Skessuhorn - 17.09.2014, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2014
Stykkishólmur - miðvikudagur 17. september
Blóðbankabíllinn verður við Íþróttamiðstöðina í
Stykkishólmi frá 8:30 - 12 og við Söluskálann Ók í
Ólafsvík frá kl. 14:30 - 18. Blóðgjöf er lífgjöf!
Akranes - miðvikudagur 17. september
Árlegt tónlistarkennaraþing Vesturlands hefst
í Tónbergi kl. 8:50. Engin kennsla verður í
tónlistarskólanum þennan dag.
Borgarbyggð - föstudagur 19. september
Félagsvist í safnaðarheimilinu Félagsbæ, Borgarnesi
kl. 20. 1. spilakvöld haustsins - þriggja kvölda
keppni, sem dreifist á fjögur kvöld. Góð verðlaun og
veitingar í hléi. Allir velkomnir.
Borgarbyggð - laugardagur 20. september
Tónlistarfélag Borgarfjarðar hefur 48. starfsár
sitt í Reykholtskirkju. Guðrún Ingimarsdóttir
sópransöngkona og rússneski sellókvartettinn
Rastrelli. Lífleg dagskrá, rússnesk tónlist, íslensk
sönglög, jazz- og dægurlög, tangóar og fleira.
Dagskráin hefst kl. 16. Aðgangseyrir er 2000 kr. 1000
kr. fyrir eldri borgara og frítt fyrir félaga og börn.
Borgarbyggð - þriðjudagur 23. september
Minningarfyrirlestur á dánardegi Snorra Sturlusonar
í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti kl. 20:30.
Limlestingar á líkama og sál. Um samband ofbeldis
og sagnalistar í Íslendingasögu og Njálu. Torfi
H. Tulinius prófessor við Háskóla Íslands flytur.
Kaffiveitingar og umræður Aðgangseyrir kr. 500.
Beitning
Duglega stelpu vantar aukavinnu
eða fullt starf í beitningu. Uppl. í
síma 773-4235.
Fellihýsi til sölu
Algjört dekurfellihýsi til sölu. Lítið
notað. Tegund Palomino árg. 2007.
Verðhugmynd 1.3 millj. Geymsla
fyrir hendi í vetur. Uppl. í síma
893-6901.
Kerra
Fjórhjólakerra til sölu.
Upplýsingar í síma 864-1990,
Stefán. Kerran er í Borgarbyggð.
Nissan Patrol 2005 til sölu
Dekurbíll til sölu. Árgerð 2005,
ekinn 208 þ.km. 35” Elegance
týpan með leðri og topplúgu. Upp-
tekin vél, túrbína og intercooler.
Allt nýtt í bremsum að aftan. Ný
olía og sía á skiptingu. Nýleg dekk.
Nýskoðaður og smurður. Nýspraut-
aður toppur. Ásett verð 3,5 millj-
ónir, tilboðsverð 3,2 milljónir. Engin
skipti. Bíll staðsettur á Akranesi.
Gylfi: 866-7632.
Reiðhjól til sölu
Til sölu nýlegt og ónotað Norco
Plateu 21 gíra kvenhjól. Dempari
að framan og í sæti, mikið af auka-
hlutum. Gott verð. Sími 865-7558.
Honda CRV árg 2011
Til sölu Honda CRVl, sjálfskiftur
Life style, ekinn 45 þ.km. Ný heils-
ársdekk, aðeins bein sala. Verð 4,4
millj. Litur: steingrár. Sími 431-1866.
Toyota Corolla
Til sölu ódýr Toyota Corolla, árg. 98.
Ekin tæp 300 þ.km, nýskoðuð. Er á
slitnum sumardekkjum en bílnum
fylgja svo gott sem ný nagladekk.
Verðhugmynd 250 þús. en skoðum
tilboð. Upplýsingar í netfang:
gmbjorns@gmail.com
Kvígur til sölu
Til sölu þrjár kvígur komnar að
burði. Uppl. í síma 864-1799.
Óska eftir íbúð til leigu
Ég er að leita af 3 - 4 herb. íbúð til
leigu á Akranesi, helst á Brekku-
bæjarskólasvæði en skoða allt. Er
með bankaábyrgð ef óskað er eftir.
Netfang: joborg@internet.is
Ódýr herbergi til leigu í vetur í
Borgarfirði
Höfum nokkur einstaklingsher-
bergi til leigu í vetur. Í hverju her-
bergi er gott rúm, skápur, sjónvarp,
skrifborð og skrifborðsstóll. Mögu-
leiki er að leigja herbergin fram í
maí. Sameiginleg baðherbergi og
aðgangur að eldhúsi með öllu sem
til þarf. Ferðaþjónustan Staðar-
húsum, Borgarfirði. Sími: 865-7578,
netfang: stadarhus@stadarhus.is
Vantar íbúð í Borgarnesi
Ungan mann með gamlan rólegan
hund vantar íbúð í Borgarnesi
til leigu. Rólegur, reglusamur og
reyklaus. Netfang: majahrund@
simnet.is.
Húsnæði
Vantar langtímaleigu íbúð 3-4
herb. frá 1 janúar 2015 upplýsingar
sigrun.pe@simnet.is
Garðabraut 45
Langtíma leiga 100 fm. 3 her-
bergja íbúð til leigu á besta stað
á Akranesi. Íbúðin er staðsett á
þriðju hæð og er gæludýrahald
samningsatriði í blokkinni. Frekari
upplýsingar fást í síma 869-3241
- Hafdís.
3 herbergja íbúð á Kjalarnesi
Til leigu góð 3ja herbergja íbúð
í Grundarhverfi á Kjalarnesi. (5
mín.akstur frá Hvalfj.göngum).
Leigist með eða án húsgagna, frá
1. nóvember nk. Reyklaus íbúð.
Einungis reglusamir leigjendur
koma til greina. Frekari upplýs. í
síma 867-9940.
Til leigu í Hálsasveit
Eldra íbúðarhús í Hálsasveit til
leigu. Upplýsingar hjá Bjarna í síma
824-4856.
Herbergi til leigu á Akranesi
Herbergi til leigu á Akranesi með
aðgangi að baðherbergi og eld-
húsi. Nánari upplýsingar gefur
Anna í síma 659-9516.
Ilmvatnsglös
Óska eftir að kaupa ódýrt eða fá
gefins gömul eða tóm ilmvatns-
glös (er að safna). Ef einhver á má
hringja í síma 781-0702.
Dekk á felgum til sölu
Til sölu eru 4 negld hálfslitin Fire-
stone Winterforce vetrardekk á
Toyota Hiace (2005) stálfelgum.
Stærð 225/75R/15. Verð samtals
42 þús. kr. Upplýsingar í síma
661-7173 eða í tölvupósti: gull-
hamrar@hotmail.com
Saunahús
Eigum eitt saunahús eftir. Húsið er
gott fyrir 4 - 5 eftir umfangi fólks.
Upplýsingar í síma: 650-3301.
Saunatunna
Saunatunna séð innanfrá. Næsta
sending í lok nóvember. Upplýs-
ingar í síma: 650-3301. Einnig má
sjá á Facebook: Saunatunnur.
Sauna utandyra
Þessi saunatunna er hjá Stracta-
hótel á Hellu. Næsta sending er
væntanleg í lok nóvember. Upp-
lýsingasími: 650-3301.
Skemmtilegt leikfang
Þessi Cherokee 4.0 sjálfskiptur
er til sölu fyrir fáar krónur. Þarf
svolítið viðhald. Upplýsingar í síma:
841-1454 og 611-6188.
Saunatunnur
Næsta sending af hinum vinsælu
saunatunnum frá Kanada er vænt-
anleg í lok nóvember. Pantanasími:
650-3301.
Á döfinni
DÝRAHALD
LEIGUMARKAÐUR
TIL SÖLU
Markaðstorg Vesturlands Nýfæddir Vestlendingar
4. september. Drengur. Þyngd
4.090 gr. Lengd 54 sm. Foreldrar:
Guðrún Kristinsdóttir og Haukur
Þorsteinsson, Hvanneyri. Ljósmóðir:
Lóa Kristinsdóttir. Með á myndinni
eru Gabríel Dagur og Magnús Sindri,
stóru bræður.
11. september. Stúlka. Þyngd 3.555
gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Dagbjört
Dúna Rúnarsdóttir og Þorkell Marvin
Halldórsson, Snæfellsbæ. Ljósmóðir:
G. Erna Valentínusdóttir.
ATVINNA Í ÓSKAST
BÍLAR/VAGNAR/KERRUR
14. september. Drengur. Þyngd 3.300
gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Anna
Þóra Þorgilsdóttir og Andri Lindberg
Karvelsson, Akranesi. Ljósmóðir: Elín
Sigurbjörnsdóttir.
ÓSKAST KEYPT
ÝMISLEGT
Getir þú barn
þá birtist það
hér, þ.e.a.s.
barnið!
www.skessuhorn.is
Felix og Hlynur á ferð um Vesturland
Tónlistarmennirnir Felix Bergsson
og Hlynur Ben munu halda tón-
leika víðsvegar um landið í haust
undir yfirskriftinni Gott kvöld.
Báðir eru þeir með nýja plötu í far-
teskinu og í sameiningu munu þeir
flytja lög af þeim í bland við eldra
sólóefni. Þetta er í fyrsta skipti
sem Felix og Hlynur leiða saman
hesta sína á tónlistarsviðinu en þeir
hafa, sitt í hvoru lagi, verið áberandi
sem söngvarar og skemmtikraftar.
Þeir félagar ætla að láta nokkrar
skemmtilegar sögur flakka á milli
laga og eiga notalega stund með
tónleikagestum.
Fyrstu tónleikarnir eru sem hér
segir: 18. sept - Akranes, Gamla
kaupfélagið. 25. sept - Borgarnes,
Landnámssetur. 26. sept - Hella,
Stracta Hótel. 2. október - Stykkis-
hólmur, Vatnasetrið. Allir tónleik-
arnir hefjast kl.21:00
fréttatilkynning
Minningarfyrirlestur um Snorra
Sturluson næstkomandi þriðjudag
Snorrastofa í Reykholti býður upp
á árlegan minningarfyrirlestur um
Snorra Sturluson á dánardegi hans
þriðjudaginn 23. september nk.
í bókhlöðunni kl. 20:30. Gestur
kvöldsins verður Torfi H. Tulinius,
prófessor í miðaldafræðum við Há-
skóla Íslands, og mun hann flytja
fyrirlestur með yfirskriftinni „Lim-
lestingar á líkama og sál. Um sam-
band ofbeldis og sagnalistar í Íslend-
ingasögu og Njálu.“
Torfi mun leita svara við því, hvort
samband sé á milli þess að mesta
blómaskeið miðaldabókmennta á Ís-
landi hafi líka verið tími grimmustu
átaka Íslandssögunnar og að sam-
tímamenn höfunda Eglu, Laxdælu
og Njálu áttu í heiftarlegum átökum
þar sem margir týndu lífinu og enn
fleiri urðu fyrir margs kyns áföllum.
Í tilefni af því að átta hundruð ár
eru liðin frá fæðingu Sturlu sagna-
ritara Þórðarsonar og í framhaldi af
nýlega endurvaktri umræðu um að
Sturla kynni að hafa samið Brennu-
Njáls sögu, verður leitast við að bera
saman hvernig ofbeldi, einkum af-
leiðingum þess, er lýst í Íslendinga-
sögu Sturlu og Njálu. Sams kon-
ar skilningur á áhrifum áfalla á sál-
arlífið virðist vera til staðar í báð-
um sögunum. Verður þetta rökstutt
með dæmum og rætt með hliðsjón
af kenningum nútímasálarfræði um
ofbeldi og áhrif þess á sálina.
Boðið er upp á dagskrána í sam-
vinnu við Miðaldastofu Háskóla Ís-
lands og er hún styrkt af Menning-
arráði Vesturlands. Í kjölfar fyrirlest-
urs Torfa verða umræður og kaffi-
veitingar og eru allir hjartanlega vel-
komnir. Aðgangur er 500 kr.
fréttatilkynning
Torfi H. Tulinius prófessor í miðalda-
fræðum.