Skessuhorn - 10.12.2014, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Hafa krappar vetrarlægðir
áhrif á þig?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Örlygur Stefánsson:
Já, þær hafa áhrif á mig. Ég fæ
hellu fyrir eyrun.
Ólöf Una Ólafsdóttir:
Mér finnst þetta leiðinlegt veður
en þær fara ekki í mig.
Gunnar H. Kristinsson:
Nei, þær gera það ekki.
Guðmundur Valsson.
Já, maður verður svolítið þreytt-
ari en vanalega.
Sigríður Gróa Sigurðardóttir:
Nei ósköp lítið. Maður hefur
það bara kósý heima.
Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis
á Akranesi var haldinn í golfskála
klúbbsins þriðjudaginn 2. desember
síðastliðinn. Þórður Emil Ólafsson,
formaður Leynis fór yfir skýrslu
stjórnar, Guðmundur Sigvaldason
framkvæmdastjóri fór yfir starfið og
kynnti rekstraráætlun næsta árs og
Hannes Lárus Ellertsson gjaldkeri
fór yfir reikninga.
Í tilkynningu kemur fram að
rekstur GL hafi gengið vel rekstr-
arárið 2014 og var veltan 72,5 m.kr.
samanborið við tæpar 67 m.kr. árið
2013. Veltuaukning var því 9%.
Rekstrarhagnaður klúbbsins var
rúmar 5 m.kr. fyrir fjármagnsliði
og afskriftir. Á fundinum kom fram
að reksturinn hefði gengið vel þrátt
fyrir mikið rigningasumar. Vinnu
lauk við vélaskemmu á vormánuð-
um og klúbburinn hóf endurnýjun á
vélakosti en keypt var ný Toro röff-
sláttuvél. Einar Lyng var ráðinn sem
íþróttastjóri og bindur stjórn mikl-
ar vonir við störf hans. Framundan
er stórt og mikið rekstrarár þar sem
klúbburinn fagnar 50 ára afmæli og
Íslandsmót í höggleik verður haldið
um miðjan júlí 2015.
Í rekstraráætlun fyrir árið 2015
var lagt til að félagsgjöld yrðu hækk-
uð fyrir félagsmenn 19 ára og eldri
meðan félagsgjöld barna og ung-
linga yrðu lækkuð og var það sam-
þykkt af félagsmönnum. Tvær konur
voru kjörnar í stjórn Leynis; Berg-
lind Helgadóttir og Ingibjörg Stef-
ánsdóttir. Þær koma í stað Tryggva
Bjarnasonar og Ellu Maríu Gunn-
arsdóttur sem gáfu ekki kost á sér til
áframhaldandi stjórnarsetu. Stjórn
Leynis er þannig skipuð: Þórður
Emil Ólafsson, Hannes Marinó Ell-
ertsson, Eiríkur Jónsson, Hörður
Kári Jóhannesson, Berglind Helga-
dóttir og Ingibjörg Stefánsdóttir.
Félagsmenn í Leyni eru 390 og
fækkaði úr 405 frá 2013. Fjölgun
varð í spiluðum hringjum milli ára
og voru spilaðir um 18.200 hringir
samanborið við 17.700 hringi árið
2013. Fjölbreytt mótahald var á
vegum GL í sumar með góðri þátt-
töku félagsmanna og gesta og var
aukning milli ára um 8,5% en fjöldi
móta var um 50.
Viðurkenningar
Viðurkenningar voru að venju
veittar. Guðmundar- og Óðins-
bikarinn, sem veittur er þeim
félagsmanni sem leggur mik-
ið á sig í sjálfboðavinnu, fékk
Halldór Jónsson. Halldór hefur
unnið gríðarlega mikið á vellin-
um undanfarin misseri auk þess
sem hann lék alls 64 hringi með
„starfi“ sínu á vellinum. Axel
Fannar Elvarsson fékk háttvísis-
verðlaun GSÍ og viðurkenningu
fyrir mestu forgjafarlækkun hjá
Leyni á árinu 2014. Axel, sem er
16 ára, lækkaði úr 9,3 í 4,4 á árinu
2014 og lék hann alls 40 keppn-
ishringi.
gs/mm
Ungmennafélag Grund-
arfjarðar tók á móti Aftur-
eldingu B í 1. deild kvenna
í blaki síðasta fimmtudag.
Fyrir leikinn var Aftur-
elding á toppnum í deild-
inni en Grundarfjörður í
3. sæti. Leikurinn var jafn
og spennandi en heima-
menn sigruðu fyrstu hrin-
una með minnsta mun eða
26-24 og tóku því forystu.
Í annarri hrinu var það
sama upp á teningnum
og mikil barátta. Grund-
firsku stelpurnar unnu þó 25-20 og
komust í 2-0 og voru í góðum mál-
um fyrir þriðju hrinuna. Hún hófst
með látum og mikið jafnræði var
með liðunum en það fór svo að lok-
um að stelpurnar úr UMFG sigldu
þessu heim og unnu hrinuna 25-21
og þar með leikinn 3-0. Þær sitja þó
enn í þriðja sætinu með 13
stig eftir þennan frækna
sigur en eiga þó leik til
góða gegn Bresa sem var
frestað vegna veðurs á
dögunum. Jófríður Frið-
geirsdóttir var stigahæst í
liði Grundarfjarðar með
15 stig en hún átti sann-
kallaðan stórleik. Anna
Kara Eiríksdóttir kom
næst með 11 stig og Katrín
Sara Reyes, sem jafnframt
fagnaði 20 ára afmæli sínu
þennan dag, með 10 stig.
Þær fara því fullar sjálfstrausts inn
í jólavertíðina en næsti leikur þeirra
verður á Akranesi í byrjun janúar
gegn Bresastúlkum. tfk
Inga Elín Cryer sundkona frá Akranesi sýndi góð-
an árangur á HM-25 sem haldið var í Doha dag-
ana 3.-7. desember sl. Inga Elín keppti í 800m
skriðsundi á fimmtudeginum, stórbætti eigið Ís-
landsmet um þrjár sekúndur og synti á 8,38.79.
Hafnaði hún í 27. sæti af 53 keppendum. Á föstu-
deginum synti hún 400m skriðsund og bætti þar
einnig sitt eigið met um tæpar tvær sekúndur, en
það setti hún fyrir þremur vikum á Íslansmeistar-
mótinu í 25m laug. Hafnaði hún í 25. sæti af 37
keppendum. mm
Um mánaðamótin var stofnað í
Borgarbyggð nýtt íþróttafélag og
fær það aðild að UMSB. Félagið
nefnist Mótorsportfélag Borgar-
fjarðar og er það fyrsta af sinni teg-
und í sveitarfélaginu. Að sögn Jak-
obs Guðmundssonar formanns
félagsins er megintilgangur þess að
styðja við áhugafólk á öllum aldri
um motocross og enduro akstur á
þar til gerðum brautum. „Hér hafa
oft verið áhugahópar um þessa
íþrótt en ekkert formlegt félag. Við
höfum sótt um inngöngu í UMSB
og förum inn á þeim forsendum að
þetta sé eins og hver önnur íþrótt,“
segir Jakob í samtali við Skessu-
horn. Engin æfinga- eða keppn-
isbraut fyrir þessi hjól hefur verið
gerð í Borgarbyggð enn sem komið
er og segir formaðurinn að félagið
komi til með að vinna í þeim mál-
um í samstarfi við sveitarfélagið.
Stjórn félagsins skipa ásamt Jakobi
þau Bergur Þ. Jónsson gjaldkeri,
Kristín Gísladóttir ritari, Magnús
Indriðason og Viktor Ingi Jakobs-
son meðstjórnendur og Finnbogi
Jónsson varamaður.
grþ
Um liðna helgi hófst heimsmeistaramótið í keilu
sem haldið var í Abu Dabi. Þar keppti Skagamað-
urinn Skúli Freyr Sigurðsson með íslenska karla-
landsliðinu. Skúli Freyr keppti bæði í einstaklings-
keppninni og tvímenningi. Í einstaklingskeppn-
inni var spilað var í löngum olíuburði, 43 fet.
Skúli Freyr lauk keppni með 1067 stig sem gera
177,83 í meðaltal. Lokastaða hans í einstaklings-
keppninni var því 243. sæti. Skúli keppti einnig
í tvímenningi ásamt Stefáni Claessen úr ÍR. Þeir
léku í fyrsta riðli á mánudagsmorgun. Strákarn-
ir voru smá stund að ná sér í gang en betur gekk
þegar leið á. Skúli spilaði 1270 (211,67 í mtl) og
Stefán 1181 (196,83 í mtl). Samtals spiluðu þeir
því 2451 sem gera 204,25 í meðaltal. grþ
Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis
Þórður Emil og Halldór Jónsson sem fékk Guðmundar- og Óðinsbikarinn.Axel Fannar Elvarsson fékk háttvísisverðlaun GSÍ og viðurkenningu fyrir mesta
forgjafarlækkun á árinu. Með honum er Þórður Emil Ólafsson formaður.
Skúli Freyr
á stórmóti
Inga Elín bætti
tvö eigin met
Grundfirðingar höfðu betur
gegn toppliði Aftureldingar
Stjórn Mótorsportfélags Borgarfjarðar. Frá vinstri: Magnús Indriðason, Finnbogi Jónsson, Jakob Guðmundsson, Bergur
Jónsson, Viktor Ingi Jakobsson og Kristín Gísladóttir.
Nýtt íþróttafélag í Borgarbyggð