Skessuhorn - 17.09.2014, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
3 Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Knattspyrnufélagið Kári á Akra-
nesi tryggði sér í síðustu viku sæti í
þriðju deildinni á ný með samanlagt
8-4 sigri á KFS frá Vestmannaeyj-
um. Eftir þá viðureign mættu Kára-
menn þó Álftanesi á Bessastaðavelli
í úrslitaleik fjórðu deildarinnar og
fór sá leikur fram á laugardag og
endaði 2-0 fyrir Álftanesi. Því urðu
Káramenn að sætta sig við silfrið en
fyrir leik var liðið búið að ná settum
markmiðum, að sögn Sigurðar Jóns-
sonar þjálfara félagsins. „Markmiðið
var alveg frá upphafi að koma liðinu
upp í þriðju deild. Mér var tilkynnt
það af stjórninni um leið og ég tók
við. Káraliðið var þó lemstrað þeg-
ar ég tók við og því grunaði mig að
sumarið gæti reynst erfitt. Hins veg-
ar hófum við á sama tíma samstarf
við annan flokk karla hjá ÍA og þar
eru margir efnilegir leikmenn. Það
hjálpaði að fá afnot af leikmönnum
annars flokks en það var oft mikið
púsluspil að gera liðið tilbúið fyr-
ir leiki. Það tók tíma að finna rétt-
an leikstíl, sérstaklega þar sem ann-
ars flokks strákarnir og Káramenn
æfðu oftast í sitthvoru lagi. Því not-
uðum við leikina til að stilla liðið og
fínpússa stílinn. Þegar leið á tíma-
bilið fannst mér við hafa náð góð-
um takti og spiluðum skemmtileg-
an fótbolta með áherslu á sóknar-
bolta. Ég er sérstaklega ánægður
með hvernig sumarið tókst hjá okk-
ur og enn sætara er hvað liðið hefur
í raun bætt sig frá byrjun tímabils-
ins,“ segir Siggi Jóns.
Höldum ótrauðir áfram
„Nú erum við komnir upp í þriðju
deildina en hún er erfið deild með
mörgum þokkalegum liðum. Við
munum því nota langan veturinn
til að undirbúa okkur vel fyrir átök-
in á næstu leiktíð. Ég mun fljótlega
setjast niður með samstarfsfélög-
um mínum þar sem áframhaldandi
samstarf við annan flokk ÍA verður
rætt en það verður bara að koma í
ljós hvernig við útfærum það. Það er
hins vegar alveg á hreinu að þessir
leikmenn sem hafa spilað með bæði
Kára og öðrum flokki í sumar hafa
haft mjög gott af þessum samstarfi.
Ungu strákarnir eru nú mun betur
undirbúnir fyrir að spila með meist-
araflokki. Þar þurfa þeir að keppa á
móti öðrum fullorðnum karlmönn-
um og eru nú komnir með reynslu
af því. Það sem gefur mér mest sem
þjálfari er að sjá þessa stráka vaxa
og dafna sem leikmenn. Það hefur
verið mjög ánægjulegt að taka þátt í
þessu verkefni og sérstaklega sætt að
ná settum markmiðum. Nú höldum
við ótrauðir áfram,“ segir Sigurður
Jónsson, þjálfari Knattspyrnufélags-
ins Kára í samtali við Skessuhorn.
jsb
Nú hefur MORFÍs, Mælsku- og
rökræðukeppni framhaldsskóla á
Íslandi, hafið nýtt starfsár. Í fyrsta
sinn í um áratug er kvenkyns for-
maður og kynjahlutföllin jöfn. Þá
eru í fyrsta skiptið tveir fulltrúar úr
landsbyggðarskólum þar sem Fjöl-
brautaskóli Suðurnesja og Mennta-
skólinn á Akureyri komu inn full-
trúa en Menntaskólinn á Akur-
eyri hefur ekki átt fulltrúa í stjórn
MORFÍs í nokkra tugi ára. Ný
stjórn sem kjörin var á seinasta að-
alfundi MORFís hefur ákveðið að
gera ýmsar breytingar á starfshátt-
um og venjum MORFÍs og vill því
koma eftirfarandi á framfæri:
„Í kjölfar seinasta starfsárs
MORFÍs, þar sem komu upp mál
þar sem orðspor MORFÍs bar
skaða af, hafa ný lög verið sam-
þykkt sem kveða á um að hægt er
að kæra til stjórnar MORFÍs alla þá
óæskilegu hegðun sem getur komið
upp á keppnum eða við undirbún-
ing þeirra. Þá getur stjórn MORFÍs
vísað frá keppendum sem og þjálf-
urum og gripið þannig inní áður en
frekari skaði er skeður. Þá er þjálf-
ari gerður ábyrgður fyrir liði sínu.
Við viljum þannig koma í veg fyr-
ir kvenfyrirlitningu, klámkjaft og
annað slíkt sem á sér engan stað
í ræðukeppni framhaldsskóla. Þá
verður gagngert tekið á þeirri
óstundvísi sem hefur verið á keppn-
um og kapp lagt á að tímarammar
gangi eftir en því hefur verið ábóta-
vant hingað til. Það er okkar mark-
mið að hefja orðspor MORFÍs upp
og fá aftur jákvæða umfjöllun fyr-
ir að vera málefnaleg og skemmti-
leg keppni sem skólar geta stoltir
tekið þátt í. Frekari upplýsingar um
nýju lögin má finna inná morfis.is,“
segir í tilkynningu frá nýrri stjórn
MORFÍs.
mm
Þegar hausta tekur fara hin ýmsu
félagasamtök aftur af stað eftir sum-
arfrí. Eitt þeirra er Félag eldri borg-
ara í Snæfellsbæ sem stóð fyrir tálg-
unarnámskeiði um síðustu helgi.
Átta þátttakendur voru á námskeið-
inu sem þótti heppnast frábærlega
í alla staði. Lærðu þátttakendur að
tálga ýmsa hluti, til dæmis fugla og
margs konar fígúrur undir hand-
leiðslu Magnúsar Steingrímssonar.
þa
Arnar Eyfells sýnir leikræna takta í
MORFÍs keppni. Ljósm. vf.is
Eru staðráðin í að bæta
á ný orðspor MORFÍs
Hinar ýmsu skemmtilegu fígúrur voru gerðar.
Félagsstarf eldri borgara í
Snæfellsbæ hafið á nýjan leik
Setið og tálgað.
Eftir að sæti í þriðju deild var tryggt, með sigri á KFS, fékk blaðamaður Skessuhorns liðsmenn Kára og helsta stuðningsmann
þeirra til að stilla sér upp. Ljós. jsb.
Ánægður með hvað liðið
hefur bætt sig
Sigurður Jónsson tók við þjálfun Káraliðsins í vor þar sem hann fékk skýr skilaboð
um að koma liðinu upp um deild. Hér sést þegar samningurinn við Sigurð var
innsiglaður.