Skessuhorn - 29.10.2014, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 44. tbl. 17. árg. 29. október 2014 - kr. 600 í lausasölu
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
Lúsina burt!
www.akranes.is
Þrjú lið af Vesturlandi taka þátt í
Útsvari, spurningakeppni Ríkis-
útvarpsins sem hófst 19. septem-
ber síðastliðinn. Fyrsta umferð er
nú um það bil hálfnuð. Í keppninni
taka þátt 24 lið og það er Borgar-
byggð sem ríður á vaðið liða af
Vesturlandi. Borgarbyggð mæt-
ir Skagaströnd 7. nóvember næst-
komandi, eða í næstu viku. Stykkis-
hólmur er nú með í Útsvari í fyrsta
skipti og mæta Hólmarar Ísafjarð-
arbæ 21. nóvember. Föstudags-
kvöldið 5. desember mætast síðan
Akranes og Seltjarnarnes.
Búið er að skipa Útsvarsliðin þrjú
af Vesturlandi. Borgarbyggð mæt-
ir með sama lið og í fyrra: Stefán
Gíslason, Evu Hlín Alfreðsdóttur
og Jóhann Óla Eiðsson. Lið Stykk-
ishólms verður skipað þeim Önnu
Melsteð, Magnúsi A. Sigurðssyni
og Róberti Arnari Stefánssyni. Ak-
urnesingar komust í úrslit í keppn-
inni í fyrra og einn er eftir úr því
liði, Valgarður Líndal Jónsson. Vil-
borg Þórunn Guðbjartsdóttir var
varamaður í liðinu í fyrra en hún
er nú aðalmaður og nýr í liðinu er
einnig Vífill Atlason hrekkjalómur
og bloggari. þá
Borgfirðingurinn Guðmundur
Ingi Þorvaldsson, leikari og fram-
kvæmdastjóri
Tjarnarbíós
í Reykjavík,
hefur verið
tilnefndur til
AMBA verð-
launanna sem
veitt eru MBA
nemendum í
Evrópu til að
efla viðskiptamenntun á framhalds-
stigi. Verðlaunin verða veitt við há-
tíðlega athöfn í London á morgun,
fimmtudag. Guðmundur stund-
ar MBA nám sitt við Háskólann í
Reykjavík og útskrifast næsta vor.
Samtals eru sex einstaklingar til-
nefndir til verðlaunanna en pen-
ingaverðlaun eru fyrir efstu fjögur
sætin. mm Grunnskólanemendur, sem jafnframt stunda tónlistarnám á Akranesi, létu í sér heyra framan við bæjarskrifstofurnar á
Akranesi síðasta fimmtudag. Tilefnið var verkfall tónlistarskennara hjá FT. Kröfðust nemendur þess að samið yrði við tón-
listarkennara eigi síðar en strax. Nú hefur verkfallið staðið í viku og hefur þegar haft umtalsverð áhrif á menningardagskrá
sem framundan er á Akranesi. Meðal annars falla niður hinir árlegu tónleikar Ungir – Gamlir sem áttu að vera á morgun í
Bíóhöllinni, jafnframt einn stærsti viðburður Vökudaga sem nú eru að hefjast. Sjá nánar um verkfall tónlistarkennara og
afleiðingar þess á bls. 14. Ljósm. grþ.
Tilnefndur til
AMBA verðlaunanna
Búið að skipa
Útsvarsliðin
Nýjar kennsluaðferðir með að-
stoð spjaldtölvutækni sem inn-
leiddar voru í Heiðarskóla á síð-
asta kennsluvetri vekja nú athygli
langt út fyrir landsteinana. Í vik-
unni heimsóttu fréttamenn frá rík-
issjónvarpi Suður Kóreu skólann
til að afla efnis um kennslustarfið
í Heiðarskóla. „Það er augljóst að
Íslendingar eru komnir lengra en
við í þessum efnum. Það verður því
áhugavert að sýna þetta efni í ríkis-
sjónvarpi Suður Kóreu,“ sagði Yo-
ong Sik Park sjónvarpsfréttamaður
og framleiðandi suður-kóreanska
ríkissjónvarpsins KBS í samtali við
blaðamann Skessuhorns í Heiðar-
skóla í Hvalfjarðarsveit í gær.
„Við erum að gera þrjá sjónvarps-
þætti um nýjar aðferðir í kennslu
barna og unglinga. Bæði skoðum
við kennsluaðferðir heima í Suður
Kóreu en förum svo út í heim og
skoðum hvernig kennslu er háttað
í öðrum löndum. Með þessu erum
við að varpa ljósi á nýjustu þróun
á þessum sviðum. Aðferðirnar hér í
Heiðarskóla eru mjög áhugaverðar.
Það er alveg frábært að sjá hvern-
ig tæknin er notuð við kennsluna.
Efnið sem við fáum hér mun vekja
athygli. Heima í Suður Kóreu er
þessi þróun rétt að hefjast,“ sagði
Yoong Sik Park.
Hjálmur Dór Hjálmsson er kenn-
ari og verkefnastjóri tækniþróunar
hjá Heiðarskóla. Sveitarfélagið
gaf öllum 91 nemanda við skól-
ann tölvurnar. „Unglingadeildin
fékk þær síðasta haust. Síðan fengu
krakkarnir í 1.–7. bekk þær afhent-
ar í janúarbyrjun nú í ár. Spjald-
tölvuvæðingin hefur gengið vonum
framar. Krakkarnir eru áhugasam-
ari fyrir náminu. Viðhorf þeirra er
jákvæðara. Þau fá fjölbreyttari leið-
ir til að skila námsverkefnum. Þetta
snýst um það að búa börn nútímans
undir framtíð sem er ekkert sérlega
lík fortíð okkar sem erum fullorðin
í dag. Þessi tækni kemur þó ekki í
staðinn fyrir það sem fyrir var held-
ur er hún viðbót þar sem þau læra
að nota upplýsingatæknina,“ segir
Hjálmur. mþh
Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit
vekur heimsathygli
Föstudagur 31. okt.
Barinn opinn til kl. 03
Tveir fyrir einn af
krana frá kl. 22-24
Laugardagur
1. nóv. kl. 17
Opnun listsýningar
Ernu Hafnes og
Dýrfinnu Torfadóttur
Pub Quiz kl. 21
Einn til þrír í liði
Vegleg verðlaun í boði
1000 kr. miðinn, innifalinn einn stór
Gamla settið skemmtir frá miðnætti
Sunnudagur
2. nóv. kl. 20
Karlakórinn Svanir
heldur tónleika
Stillholti 16-18 • Akranesi
Sími 431 1401
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4