Skessuhorn - 10.12.2014, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Gistinóttum
fjölgar
VESTURLAND: Gistinæt-
ur á hótelum landsins í októ-
ber voru 183.600 sem er 16%
aukning miðað við októ-
ber 2013. Fram hefur kom-
ið í fréttum að fjölgun hefur
verið í hópi erlendra ferða-
manna í öllum mánuðum í ríf-
lega fjögur ár. Gistinætur er-
lendra gesta í október voru
82% af heildarfjölda gistinátta
í mánuðinum en þeim fjölgaði
um 23% frá sama tíma í fyrra á
meðan gistinóttum Íslendinga
fækkaði um 7%. Yfir tólf mán-
aða tímabil hefur fjöldi gisti-
nátta aukist um 14%. Fjölgun
í október á gististöðum á Vest-
urlandi og Vestfjörðum var
17%, eða lítið eitt yfir lands-
meðaltali. –mm
Bréf til
bjargar lífi
AKRA/BORG: Dagana
3.-17. desember stendur yfir
bréfamaraþon Amnesty Int-
ernational og er yfirskriftin
„Bréf til bjargar lífi.“ Það er
einfalt að taka þátt, segir í til-
kynningu frá Bókasafni Akra-
ness. Þar eru tilbúin bréf til
undirskriftar vegna 12 mála.
Bókasafnið sér um að koma
bréfunum í póst. „Bókasafn
Akraness er eitt af fjölmörg-
um almenningsbókasöfnum í
landinu sem leggja verkefninu
lið. Komið við á bókasafninu
og takið þátt í einum stærsta
mannréttindaviðburði heims-
ins,“ segir í tilkynningu. Í dag,
miðvikudag stendur Sigur-
steinn Sigurðsson arkitekt fyr-
ir sambærilegu átaki til að fólk
geti sent bréf til bjargar. Verð-
ur það til húsa á skrifstofu
Hugheima við Bjarnarbraut í
Borgarnesi. –mm
Mengunarmælir
keyptur
REYKHÓLAR: Mengun-
armælir hefur verið tekinn
í gagnið á Reykhólum. Það
var skrifstofa Reykhólahrepps
sem keypti mælinn til að fylgj-
ast með brennisteinsdíoxíði í
andrúmslofti, sem kemur frá
eldgosinu í Holuhrauni og
getur borist um allt land eftir
vindátt hverju sinni. Mælirinn
er hafður fyrir utan skrifstof-
una við Maríutröð á Reykhól-
um. Lesið er af honum einu
sinni til þrisvar á dag og birt-
ast niðurstöðurnar á vefsíðu
Umhverfisstofnunar, þar sem
einnig má finna ýmsar upplýs-
ingar um loftmengun. -grþ
Ísfisktogari frá
veiðum
RVK: Ísfisktogari HB Granda;
Ottó N. Þorláksson RE, verð-
ur frá veiðum í allt að tvo og
hálfan mánuð vegna bilunar í
aðalvél. Bilunin kom í ljós fyr-
ir næstsíðustu helgi áður en
skipið fór til veiða og var það
lán í óláni miðað við veðrið
sem gekk yfir landið og mið-
in þá helgi. Að sögn Gísla
Jónmundssonar, skipaeftir-
litsmanns hjá HB Granda, er
bilunin fólgin í því að höfuð-
lega í aðalvél gaf sig. Ekki sé
ljóst hve mikið sú bilun hef-
ur skemmt út frá sér en menn
óttist að sveifarás og fleira hafi
einnig orðið fyrir tjóni.
–mm
Strætisvagninn
stoppaði
HVALFJ.SV: Í Skessu-
horni í liðinni viku var lít-
il frétt með fyrirsögninni
„Gleymdi að hleypa barni
út.“ Var hún um atvik sem
átti sér stað í strætisvagni í
lok nóvember. Þá lenti tíu
ára drengur í því að missa
af því að fara úr strætisvagni
við Melahverfið í Hvalfjarð-
arsveit, þar sem hann býr. Í
fréttinni er haft eftir föð-
ur barnsins, sem skrifaði á
Facebook síðu íbúa í Hval-
fjarðarsveit, að strætóbíl-
stjórinn í umræddri ferð
hafi gleymt að stöðva bíl-
inn við Melahverfið. Hafi
drengurinn því þurft að fara
úr vagninum í Borgarnesi,
25 kílómetrum frá áfanga-
stað sínum. Vagninn sem
um ræðir er leið 57 sem ekið
er frá Reykjavík til Akraness
og þaðan norður í land, og
er ein af stoppistöðvum
vagnsins á leið sinni í Mela-
hverfinu. Faðir drengsins
birtir í færslu sinni bréf sem
hann sendi Strætó vegna
málsins og opnaði þannig
umræðu um ferðir strætó í
Hvalfjarðarsveitinni. Eft-
ir birtingu fréttarinnar í
Skessuhorni barst leiðrétt-
ing frá Strætó. Í rauntíma-
skráningu á ferðum strætis-
vagnsins í umræddri ferð er
hægt að sjá að stætisvagn-
inn stöðvaði við Melahverf-
ið í 20 sekúndur. Fram hef-
ur komið að enginn hafi
gefið sig fram til að stíga úr
vagninum. Umræddur bíl-
stjóri vissi ekki af að í bíln-
um væri farþegi sem fór of
langt fyrr en komið var í
Borgarnes. Þar var drengur-
inn sóttur af foreldrum sín-
um. Starfsmenn Strætó telja
því líklegustu skýringuna
að drengurinn hafi sofnað
og því misst af því að stíga
úr vagninum á afleggjaran-
um að Melahverfinu. Þetta
leiðréttist hér með.
-mm
Desember
uppbót til
atvinnuleitenda
LANDIÐ: Vinnumála-
stofnun mun greiða út des-
emberuppbót til atvinnu-
leitenda 5. desember næst-
komandi í samræmi við
reglugerð sem félags- og
húsnæðismálaráðherra hef-
ur gefið út. Full desember-
uppbót er 53.647 krónur
en greiðsla til hvers og eins
reiknast í hlutfalli við rétt
hans til atvinnuleysisbóta á
árinu. Skilyrði og útreikn-
ingur á rétti til greiðslunn-
ar verður með sama hætti
og undanfarin ár. Greiðsla
til hvers og eins reiknast
í hlutfalli við rétt hans til
atvinnuleysisbóta á árinu.
Tekið er mið af bótahlutfalli
og fjölda mánaða á atvinnu-
leysisbótum. Rétt á desemb-
eruppbót eiga þeir atvinnu-
leitendur sem tryggðir eru
innan atvinnuleysistrygg-
ingakerfisins og hafa stað-
fest atvinnuleit á tímabilinu
20. nóvember – 3. desemb-
er.
–mm
Nýverið hurfu hurðir af traktors-
gröfu sem stóð á bílastæði í Hval-
firði. Jónas Guðmundsson véla-
verktaki og eigandi gröfunnar
segir tjónið tilfinnanlegt. Nýjar
hurðir á vélina kosta hátt í millj-
ón krónur. „Grafan hafði staðið
í eina til tvær vikur á bílastæðinu
við Hernámssetrið á Hlöðum hér í
Hvalfirði. Við höfðum lagt vélinni
þar eftir að hafa notað hana í ná-
grenninu. Hún stóð þarna vegna
þess að við höfðum ekki þörf fyrir
að nota hana í nokkra daga. Einn
morguninn voru hurðirnar svo
horfnar.“ Einsýnt er að einhverjir
hafa séð vélina þar sem hún stóð á
bílastæðinu og séð sér leik á borði
að hirða af henni báðar hurðirnar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
einhverjir fara ránshendi um
Hvalfjörð. Ítrekað hefur gerst að
olíu hafi verið stolið af vinnuvél-
um sem staðið hafa næturstund í
firðinum. Tjónið hefur verið til-
finnanlegt, jafnvel svo að þúsund-
ir lítra hafa horfið. „Það var stol-
ið olíu af vélum hjá okkur síðast í
sumar sem leið. Þetta hefur gerst
ítrekað á liðnum árum,“ segir Jón-
as. Málin hafa verið kærð til lög-
reglu. mþh
Hjónin Magnús Hannesson og
Andrea Björnsdóttir á Eystri-Leir-
árgörðum í Hvalfjarðarsveit hafa
til margra ára skreytt hús sitt á að-
ventu. Gárungar sveitarinnar hafa
haft það á orði að vegna fjölgunar
jólaljósa hafi verið brugðið á það
ráð að virkja bæjarlækinn. Buga-
virkjun var einmitt tekin í notkun á
árinu. Í það minnsta er fallegt heim
að líta að Eystri-Leirárgörðum á
aðventu nú sem fyrr.
mm
Þáttagerðarmennirnir og Akurnes-
ingarnir Gunnlaugur Jónsson og
Ásgeir Eyþórsson hlutu síðastliðinn
föstudag verðlaunin „Lítill fugl.“
Verðlaunin hlutu þeir fyrir þættina
„Árið er..“ sem fluttir eru á Rás 2 og
hafa notið mikilla vinsælda. Verð-
launin eru veitt þeim fjölmiðla-
manni sem þykir hafa skarað fram
úr í stuðningi við íslenska tónlist.
Jakob Frímann Magnússon, for-
maður Félags tónskálda og texta-
höfunda, afhenti verðlaunin.
Í rökstuðningi dómnefndar segir
að verðlaunin hafi verið veitt vegna
afar metnaðarfullrar útvarpsþátta-
raðar þar sem fjallað er um íslenska
dægurtónlist frá stofnun Rásar 2
allt til dagsins í dag, með afar vand-
virkum og lifandi hætti. Verðlauna-
gripinn gerði listakonan Kogga.
grþ
Skorradalshreppur er eitt af þrem-
ur sveitarfélaga í landinu sem legg-
ur lægsta útsvar landsins á íbúa
sína. Hitt er Grímsnes- og Grafn-
ingshreppur og þá mun Ásahrepp-
ur á Suðurlandi fylgja í kjölfarið á
næsta ári. Útsvarið er oftast veiga-
mesti tekjustofn sveitarfélaga og er
dregið af launum launþega ásamt
tekjuskatti ríkisins. Fasteigna-
gjöld eru þó stór tekjuliður víða,
m.a. í Skorradal og Hvalfjarðar-
sveit. Útsvarsprósentan getur ver-
ið mismunandi frá einu sveitarfé-
lagi til annars. Samkvæmt lögum
um tekjustofna sveitarfélaga get-
ur sú prósenta hæst verið 14,52%
en lægst 12,44%. Flest sveitarfélög
í landinu leggja á hámarksútsvar
og einungis þau fyrrnefndu leggja
12,44% á íbúa sína.
Skráðir íbúar í Skorradalshreppi
eru 58 og gæti þetta misræmi á út-
svari milli sveitarfélaga búið til hvata
fyrir einstaklinga til að færa lög-
heimili sitt þangað. Þannig fá þeir
hærri laun á mánuði. Árni Hjör-
leifsson, oddviti Skorradalshrepps,
sagði nýlega frá því í viðtali á Vísi.
is að fólk hafi verið að fá að breyta
sumarbústöðum sínum í heilsársbú-
staði til að fá að vera með lögheim-
ili í hreppnum. Fólkið sé svo með
lítið afdrep í bænum. Hann segir
jafnframt að hreppurinn þurfi hins
vegar að breyta deiliskipulagi til að
þetta geti orðið að veruleika. Telur
hann að það sé akkur fyrir einstak-
linga að færa lögheimili sitt í hrepp-
inn til að njóta þessara skatta. „Ég
held að það hljóti að vigta eitthvað.
Maður heyrir það á höfuðborgar-
svæðinu að það sé betra að búa hér
en annars staðar. Fyrir suma skipt-
ir þetta litlu máli en fyrir aðra sem
eru með einhverjar tekjur að ráði
þá vigtar þetta, annars er þetta ekki
stórt mál fyrir aðra,“ sagði Árni í
samtali við Vísi. Að endingu seg-
ist hann reikna með að hrepps-
nefndin muni taka þetta alvarlega
til skoðunar, að breyta skipulaginu
til að gera sumarbústaðaeigendum
kleift að vera með heilsársbúsetu í
Skorradalshreppi.
grþ/ Ljósm. kj.
Raforkubændur skreyta híbýli sín
Skattaskjól í Skorradalshreppi
Gunnlaugur Jónsson og Ásgeir Eyþórs-
son með verðlaunagripinn.
Ljósm. Ólafur Páll Gunnarsson.
Skagamenn hlutu Litla fuglinn
Jónas Guðmundsson frá Bjarteyjarsandi í Hvalfirði við gröfu sína sem hurðunum
var nýverið stolið af við Hernámssetrið á Hlöðum.
Hurðum stolið af
traktorsgröfu í Hvalfirði