Skessuhorn - 10.12.2014, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Landslag
í Game Of
Thrones
SNÆFELLSNES: Í þessari
viku standa yfir á Snæfellsnesi
landslagstökur fyrir fimmtu
þáttaröð Game Of Thrones.
Eins og gefur að skilja taka
engir leikarar þátt í tökunum
en um tíu manna upptöku-
lið vinnur við verkefnið og
er Pegasus umboðsaðili hér
á landi. Þetta er í fyrsta sinn
sem tökur fyrir þættina fara
fram á Snæfellsnesi og verða
þær niðri við sjávarmál. Upp-
haflega stóð til að mynda
meira á Íslandi á þessu ári fyr-
ir Game of Thrones en hætt
var við það. Stutt dagsbirta
mun hafa ráðið mestu þar
um. Tökur gengu ekki með
öllu þrautalaust fyrir sig. Í
gær vildi ekki betur til en svo
að alda hreif einn tökumann
með sér á haf út þegar unn-
ið var við myndatöku vestur
af Nesinu. Maðurinn komst í
land og varð ekki fyrir varan-
legum skaða.
–mm
Mikil umferð í
nóvember
HVALFJ: Umferðin í Hval-
fjarðargöngunum í nóvem-
ber var 7,7% meiri en í sama
mánuði í fyrra. Það þýðir í
tölum talið að tæplega tíu
þúsund fleiri bílar fóru und-
ir fjörðinn en í fyrra. Í frétt
á vef Spalar segir að nóvem-
berumferðin nú sé mun meiri
en fjögur síðustu ár, nánast á
pari við 2009 en ögn minni en
2008 þegar hún var mest frá
upphafi. Samkvæmt skrán-
ingu Vegagerðarinnar var
enn meiri aukning umferð-
ar á hringveginum í nóvem-
ber, eða um 11% frá í fyrra.
Aukningin var mest á Aust-
urlandi og nóvembertölurn-
ar leiða að óbreyttu til þess að
metumferð verði á landinu í
heild á árinu 2014.
–þá
Heimsóknir á
kostnað
búfjáreigenda
LANDIÐ: Skilafrestur á
haustskýrslum búfjár er nú
útrunninn og vill Matvæla-
stofnun koma á framfæri
upplýsingum til búfjáreig-
enda, sem enn hafa ekki skil-
að skýrslum, að starfsmenn
Matvælastofnunar munu frá
og með 15. desember næst-
komandi hefjast handa við
heimsóknir til þeirra sem ekki
hafa skilað skýrslum. „Eins
og kveðið er á um í lögum
verða allar heimsóknir vegna
vanskila á haustskýrslum á
kostnað viðkomandi búfjár-
eiganda. Því eru þeir sem enn
hafa ekki lokið skilum hvattir
til að gera slíkt nú þegar og
forðast þannig óþarfa útgjöld.
Þeim sem þegar hafa gengið
hafa frá skráningum á haust-
skýrslum sínum eru þökk-
uð góð viðbrögð,“ segir í til-
kynningu frá Matvælastofn-
un. Hægt er að ljúka málinu á
farsælan og ódýran hátt með
að fara á síðuna www.bustofn.
is
–mm
Ung kona
lýsir eftir árásar
manni
AKRANES: Í sumar varð
22 ára kona á Akranesi fyrir
hrottalegri árás, þegar maður
ruddist inn á heimili hennar,
nauðgaði og misþyrmdi auk
þess sem hann réðist á hund
hennar. Maðurinn hefur ekki
fundist og var saga stúlkunn-
ar nýlega birt á vefsíðu Press-
unnar í þeim tilgangi að freista
þess að árásarmaðurinn fynd-
ist. Atburðurinn átti sér stað
aðfararnótt 15. júlí. Mann-
inum er lýst sem hávöxnum,
dökkum yfirlitum, með mik-
ið hár, dökkgræn augu, lítið
nef og þunnar varir. Hann var
klæddur í svarta Adidas peysu
með hvítum röndum á hliðun-
um, í Carhartt buxum, hvít-
um Stuzzy bol, hvítum skóm
og var með gullkeðju um háls-
inn. Árásin var gróf og mjög
hrottaleg samkvæmt frásögn
sem birtist á vef Pressunn-
ar. Konuna minnir að annar
maður hafi beðið úti í bíl, lík-
lega grænum Subaru station.
Lögreglan á Akranesi stað-
festir í samtali við Skessuhorn
að kæra hafi verið lögð fram
vegna málsins. Lögregla ósk-
ar jafnframt eftir því að þeir
sem telji sig hafa upplýsingar
um málið, hafi samband í síma
444-0111.
-grþ
Undir áhrifum
fíkniefna
LBD: Ökumaður á leið suður
Vesturlandsveg sl. miðvikudag
var stöðvaður í almennu eftir-
liti lögreglu. Vaknaði grunur
um að hann væri undir áhrif-
um fíkniefna og var því færður
á lögreglustöðina í Borgarnesi
til blóðsýna- og skýrslutöku.
Var ökumaðurinn svo laus úr
haldi lögreglu stuttu síðar en
fékk ekki að halda akstri sín-
um áfram.
–þá
Um næstu áramót verða gerðar
breytingar á akstursleið innanbæj-
arstrætisvagns á Akranesi og ferð-
um fjölgað um eina. Að sögn Reg-
ínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra er
tilgangur breytinganna fyrst og
fremst að bæta aðgengi íbúa að
mikilvægri almannaþjónustu sem
er austast við Smiðjuvelli, þ.e. póst-
húsi, apóteki og verslunum. Nú-
gildandi akstursleið strætisvagnsins
liggur alllangt frá því svæði. Regína
segir að til að ná þessum markmið-
um og án þess að þurfa að bæta við
öðrum vagni var niðurstaðan sú að
vera með tvær akstursleiðir í bæn-
um, tímaskiptar. Þannig að núver-
andi leið verður ekin frá kl. 07:10
til 09:40 en akstursleið frá kl. 11:15
til 17:45 verður breytt. Breytingin
felst í því að akstri annars vegar um
Jörundarholt og hins vegar Suð-
urgötu og Vitateig verður hætt en
þess í stað ekið austur Þjóðbraut frá
Esjutorgi og til baka. Einnig verð-
ur sú breyting á leiðinni að Akra-
torgi að ekið verður vestur Merki-
gerði að Vesturgötu og upp Skóla-
braut að Akratorgi. Regína segir að
breytingarnar verða kynntar íbúum
rækilega núna í desember, svo sem
með upplýsingum á heimasíðu það
er uppdráttum sem sýna aksturs-
leið, tímatöflur og fleira.
þá
Tíu umsækjendur voru um
embætti viðbótarprests í
Garðaprestakalli á Akranesi,
en embættið veitist frá 1. janú-
ar næstkomandi. Nýr prest-
ur mun starfa við hlið nú-
verandi sóknarprests, sr. Eð-
varðs Ingólfssonar. Frestur til
að sækja um embættið rann út
2. desember sl. Biskup Íslands
skipar í embættið að fenginni
umsögn valnefndar, en hana
skipa níu manns úr prestakall-
inu auk prófasts Vesturlands-
prófastsdæmis.
Umsækjendur eru:
Anna Þóra Paulsdóttir, mag.
theol.
Séra Arndís G. Bernharðsdótt-
ir Linn
Elvar Ingimundarson, mag. the-
ol.
Fritz Már Berndsen Jörgensson,
mag. theol.
María Gunnarsdóttir, cand. the-
ol.
Séra Skírnir Garðarsson
Sólveig Jónsdóttir, cand.theol.
Séra Ursula Árnadóttir
Viðar Stefánsson, mag. theol.
Séra Þráinn Haraldsson.
mm
Tíu sækja um Garðaprestakall
Breytingar á strætisvagns
leiðum á Akranesi um áramót