Skessuhorn - 22.10.2014, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Þrjár ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
Bíldshöfða 12 • Reykjavík • 587 6688 • www.fanntofell.is
fanntofell@fanntofell.is • facebook.com/fanntófell-ehf
BORÐPLÖTUR - SÓLBEKKIR
Framleiðum eftir óskum hvers og eins
Mikið úrval efna, áferða og lita
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
Bílar frá Gámaþjónustu Vesturlands
minna á árvekniátakið
Eins og landsmönnum er lík-
lega flestum kunnugt er í októ-
bermánuði ár hvert minnt á starf í
Krabbameinsfélaginu með sérstöku
árvekni átaki. Fyrirtæki og einstak-
lingar leggja átakinu lið og meðal
annarra starfsmenn Gámaþjónustu
Vesturlands við Höfðasel á Akra-
nesi. Allir bílar fyrirtækisins eru nú
merktir með bleiku slaufunni. Hér
eru tveir af starfmönnum GV, þeir
Eðvarð Jón Sveinsson og Sigurjón
Þórisson, við bílinn sem þeir aka á
dags daglega.
mm
Styrktartónleikar í Borgarneskirkju
Líkt og flestum er kunnugt er októ-
bermánuður tileinkaður Bleiku
slaufunni, árvekni- og söfnunará-
taki Krabbameinsfélags Íslands
gegn krabbameini hjá konum. Að
því tilefni verður Freyjukórinn með
styrktartónleika í Borgarneskirkju
miðvikudaginn 29. október næst-
komandi klukkan 20:00. Allur ágóði
sem af tónleikunum kemur renn-
ur óskiptur til Bleiku slaufunnar
og munu allir sem að tónleikunum
koma gefa vinnu sína. Aðgangur inn
á tónleikana er ókeypis en söfnunar-
baukur verður á staðnum. grþ
Pennagrein
Ný neysluviðmið
já takk!
Fyrsta þingmannamál Framsókn-
arflokksins á þessum þingvetri var
að leggja fram þingsályktunartil-
lögu þess efnis, að fela félags – og
húsnæðismálaráðherra, að hefja
útreikning nýrra neysluviðmiða
fyrir íslensk heimili. Mælt var
fyrir þingmannamálinu í þingsal
þann 25. september sl. og nú hef-
ur málinu verið vísað til velferð-
arnefndar þingsins.
Samkvæmt tillögunni er lagt til
að útreikningarnir verði unnir í
samráði við hlutaðeigandi aðila.
Þessir hlutaðeigandi aðilar geta
t.d. verið frá ríki, sveitarfélögum,
Hagsmunasamtökum heimilanna
og verkalýðshreyfingin. Eflaust
eru fleiri aðilar sem gagnlegt væri
að fá að borðinu. Við útreikn-
ing nýrra neysluviðmiða skal taka
tillit til þeirra þátta sem núver-
andi neysluviðmið byggjast á en
auk þess verði húsnæðiskostnað-
ur tekinn með inn í dæmið. Í því
samhengi verði horft til mismun-
andi búsetuforma og staðsetning-
ar húsnæðis. Með húsnæðiskostn-
aði er átt við allan kostnað sem
fellur til vegna eigin húsnæðis og
leiguhúsnæðis.
Í þingsályktunartillögunni er
m.a. lagt til að gerð verði könn-
un á raunframfærslukostnaði ein-
staklinga og fjölskyldna í landinu.
Þessi raunframfærslukostnaður
verði síðan nýttur til að finna út
lágmarksneysluviðmið. Reiknilík-
anið verði opinbert eins og það
er í þeim löndum sem við berum
okkur oft saman við og má nefna
Norðurlöndin í því samhengi.
Í störfum þingsins þann 15.
október minnti ég, fyrsti flutn-
ingsmaður tillögunnar, á mikil-
vægi þess að endurútreikningar á
neysluviðmiðum fari fram. Ástæð-
an er sú að mikil umræða hef-
ur verið í þjóðfélaginu og á sam-
félagsmiðlum undanfarna daga,
m.a. vegna útreikninga á mat-
arkostnaði í fjárlagafrumvarpi.
En fram hefur komið í fjölmiðl-
um að talsverður munur sé á milli
þeirra útreikninga sem fjármála-
ráðuneytið styðst við og þess sem
Hagstofa Íslands miðar við. Það
væri til bóta í allri umræðunni
ef til væri tala sem hægt væri að
vera sammála um að væri sú rétta
um þennan kostnaðarlið sem öll
heimili þurfa að bera.
Afar brýnt er að tillagan nái
fram að ganga. Ný neysluviðmið
eru mikilvæg fyrir heimilin í land-
inu.
Elsa Lára Arnardóttir
Höf. er þingmaður Framsóknar-
flokksins í NV kjördæmi.
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3