Skessuhorn - 05.11.2014, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Bíldshöfða 12 • Reykjavík • 587 6688 • www.fanntofell.is
fanntofell@fanntofell.is • facebook.com/fanntófell-ehf
BORÐPLÖTUR - SÓLBEKKIR
Framleiðum eftir óskum hvers og eins
Mikið úrval efna, áferða og lita
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Nýlega voru breytingar á stjórnskipulagi
Akraneskaupstaðar samþykktar í bæjar-
stjórn. Eins og gengur voru skiptar skoð-
anir um skynsemi og mikilvægi þessara
breytinga, sumar þeirra voru samþykkt-
ar af öllum bæjarfulltrúum en aðrar fóru
í gegn í krafti meirihluta Sjálfstæðisflokks
og Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn. Við
undirrituð viljum hér í stuttu máli skýra
okkar afstöðu til þessara breytinga, sum-
ar þeirra eru að okkar mati nauðsynleg-
ar en annað teljum við að óskynsamlegt
sé að gera.
Þær breytingar sem um ræðir eru þær,
að í fyrsta lagi eru skipulags- og umhverf-
isnefnd og Framkvæmdaráð lögð niður
og í stað þeirra er stofnað Skipulags- og
umhverfisráð. Í öðru lagi er Fjölskyldu-
ráð lagt niður og verkefnum þess í stað-
inn deilt niður á tvö ný ráð, Skóla- og frí-
stundaráð og Velferðarráð. Að síðustu var
ákveðið að sameina stjórn Byggðasafns-
ins í Görðum og menningarmálanefnd
sem verður þá menningarmála- og safna-
nefnd.
Framkvæmdir og skipulag
og umhverfismál
Það að sameina framkvæmdaráð og um-
hverfis- og skipulagsnefnd teljum við
vera afar óeðlilega ráðstöfun. Það er
gagnrýnivert að eftirlit og ákvarðana-
taka um framkvæmdir á vegum bæjarins
sé á sömu hendi og skipulag undir þær
framkvæmdir. Þetta getur orðið ógagn-
sætt ferli þar sem á sama fundi getur sú
staða komið upp að unnið sé bæði með
tillögur að deiliskipulagi og framkvæmdir
sem koma eiga á það svæði sem er verið
að skipuleggja.
Flest sambærileg sveitarfélög haga
stjórnsýslu sinni með þeim hætti að ræki-
lega er skilið á milli ákvarðanatöku í
skipulagsmálum og ákvarðanatöku um
framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.
Þannig er tryggt ákveðið gagnsæi í þess-
um málum og að lýðræðisleg vinnubrögð
séu viðhöfð. Ein helsta röksemd meiri-
hlutans í bæjarstjórn fyrir þessari breyt-
ingu er sú að með henni verði hlutirnir
gerðir þægilegri og einfaldari, enda séu
þessir málaflokkar á höndum sömu emb-
ættismannanna dag frá degi. Við drögum
ekki í efa að þessari breytingu fylgi ákveð-
ið hagræði og þægindi, en við óttumst að
þægindin verði á kostnað lýðræðislegrar
og opinnar stjórnsýslu og það þykja okk-
ur slæm skipti.
Skóla og velferðarmál
Við höfum fundið fyrir auknum þunga
í málaflokkunum sem hafa tilheyrt Fjöl-
skyldusviði og erum við því algjörlega
sammála að skipta þeim málaflokki upp
í skóla- og frístundasvið annars vegar og
velferðar- og mannréttindasvið hins veg-
ar. Skólamálin eru umfangsmesti mála-
flokkur bæjarins og því ber að marka
þeim viðeigandi rými innan stjórnkerfis-
ins. Verkefnum á velferðarsviði fer fjölg-
andi og mikilvægt er að skapa aðstæður til
að þeim megi mæta af krafti og metnaði.
Við styðjum því heilshugar þá ákvörðun
að skipta þessum málaflokkum upp með
þessum hætti og vonum um leið að með
bættum vinnuferlum og meiri áherslu á
málaflokkana sé hægt að bæta þjónustuna
á faglegan og hagkvæman hátt, bæði fyrir
bæjarbúa og bæjarsjóðinn.
Menningar og safnamál
Síðast þegar Sjálfstæðisflokkurinn hafði
meirihluta í bæjarstjórn á Akranesi var
tekin ákvörðun um stofnun Akranes-
stofu, sem m.a. fól í sér samruna þáver-
andi menningarmálanefndar og stjórnar
byggðasafnsins í stjórn Akranesstofu.
Á síðasta kjörtímabili voru menn sam-
mála um að huga þyrfti sérstaklega að
málefnum byggðasafnsins því mönn-
um fannst þurfa að koma safninu á hærra
stig og lyfta undir starfsemi þess. Einnig
var ákveðið að dreifa öðrum verkefnum
Akranesstofu og niðurstaðan varð sú að
Akranesstofu var skipt upp, menningar-
málanefnd bæjarins stofnuð á ný og sér-
stakri stjórn byggðasafnsins komið aft-
ur á.
Stutt er síðan Akranesstofu var skipt
upp og því er einfaldlega ekki komin al-
mennileg reynsla á nefndirnar eins og
þær eru í dag. Ákvörðun meirihlutans
um að sameina þessar nefndir nú ber öll
merki ákveðinnar óþolinmæði og gönu-
hlaups. Við teljum að gefa mætti núver-
andi fyrirkomulagi aðeins lengri tíma til
að sjá hvað er að virka og hvað ekki.
Nú þegar ákveðið hefur verið að sam-
eina þessi málefni höfum við áhyggj-
ur af því að málefni safnsins verði ekki
í eins miklum forgrunni og þau ættu að
vera en við treystum því að þeir fulltrú-
ar sem koma til með að sitja í hinni nýju
menningarmála- og safnanefnd muni
huga að því að halda byggðasafninu okk-
ar og þeim söfnum sem fylgja því á lofti,
ásamt því að sjálfsögðu að hafa hugann
við menningarmálin almennt.
Kostnaður breytinganna
Áður en Sjálfstæðismenn breyttu stjórn-
skipulagi bæjarins síðast árið 2008, var
stjórnskipulag bæjarins með þeim hætti
að starfandi var eitt ráð, bæjarráð, og svo
voru nefndir sem sérhæfðu sig í ákveðn-
um málaflokkum og fjölluðu um þá. Í
dag sýnist okkur að hlutirnir séu almennt
að hverfa aftur í það far nema hvað til-
vonandi fyrirkomulag er töluvert dýrara
og að mörgu leyti ólýðræðislegra. Ráð-
in eru fámenn og gagnsæið er lítið, völd
safnast á fáar hendur og hægt verður að
taka stórar ákvarðanir á lokuðum, fá-
mennum fundum án nokkurs möguleika
á aðkomu hins almenna bæjarbúa. Því
ætti að okkar mati að vera betra að fara
í nefndir sem eru sveigjanlegri, lýðræðis-
legri og ódýrari.
Við undirrituð teljum að það væri
hæglega hægt að lækka verulega þann
kostnað sem hlýst af þessum stjórnskipu-
lagsbreytingum með breyttri aðferðar-
fræði án þess að það þyrfti að koma nið-
ur á gæðum vinnunnar. Við viljum hvetja
meirihlutann til að skoða það af alvöru
í takt við eitt af markmiðum sínum um
ábyrga fjármálastjórnun.
Ingibjörg Valdimarsdóttir
Valgarður L. Jónsson
Höf. eru bæjarfulltrúar Samfylkingar-
innar á Akranesi.
Pennagrein
Stjórnskipulagsbreytingar
hjá Akraneskaupstað
Freisting vikunnar
Að þessu sinni fengum við upp-
skrift senda frá spænskukenn-
ara Menntaskóla Borgarfjarð-
ar, Noemí Cubas Martín. Hún
fer nýstárlegar leiðir í spænsku-
kennslunni og hefur meðal annars
kennt nemendum sínum tungu-
málið með því að kenna þeim
spænska matreiðslu. Þessi réttur
heitir á frummálinu Lentejas con
arroz y chorizo og er linsubauna-
réttur með kjöti og hrísgrjónum.
Nemendur Noemí matreiddu
þennan rétt fyrir allan skólann í
síðustu viku. Þeim tókst vel til og
þótti rétturinn smakkast vel.
Lentejas con
arroz y chorizo
250 gr. linsubaunir
250 gr. hrísgrjón
2 stórar gulrætur
1 hvítlauksrif
1 stór laukur
½ - 1 lárviðarlauf
½ tsk. paprikuduft
Salt og pipar eftir smekk
Ólívuolía
Hálf græn paprika
½ - 1 dós niðursoðnir tómatar (heilir)
Hálf til ein kjötpylsa (chorizo)
Vatn
Aðferð
Látið linsubaunirnar liggja í bleyti
yfir nótt í söltuðu vatni. Skerið
lauk, hvítlauk, gulrætur og papr-
iku í mjög smáa bita. Steikið upp
úr olíu á pönnu í nokkrar mínút-
ur. Bætið tómötum út í ásamt lár-
viðarlaufi og paprikudufti. Sigtið
vatnið frá linsubaununum og setj-
ið í pott með köldu vatni. Þegar
suðan kemur upp, bætið þá kjöt-
inu við og eldið í 30 mínútur.
Bætið þá hrísgrjónum út í og eld-
ið í 15 mínútur.
Hefðbundinn spænskur pottréttur
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500