Skessuhorn


Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 49. tbl. 17. árg. 3. desember 2014 - kr. 600 í lausasölu VELKOMIN Í SPARILAND Bíbí, Blaki og Ari búa í Sparilandi, sem er nýja krakkaþjónustan okkar. Kíktu á arionbanki.is/Spariland og athugaðu hvernig þú getur fengið sparibauk. Rafræn áskrift Ný áskriftarleið Pantaðu núna Lúsina burt! Landnámssetur Íslands, Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi Systurnar frá Einarsnesi Laugardagur 6. desember kl. 21:00 Þín eigin þjóðsaga á Sögulofti Miðvikudagur 10. des. kl. 17:30 Upplestur fyrir börn og fullorðna Ókeypis aðgangur Garðar Cortes & Robert Sund Fimmtudagur 11. des. kl. 20:30 Kristjana og Svavar Knútur á Sögulofti Fimmtudagur 18. des. kl. 20:00 KK & Ellen á Sögulofti Föstudagur 19. des. kl. 20:30 Alla föstudaga í desember Jólalegt hádegishlaðborð Skata í hádegi á Þorláksmessu Borðapantanir í síma 437-1600 og landnam@landnam.is Gleðilega aðventu ! SK ES SU H O R N 2 01 4 Skagamenn tendruðu ljósin á jólatré sínu á Akratorgi síðastliðinn laugardag. Prýðilegt veður og mikill mannfjöldi einkenndi samkomuna á nýuppgerðu torginu. Hér eru börn í skólakór Grundaskóla að syngja undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. Sjá nánar myndir frá samkomunni inni í blaðinu. Ljósm. mm. Afgreiðslu skipulags frestað Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar frestaði á fundi sínum þriðjudag- inn 25. nóvember sl. afgreiðslu breytinga á deiliskipulagi aust- ursvæðis við Grundartanga og breyttri landnotkun. Skúli Þórð- arson sveitarstjóri segir að málið sé stórt og fulltrúar í sveitarstjórn vilji skoða nokkur atriði betur áður en til afgreiðslu á skipulaginu kem- ur. Skúli sagði í samtali við Skessu- horn að aukafundur sveitarstjórn- ar út af skipulagsmálunum verði á morgun, fimmtudag. Um er að ræða skipulag vegna lands í Kata- nesi þar sem áformað er að sólar- kísilverksmiðja Silicor rísi. Fjór- tán athugasemdirnar við skipulag- ið bárust frá ellefu aðilum og voru þær af ýmsum toga. Athugasemd- irnar voru margar hverjar allviða- miklar og komu fram í fundar- boði tillögur um hvernig sveitar- stjórn myndi svara þeim. Niður- staða fundarins var sem sagt sú að nokkur atriði þyrfti að skoða betur og ætti framhaldið að skýrast eftir fundinn á morgun. þá Grundartangasvæðið, svæðið innan gulu línunnar, er umrætt svæði í Katanesi þar sem áformað er að verksmiðja Silicor rísi. Fyrstu fjölbýlishúsalóðunum úthlutað eftir hrun Byggðarráð Borgarbyggð- ar samþykkti á fundi sín- um á fimmtudag í síðustu viku umsókn um úthlut- un tveggja byggingalóða fyrir fjölbýlishús í Borg- arnesi. Lóðirnar eru aust- ast í bænum, á Birkikletti 2 og Arnarkletti 28. Sú fyrr- nefnda er 1.330 fermetrar og þar er heimilt að reisa allt að sex íbúða fjölbýli sem alls yrði þá þrjár hæðir með kjallara. Lóðin á Arn- arkletti 28 er 1.553 fer- metrar. Gert er ráð fyrir að fjölbýlishúsið þar verði svipað að stærð og á Birki- kletti 2. Það er bygginga- fyrirtækið SÓ húsbygging- ar í Borgarbyggð sem hef- ur fengið lóðunum úthlut- að. Þetta eru fyrstu lóðaút- hlutanir undir fjölbýlishús í Borgarbyggð frá því fyrir bankahrunið 2008. mþh Loftmynd sem sýnir staðsetningu nýrra bygg- ingalóða austast í Borgarnesi. Lausar lóðir eru sýndar með gulum lit.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.