Skessuhorn - 22.10.2014, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Klassískt íslenskt jólahlaðborð
Verð kr. 7.900
Jólahlaðborð og gisting
kr. 12. 600
á mann í tveggja manna herbergi m/morgunverði
kr. 15. 400
á mann í eins manns herbergi m/morgunverði
Tilboð fyrir hópa í síma 437 1119
Pantanir í síma 437 1119 eða á
info@hotelborgarnes.is
Hótel Borgarnes
Egilsgata 16
310 Borgarnes
Sími 437 1119 · Fax 437 1443
www.hotelborgarnes.is
info@hotelborgarnes.is
Jólahlaðborð á
Hótel Borgarnesi
Verð 7.900 kr.
21., 28. og 29. nóvember
Brúnegg ehf. óskar eftir jákvæðum og
drífandi einstakling í fullt starf við eggjabúið
á Stafholtsveggjum II í Borgarbyggð
Viðkomandi þarf að hafa einhverja reynslu og áhuga
á að vinna við bústörf og getað tekið helgarvaktir
Þarf að hafa bifreið til umráða
Nánari upplýsingar gefur Kristinn Gylfi Jónsson
í síma 892 3067
Umsóknir skilist á brunegg@brunegg.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Atvinna
Prjónar, garn
og bækur
Opið:
Mánud. – föstud. kl. 9 – 18
Laugardaga kl. 11 - 15
Ármúla 18, 108 Reykjavík - Sími 511 3388
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Stjórn Landssambands hestamanna-
félaga ákvað í síðustu viku, í að-
draganda landsþings félagsins, að í
a.m.k. næstu tvö skipti verði Lands-
mót hestamanna haldið á höfuð-
borgarsvæðinu. Stjórn LH taldi að
hvorki Skagafjörður né Hella væru
lengur valkostir sem hestamenn
geti sætt sig við. Færð voru fyrir því
ýmis rök. Skriflegt samkomulag við
Gullhyl ehf, félag Skagfirðinga um
Landsmót 2016, var um leið brot-
ið. Ákvörðun þessari var vægast sagt
illa tekið af hestamönnum á lands-
byggðinni sem tóku höndum saman
og sömdu vantrauststillögu á for-
mann LH sem þeir hugðust flytja
á landsþinginu sem fram fór á Sel-
fossi. Úr því varð ekki því Haraldur
Þórarinsson formaður sagði af sér
og fylgdi stjórn hans öll fordæmi
hans. Fráfarandi stjórn LH hefur
nú óskað eftir því að koma eftirfar-
andi á framfæri í ljósi úrsagnar sinn-
ar á landsþinginu:
„Í ljósi atburðarásar á Landsþingi
LH dagana 17. og 18. október
2014 viljum við koma því á fram-
færi að það var sameiginleg ákvörð-
un fráfarandi stjórnar að segja af sér
þinginu um helgina í framhaldi af
afsögn formannsins Haraldar Þór-
arinssonar. Eins og fram kom í máli
Haraldar þá hörmum við þessa at-
burðarás og í ljósi stöðunnar þá
töldum við þetta rétta ákvörðun.
Að beiðni formanna allra félag-
anna tóku fráfarandi stjórnar-
menn að sér að starfa sem starfs-
tjórn fram að framhaldi þingfund-
ar þann 8.nóvember. Formaður
starfsstjórnarinnar er Sigurður Æv-
arsson.“
Í tilkynningu frá starfsstjórninni
segir að félagar í henni standi þétt
við bak fráfarandi formanns LH,
Haralds Þórarinssonar. „Við höf-
um unnið með hagsmuni heild-
arinnar að leiðarljósi og tekið
ákvarðanir út frá því. Ákveðið var
að koma hreint fram og heiðarlega
fyrir Landsþing og draga til baka
viljayfirlýsingu við Gullhyl ehf.
um að halda Landsmót hestmanna
árið 2016. Með því gerðum við ráð
fyrir því að fá málefnalegar um-
ræður um landsmót hestamanna
og framtíð þeirra. Svo varð ekki.“
Þá telur stjórn LH að hún hafi
engin lög eða reglur brotið. „Um-
ræðan sem orðið hefur innan
sem utan hreyfingarinnar í kjöl-
far þessa, er okkur hestamönnum
ekki til framdráttar. Ósannindi
og ærumeiðingar hafa átt sér stað
í garð fyrrum formanns og stjórn-
armanna og er það miður. Við vilj-
um ítreka það að við höfum unn-
ið með hagsmuni heildarinnar að
leiðarljósi og vonum að svo verði
einnig hjá þeim sem taka við. Við
óskum hestamönnum velfarnað-
ar í framtíðinni. Fráfarandi stjórn
LH.“
mm
Svipmynd frá Landsmóti LH í Skagafirði. Deila hestamanna snýr að staðsetningu landsmóta.
Fráfarandi stjórn LH samstíga í úrsögn