Skessuhorn - 22.10.2014, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 43. tbl. 17. árg. 22. október 2014 - kr. 600 í lausasölu
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
Lúsina burt!
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Frá Landnámssetri
Fyrsta frumsýning vetrarins
Unglingurinn Ómar – alls staðar
Ómar Ragnarsson heldur áfram
að segja frá sinni litskrúðugu ævi
þar sem frá var horfið í fyrra.
Næsta sýning:
Föstudaginn 7. nóv. kl. 20:00
Tónleikar
Laugardaginn 22. nóv. kl. 21:00
Bjartmar Guðlaugsson
Sunnudaginn 30. nóv. kl. 20:30
Systurnar frá Einarsnesi
Jólatónleikar
Föstudaginn 19. des. kl. 20:30
KK og Ellen
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Það var þétt setið í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þegar félagarnir Sveppi og Villi mættu í hús í síðustu viku til að skemmta yngstu kynslóðinni á Snæfellsnesi. Koma
þeirra var liður í Rökkurdögum. Voru þeir félagar með allskyns sprell, töfrabrögð, vísindi og svo spiluðu þeir og sungu eins og þeim einum er lagið. Í lokin gáfu þeir sér
svo tíma til að spjalla við krakkana og sitja fyrir með þeim. Ljósm. tfk.
Skagakonan Guðrún Karítas Sig-
urðardóttir var valin efnilegasti leik-
maður Íslandsmótsins í knattspyrnu
2014. Síðastliðið mánudagskvöld var
haldin uppskeruhátíð vegna Ísland-
mótsins í bækistöðvum KSÍ. Þetta
var nokkur uppreisn æru fyrir Guð-
rúnu Karítas en sem kunnugt er féll
kvennalið ÍA niður í 1. deild í haust
án þess að vinna leik í Pepsídeild-
inni síðasta sumar. Guðrún Karítas á
ekki langt að sækja knattspyrnuhæfi-
leikana, er dóttir Sigurðar Jónsson-
ar fyrrum atvinnumanns. Hún segir
þetta verða sér hvatning til að verða
enn betri í boltanum. Hjá körlun-
um var valinn efnilegastur Elías Már
Ómarsson og var þetta annað árið
í röð sem Keflvíkingur var valinn
efnilegasti leikmaður Íslandsmóts-
ins. Bestu leikmenn Íslandsmótsins
í knattspyrnu komu úr röðum Ís-
landsmeistara Stjörnunnar, sem og
bestu þjálfararnir. þá
Á fundi bæjarráðs Akraness síðast-
liðinn fimmtudag voru samþykktar
allnokkrar stjórnskipulagsbreyting-
ar hjá Akraneskaupstað en bæjar-
stjórn á síðan eftir að leggja blessun
sína yfir þær. Þessar breytingar lúta
að ýmsum málaflokkum innan bæj-
arkerfisins og ekki var eining
um þær allar innan bæjar-
ráðsins. Í fyrsta lagi var sam-
þykkt með tveimur atkvæðum
gegn einu tillaga um stofnun
nýs skipulags- og umhverfis-
ráðs með sameiningu fram-
kvæmdaráðs og skipulags-
og umhverfisnefndar. Enn-
fremur var samþykkt að færa
verkefni sem snúa að íþrótta-
málum á skóla- og frístunda-
svið. Ingibjörg Valdimars-
dóttir fulltrúi S-lista, sem er
í minnihluta, lagði fram bókun við
tillögunni. Þar kemur meðal annars
fram að hún telji óeðlilegt að eftirlit
og ákvörðun með framkvæmdum á
vegum bæjarins sé á sömu hendi
og skipulag sem þær sömu fram-
kvæmdir heyri undir.
Einnig var samþykkt að leggja
niður fjölskylduráð og stofna skóla-
og frístundaráð og velferðar- og
mannréttindaráð. Ennfremur að
staða sviðsstjóra fjölskylduráðs
verði lögð niður og auglýstar verði
stöður sviðsstjóra skóla- og frí-
stundasviðs og velferðar- og mann-
réttindasviðs. Þá var samþykkt ein-
róma tillaga um breytingu á innra
skipulagi stjórnsýslu- og fjármála-
sviðs og felst í að leggja niður starf
þjónustu- og upplýsingastjóra.
Sviðsstjóra var falið að leggja fram
tillögu að nýju skipulagi í samráði
við bæjarstjóra fyrir 1. janúar 2015.
Þá var einnig samþykkt tillaga
um stofnun menningar- og safna-
nefndar með sameiningu stjórnar
Byggðasafnsins í Görðum og
menningarmálanefndar. Ennfrem-
ur að fram fari skoðun á menning-
ar- og safnamálum á Akranesi með
heildarsýn á málaflokknum í huga.
Ingibjörg Pálmadóttir bæjarfulltrúi
Frjálsra með Framsókn lagði
fram bókun þar sem hún vill
tryggja að allir flokkar í bæj-
arstjórn eigi fulltrúa í menn-
ingar- og safnanefnd en svo
er ekki miðað við það fyr-
irkomulag sem lagt er til
með breytingunni. Ingi-
björg Valdimarsdóttir bæj-
arfulltrúi Samfylkingarinnar
lagði einnig fram bókun. Þar
kemur fram að hún telji ekki
nægjanlega reynslu komna á
núverandi fyrirkomulag inn-
an stjórnkerfisins til að ástæða sé til
þeirra breytinga sem lagðar eru til,
en Ingibjörg lagðist þó ekki gegn
tillögunni. Tillaga að nýju skipu-
riti fyrir Akraneskaupstað var sam-
þykkt einróma á fundi bæjarráðs en
það bíður nú endanlegs samþykkis
bæjarstjórnar.
þá/ Ljósm. Friðþjófur.
Guðrún Karítas
valin efnilegust
Stjórnkerfisbreytingar samþykktar
í bæjarráði Akraness
www.akranes.is