Skessuhorn - 05.11.2014, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 45. tbl. 17. árg. 5. nóvember 2014 - kr. 600 í lausasölu
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
Lúsina burt!
www.akranes.is
Á hverjum miðvikudegi hittist hópur kvenna á Akranesi ásamt litlum börnum sínum. Þær eiga það sameiginlegt að vera allar í fæðingarorlofi og skiptast á að bjóða hvor
annarri heim. Mæðurnar eru allar komnar yfir þrítugt og eiga á bilinu eitt og upp í fimm börn. Ungbörnin eru á aldrinum sex vikna upp í átta mánaða. Sjá nánar bls. 19.
Ljósm. grþ.
Ljúka loks fráveituframkvæmdum
Talsverð aukning verður í fjár-
festingum Orkuveitu Reykjavík-
ur og dótturfyrirtækja næstu ár
samkvæmt fjárhagsáætlun sam-
stæðunnar. Uppbygging vegna
umhverfismála er áberandi en
einnig efling veitukerfa sem
undir OR heyra, einkum á Vest-
urlandi. Áformað er að verja 10,3
milljörðum króna í fjárfesting-
ar OR árið 2015 en þær nema
6,4 milljörðum króna nú í ár. Í
Planinu svokallaða, sem gert var
vegna fjárhagslegrar endurskipu-
lagningar á fyrri hluta árs 2011,
fólst m.a. að fresta hluta fram-
kvæmda við fráveitur á Vestur-
landi. Árið 2015 verður þráður-
inn í því mikilvæga umhverfis-
verkefni tekinn upp að nýju og
áformað að ljúka uppbyggingu
nýs kerfis með hreinsistöðvum
og sjólögnum árið 2016. Upp-
haflega stóð til að öllum fram-
kvæmdum við fráveiturnar á
Vesturlandi yrði lokið 2009 og
mun því seinkunin verða sjö ár
gangi þessar nýjustu áætlanir eft-
ir. Árið 2016 munu þá fráveitu-
kerfin í sveitarfélögunum Borg-
arbyggð og Akranesi standast
kröfur sem gerðar eru samkvæmt
reglugerðum. Á Akranesi er
einnig hafin bygging nýrrar að-
veitustöðvar rafmagns, sem gerir
m.a. fiskvinnslu í bænum kleift að
nota rafmagn í auknum mæli við
bræðslu í stað olíu. Áfram verður
unnið að endurnýjun stofnæðar
hitaveitunnar frá Deildartungu-
hver, sem sér Akranesi og Borg-
arbyggð fyrir heitu vatni.
Í tilkynningu frá OR segir að
fjárhagsáætlun samstæðu Orku-
veitu Reykjavíkur fyrir árið
2015 og langtímaáætlun fyr-
ir árin 2016 til og með 2020 sé
fyrsta áætlunin sem gerð er eft-
ir að fyrirtækinu var skipt upp að
lagaboði. Áætlanirnar hafa hlot-
ið samþykki stjórna dótturfélaga
Orkuveitunnar, stjórnar móður-
félags og eru nú til meðferðar hjá
Reykjavíkurborg, sem hluti fjár-
hagsáætlunar samstæðu borgar-
innar. Gert er ráð fyrir að eigið
fé Orkuveitu Reykjavíkur hækki
um u.þ.b. sjö milljarða króna
árið 2015 og eiginfjárhlutfall
verði 34,6% í árslok 2015.
þá/ Ljósmyndir úr safni
Skessuhorns.
Sumarið 2009 var unnið við að leggja
nýja stofnlögn vegna fráveitu um
Borgarnes og áleiðis út í Brákarey þar
sem dælustöðvarhús stendur fullbúið.
Dælustöðvarhús fráveitunnar á
Akranesi hefur staðið fullgert frá
2009 þegar upphaflega var áætlað að
verkefninu lyki. Dælur voru hins vegar
ekki keyptar. Nú verður þráðurinn
tekinn upp að nýju og áætlað að ljúka
verkinu 2016.
Sjófugl í hættu
Ástand ýmissa sjófuglastofna við
Vesturland er afar slæmt eftir
nær linnulausan ætisskort síðast-
liðinn áratug. Þetta á einkum við
um ritu og kríu auk svartfugla-
tegundirnar álku, langvíu, teistu,
stuttnefju og lunda. Ungar hafa
ekki komist á legg og varp fuglum
fækkar stöðugt. Lífið í björg-
um og á öðrum varpstöðvum er
ekki lengur svipur hjá sjón. Líf-
fræðingar sem stunda fuglarann-
sóknir standa ráðþrota gagnvart
ástandinu.
Sjá nánar bls. 14.
Ekki á síld
Horfur eru á að litlar sem eng-
ar síldveiðar verði stundaðar af
smábátum við norðanvert Snæ-
fellsnes nú í vetur. Engir kaup-
endur hafa fundist að síldinni.
Fyrirtæki sem hafa keypt lag-
netasíld af smábátunum undan-
farin ár halda öll að sér höndum
og vilja ekki kaupa síld. Stjórn-
völd hafa auk þess hækkað leigu-
verð á síldinni til smábáta um
23% frá því í fyrra.
Sjá bls. 2.
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Frá Landnámssetri
Ekki missa af
Unglingurinn Ómar – alls staðar
Ómar Ragnarsson heldur áfram
að segja frá sinni litskrúðugu ævi
þar sem frá var horfið í fyrra.
Síðasta sýning
Föstudaginn 7. nóvember kl. 20:00
Tónleikar
Laugardaginn 22. nóv. kl. 21:00
Bjartmar Guðlaugsson
Sunnudaginn 30. nóv. kl. 20:30
Systurnar frá Einarsnesi
Jólatónleikar
Föstudaginn 19. des. kl. 20:30
KK og Ellen
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4