Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 106
106 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Áhugaljósmyndarar eru víða og fer
þeim fjölgandi eftir að stafræn ljós-
myndatækni gerði slíkt áhugamál
í senn auðveldara og ódýrara en
áður. Þeir eru þó ekki margir sem
taka þetta áhugamál svo alvarlega
að ljósmyndunin sé framar flestu
öðru sem þeir taka sér fyrir hendur.
Mjög víða stunda áhugaljósmynd-
arar ómetanlega samtímaskráningu
fyrir sín byggðarlög, atvinnusög-
una, menningarsögu og fleira. Þess-
ir aðilar eru ekki endilega að ljós-
mynda í atvinnuskyni heldur drífur
áhuginn þá áfram. Samtímaskrán-
ing af þessu tagi er oft vanmetin.
Í raun ætti að verðlauna þetta fólk
með einhverjum hætti; gera það að
launuðum bæjarlistamönnum – því
það eru þeir vissulega.
Hér á Vesturlandi eru nokkr-
ir sem stunda áhugaljósmyndun af
kappi. Í jólablöðum Skessuhorns á
liðnum árum hafa nokkrir áhuga-
ljósmyndarar á Vesturlandi verið
kynntir. Við köllum þetta fólk sam-
tímasöguritara, fólk sem á í sínum
fórum þúsundir mynda frá liðnum
árum. Myndir sem varðveita annars
glötuð augnablik.
Fiktaði sem unglingur
Sagnaritari samtímans að þessu
sinni er áhugaljósmyndarinn og
lögreglufulltrúinn Jónas Hall-
grímur Ottósson. Jónas hefur lengi
haft áhuga á ljósmyndun og var
mjög áhugasamur sem ungling-
ur. „Það voru til margar mynda-
vélar heima sem ég fiktaði í. Afi
hafði mikinn áhuga á ljósmyndun
og átti því margar vélar og tók mik-
ið af myndum. En þetta áhugamál
var alltof dýrt á þeim tíma, það var
svo dýrt að framkalla myndirnar,“
útskýrir Jónas og segist hafa lagt
myndavélina til hliðar þar til staf-
ræna tæknin kom til sögunnar. „Þá
var ég búinn að vera að mynda eitt-
hvað í vinnunni líka. Það var svo
fyrir þremur til fjórum árum sem
ég fékk delluna. Ég keypti mér al-
mennilega vél en skipti henni fljót-
lega út og bætti í linsusafnið,“ seg-
ir Jónas.
Fer á alla leiki
Ljósmyndunin á hug Jónasar allan
og segir hann að það sé lítill tími
fyrir önnur áhugamál. Hann hef-
ur þó gaman af veiði og þau hjón-
in eiga sumarhús á Vestfjörðum.
„Ég er alltaf með miklar taugar
vestur. Þegar kemur að landslags-
myndun eru Vestfirðirnir í algjöru
uppáhaldi og mér þykir mjög vænt
um þann landshluta.“ Þegar Jónas
byrjaði að mynda tók hann fyrst og
fremst myndir af dýralífi og lands-
lagi. Hann er alltaf með myndavél-
ina á sér og nýtir hvert tækifæri sem
gefst til að taka myndir. „Þetta helst
í hendur við áhugann á mannlífi og
náttúrunni. Í dag finnst mér mjög
gaman að taka myndir af íþrótta-
viðburðum. Strákurinn er að æfa
körfubolta og ég fór með hann á
leik. Ég tók myndavélina með til
að æfa mig og það endaði þannig
að nú fer ég á alla leiki. Það er svo
gaman að mynda á íþróttaleikjum
og myndirnar efla áhuga annarra á
íþróttinni,“ útskýrir Jónas.
Læra af hvert öðru
Jónas er algerlega sjálflærður í ljós-
myndaiðninni. Hann segist hafa
lært listina með því að lesa sér til,
prófa sig áfram og læra af mistök-
unum. Vorið 2012 gekk hann í Vit-
ann, ljósmyndaklúbb Akraness. „Ég
hef lært mikið af félögunum þar. Í
klúbbnum má finna sérfræðinga á
sínu sviði í öllu. Þar eru sérfræð-
ingar í portrettmyndum, lands-
lagsmyndum, fuglum og svo fram-
vegis.“ Jónas er í dag varaformað-
ur Vitans. „Það eru í kringum 30
manns sem mæta á fundina sem
haldnir eru hálfsmánaðarlega. Við
í stjórninni undirbúum og skipu-
leggjum fundina, sem voru til að
byrja með spjallfundir en það hef-
ur breyst. Í dag er markviss fræðsla
um ákveðin atriði á hverjum fundi
eða vinnustofur þar sem fólk prófar
eitthvað nýtt og hjálpar hvert öðru.
Við komum til skila þekkingu sem
við búum yfir og lærum nýja hluti í
samvinnu við hvert annað.“
Skemmtilegt ef reynir á
Jónas segir mikla græjudellu fylgja
þessu áhugamáli hjá mörgum.
Sumir kaupi meira en þeir þurfa
og jafnvel meira en þeir hafi efni
á. Hann sjálfur hefur látið Canon
7D myndavélina sína duga undan-
farin ár. „En ég á slatta af linsum.
Ég nota mismunandi linsur eftir
hvað ég er að fást við. Þetta áhuga-
mál kallar svolítið á meiri græj-
ur en þá er mikilvægt að gæta hófs
og vera ekki að kaupa eitthvað sem
í raun þarf ekki,“ segir hann. Jón-
asi þykir skemmtilegast að mynda
við aðstæður þar sem erfitt er að ná
góðri mynd. „Það er skemmtileg-
ast ef þetta er krefjandi og reynir á.
Til dæmis í eitt sinn þegar ég var
að mynda kríu, þá tók ég um 1500
myndir til að ná 20 góðum og fullt
af sæmilegum. Að mynda við krefj-
andi aðstæður er svolítið eins og
veiði. Þetta sameinar því útrásina
fyrir veiðina, sköpun, græjudellu
og útivist.“
Jónas hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum hjá Vitanum. Ljós-
myndir hans má finna á Facebook
undir Jónas Ottós photography og
á Flickr. Þá eru íþróttamyndir hans
birtar á vefsíðum íþróttafélaganna.
„Ég stefni á að halda sýningu ein-
hvern tíma þegar mér finnst ég eiga
nóg af myndum til að sýna. Ann-
ars finnst mér alltaf gaman þegar
ég er beðinn um að taka myndir af
ákveðnum verkefnum. Líkt og þeg-
ar ég myndaði Akratorg fyrr í haust
þegar kveikt var á nýjum ljósabún-
aði í bleikum október,“ segir sagna-
ritarinn Jónas að endingu.
grþ
Sagnaritarar samtímans 2014 er
Jónas Hallgrímur Ottósson áhugaljósmyndari
Hraunfossar í Borgarfirði.
Jónas Hallgrímur Ottósson lögreglu-
fulltrúi og áhugaljósmyndari. Óðinshani hefur sig á loft.
Vörubifreið á leið yfir Mjóafjarðarbrú.