fréttaritara að hann hafi
rétt þurft að dýfa krókunum í
sjóinn og þá hafi verið makríll á
hverjum króki. Hann sagðist hafa
fengið 100 kíló á skammri stund.
af