Skessuhorn - 01.10.2014, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 40. tbl. 17. árg. 1. október 2014 - kr. 600 í lausasölu
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
Lúsina burt!
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinn-
ar, undir stjórn Sigurðar Halls Sig-
urðssonar brúarsmiðs, byrjaði 19.
ágúst sl. byggingu nýrrar brúar yfir
Geitá þar sem beigt er af Kalda-
dal áleiðis að Langjökli. Brúin er
nú komin í notkun og brúarsmið-
ir þessa dagana að ljúka frágangi
og flytja búðir sínar. Nýja brúin er
einbreið, tæplega fimm metrar á
breidd og 27 metrar að lengd. Brú-
arstöplar eru steyptir en stálbitar
bera hana uppi en brúargólf er úr
tré. Að sögn Sigurðar Halls brúar-
smiðs kemur nýja brúin í stað brú-
ar sem byggð var á sjöunda áratug
liðinnar aldar og var mun styttri
og mjórri. Vaxandi umferð er um
þennan veg sökum ferðaþjónustu á
og við Langjökul. Gert er ráð fyrir
að sú umferð aukist enn meira þeg-
ar ísgöngin í Langjökli verða opn-
uð fyrir mitt næsta ár.
þá/ Ljósm. mm.
Viðburðafjöldinn í Bíóhöllinni á
Akranesi er kominn í 450 á þessu ári
og eru það jafn mikil umsvif í rekstr-
inum og var allt síðasta ár. Það var þó
toppár í starfseminni, segir Ísólfur
Haraldsson framkvæmdastjóri Vina
Hallarinnar sem starfrækir Bíóhöll-
ina. Fyrir utan starfsemina í Bíóhöll-
inni koma Vinir Hallarinnar einn-
ig að samstarfi í skipulagningu og
stjórnun viðburða á höfuðborgar-
svæðinu. Nýlokið er októberfesti
sem Vinir Hallarinnar tóku að sér að
halda fyrir stúdentaráð Háskóla Ís-
lands. „Sá viðburður er svona í um-
fangi eins og tvær til þrjár Lopapeys-
ur,“ segir Ísólfur í samtali við Skessu-
horn.
Hann segir að bíósýningum á
þessu ári hafi fjölgað og séu nú oft
um 20 í hverri viku. Þá séu fyrirtæki
og einstaklingar farnir að nota Bíó-
höllina meira fyrir viðburði á þessu
ári en áður, svo sem fyrir fundi og
ráðstefnur. Ísólfur segir að tækni-
byltingin sé að hjálpa til við rekst-
ur Bíóhallarinnar, ekki síst eftir að
fjárfest var í búnaði á síðasta ári sem
geri kleift að fá allar bíómyndir send-
ar beint inn á netþjón. „Áður gat það
tekið okkur viku að fá myndir til sýn-
ingar. Nú má segja að við séum ein-
göngu með nýjar myndir til sýning-
ar og allir nýju íslensku myndirnar.“
Ísólfur segir að þessi nýja tækni gefi
enn meiri möguleika til að fjölga sýn-
ingum. Fjöldi sýningargesta skipti
ekki eins miklu máli og áður. þá
Ný brú yfir Geitá
Stóraukinn viðburðafjöldi
Ekki hefur farið framhjá neinum að haustið
færist yfir. Hinir grænu litir víkja nú hratt fyrir
öðrum og litskrúðugri. Þessa fallegu mynd af
fölnuðu reyniviðarblaði tók Áskell Þórisson á
Ægissíðu í Hvalfjarðarsveit um liðna helgi.
Husky gekk
berserksgang
Husky hundur slapp frá eigendum
sínum við afleggjarann að Stóra
Hrauni í Kolbeinsstaðarhreppi
sunnudaginn 21. september síðast-
liðinn. Höfðu eigendurnir stopp-
að bílinn og leyft hundinum að fara
út til að létta á sér. Strauk hann þá
frá þeim. Eigendurnir fundu ekki
hundinn og fóru eftir stutta leit
leiðar sinnar en létu enga á bæjun-
um í sveitinni vita að Husky hund-
ur gengi þar laus. Þar var hann því
í vikutíma, gerðist dýrbítur og gekk
í skrokk á lömbum. Drap hund-
urinn að minnsta kosti sex þeirra.
Helgina eftir fannst svo hundur-
inn í norðanverðu Eldborgarhrauni
þegar bændur smöluðu landið. Var
hann þá umsvifalaust aflífaður enda
höfðu bændur þá gengið fram á
dauðu lömbin eftir hundinn og far-
ið að gruna hvers kyns var. Þóra
Sif Kópsdóttir bóndi á Ystu Görð-
um, eigandi dauðu lambanna, seg-
ir verulega ámælisvert af eigendum
hundsins að gera ekki nágrönnum á
bæjunum viðvart um að hans væri
saknað og gengi laus í haganum.
Þá hefði strax verið hægt að hjálpa
þeim við leitina og gera viðeigandi
ráðstafanir. Einu merki þess að
hundsins væri saknað var sakleysis-
leg tilkynning á Facebook síðu eig-
endanna þar sem sagt var að hunds-
ins væri saknað, eða „kúridýrsins“
eins og það var orðað. mm
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Frá Landnámssetri
Fyrsta frumsýning vetrarins
Unglingurinn Ómar – alls staðar
3. október kl. 20:00
Ómar Ragnarsson heldur áfram
að segja frá sinni litskrúðugu ævi
þar sem frá var horfið í fyrra.
Miðasala í síma 437 1600 og
á landnam@landnam.is
Nánar á www.landnamssetur.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4