Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MÁLÞING Á AÐALFUNDI LÍ hliðsjónar í störfum sínum. Hann varpaði því til fund- armanna að ræða hvernig slíkar reglur yrðu settar, hver ætti að gera það og hver staða þeirra ætti að vera í stjórnkerfi heilbrigðismála. Þeir fundarmenn sem tóku til máls - og þeir voru allmargir - voru almennt þeirrar skoðunar að reglur af þessu tagi væru til bóta. Þó heyrðust hjá stöku manni efasemdir um réttmæti þess að bæta einu regluverkinu við, hvort ekki væri búið að setja nóg af lögum og reglum sem sumum hverjum væri afar erfitt ef ekki ómögulegt að framfylgja. Flestir voru þó þeirrar skoðunar að rétt væri að setja reglur en að um þær yrði að skapast sátt og samstaða innan stéttarinnar, hún hefði átt erfitt með að taka á viðkvæmum málum og þess vegna væri brýnt að efla sameiginlega vitund lækna um að taka á málunum áður en allt væri komið í óefni. Landlæknir hafði nefnt að brýnt væri að halda slíkum reglum að læknanemum en fundarmenn voru á því að gott væri að hafa slíkar reglur við höndina allt lífið. Margir fundarmanna bentu á að Codex etracus væri til en að samt væri þörf á að setja reglur um hversdagslegri hliðar á starfi læknisins og samskipt- um hans við sjúklinga. Ekki væri endilega þörf á einhverri nefnd sem hægt væri að kæra Iækna til eða fá þá dæmda heldur vettvang til að ræða það sem er aðfinnsluvert og betur mætti fara. Með öðrum orð- um: læknar lýstu eftir vettvangi þar sem hægt væri að ræða það sem miður fer án þess að vera með sverð réttlætisins hangandi yfir sér. Það væri besta leiðin til þess að hreinsa andrúmsloftið og koma í veg fyrir yfirhylmingu og ofsóknir á hendur uppljóstrurum eins og mörg fræg dæmi eru um, svo sem í Bristol- málinu. Symbicort Turbuhaler INNÖNDUNARDUFT, R 03 A K (Sérlyfjaskrártexti) Innihaldslýsing: Hver skammtur inniheldur: Budesonidum INN 160 míkróg og Formoterolum INN, fúmarat tvíhýdrat, samsvarandi Formoterolum INN 4,5 míkróg og Lactosum. Ábendingar: Til reglulegrar meðferðar á astma þegar samsett lyfjameðferð (barksteri til innöndunar og langvirkur betaörvi) á við þegar ekki næst full stjóm á sjúkdómnum með barkstera til innöndunar og stuttverkandi beta2-örva til innöndunar eftir þörfum, eða þegar full stjóm hefur náðst á sjúkdómnum meö bæði barkstera til innöndunar og langverkandi beta2-örva. Skammtar og lyfjagjöf: Lyfið er ekki ætlaö til upphafsmeðferðar á astma. Skömmtun virku efnanna í lyfinu er einstaklingsbundin og henni á að breyta til samræmis við alvarleika sjúkdómsins. Skammti skal breyta að lægsta skammti sem heldur einkennum sjúkdómsins niðri. Skammtastærðir handa fullorónum: 1-2 innandanir tvisvar sinnum á sólarhring. Venjulega þegar stjóm á einkennum hefur náðst með gjöf lyfsins tvisvar sinnum á sólarhring, getur skammtaminnkun að lægsta virka skammti leitt til þess að unnt verði að gefa lyfið einu sinni á sólarhring. Skammtastærðir handa bömum (yngri en 12 ára): Lyfið er ekki ráölagt bömum yngri en 12 ára. Sérstakir sjúklingahópar: Ekki þarf að breyta skömmtum hjá öldruðum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir búdesóníði, formóteróli eða innönduöum mjólkursykri. Varnaðarorð og varúöarreglur: Ráðlagt er að minnka skammta smám saman þegar meöferð er hætt. Ef sjúklingur telur að meðferð skili ekki viðunandi árangri eða að hann þurfi meira en núverandi skömmtun samsetts lyfs, verður hann að leita læknis. Aukin notkun berkjuvíkkandi lyfs í bráðatilvikum (rescue bronichodilatores) bendir til elnunar á undirliggjandi ástandi og krefst endurmats á astmameöferðinni. Skyndileg og áframhaldandi elnun á stjórn astma getur verið lífshættuleg og brýnt er að endurmeta meðferðina. í slíkum tilvikum skal hafa í huga þörf á aukinni meöferð með barksterum eða hvort gefa þurfi aö auki bólgueyðandi lyf til inntöku, eins og kúr með barksterum eða sýklalyfjameðferð ef sýking er til staðar. Engar upplýsingar eru fyrirliggjandi um notkun lyfsins við meðferð á bráðu astmakasti. Sjúklingum skal leiöbeina um að hafa lyf við bráðaástandi ávallt meðferðis. Meðferö skal ekki hefja á meöan astmi fer versnandi. Eins og við á um önnur lyf til innöndunar getur komið fram berkjusamdráttur með auknum öndunarerfiöleikum strax eftir lyfjagjöf, sem er í þversögn við verkunarhátt lyfsins. Ef alvarleg einkenni koma fram, ætti að endurmeta meðferð og veita annars konar meðferð ef nauösyn krefur. Almenn einkenni geta komiö fram við notkun hvaða barkstera til innöndunar sem er, sérstaklega við stóra skammta sem eru gefnir til langs tíma. Þessar verkanir koma miklu síður fram við meöferð til innöndunar heldur en þegar barksterar eru teknir inn. Hugsanlegar almennar verkanir eru m.a. bæling nýmahettna, seinkun á vexti hjá bðmum og unglingum, minnkun á beinþéttni, vagl á auga og gláka. Það er þess vegna mikilvægt að skammtur af innðnduðum barksterum sé sá minnsti sem heldur einkennum niðri. Læknar ættu að fylgjast náið með vexti bama og unglinga sem fá barkstera óháð íkomuleið og meta ávinning barksterameðferðar á móti hugsanlegri vaxtarbælingu. Ef minnsta ástæða er til að ætla að starfsemi nýrnahettna sé skert eftir fyrri meöferðir með stera til inntöku, skal gæta varúöar þegar meðferð er breytt og notkun lyfsins er hafin. Ávinningur meöferðar með búdesóníði til innðndunar er venjulega aö lágmarka þörf á sterum til inntöku, en hjá sjúklingum sem eru að hætta að nota stera til inntöku getur hættan á skertri starfsemi nýmahettna varað í töluverðan tíma. Sjúklingar sem áöur hafa þurft á stórum skömmtum af barksterum í bráðatilvikum að halda geta einnig verið í hættu. Þessa hugsanlegu vanstarfsemi nýrnahettna til lengri tíma ætti ávallt að hafa f huga við bráöaaöstæöur og aöstæöur sem líklegar eru til að geta valdiö streitu og hafa verður í huga viðeigandi meðferð með barksterum. Ef umfang skertrar nýrnahettnastarfsemi er mikiö getur verið nauðsynlegt að fá ráöleggingar hjá sérfræðingi við aöstæður sem líklegar eru til að valda streitu. Til þess að lágmarka hættu á sveppasýkingu í koki og hálsi ætti að leiðbeina sjúklingum um að skola munn með vatni eftir hverja lyfjagjðf. Samtímis meðferð með ketókónazóli og öðrum öflugum CP3A4 hemlum á að varast (sjá Milliverkanir). Ef það er ekki mögulegt ætti tími á milli lyfjagjafa þessara lyfja að vera eins langur og unnt er. Lyfiö á að gefa með varúð sjúklingum með ofstarfsemi skjaldkirtils, krómfíklaæxli (phaeochromocytoma), sykursýki, ómeðhöndlaðan kalíumskort, hjartavöðvakvilla með þrengingum og hjartavöðvastækkun (hypertrophic obstructive cardiomyopathy), sjálfvakin neðanósæðarþrengsli (idiopathic subvalvular aortic stenosis), alvarlegan háþrýsting, slagæöagúlp eða aðra alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma, eins og blóðþurröarhjartasjúkdóm, hraösláttartruflanir eða alvarlega hjartabilun. Varúöar skal gæta við meðferð sjúklinga með lengingu á QTc-bili. Formóteról getur valdið lengingu á QTc-bili. Hætta á alvarlegum kalfumskorti er hugsanleg eftir stóra skammta af beta2-órvum. Samtímis meðferð með lyfjum sem geta valdið kalíumskorti getur aukið möguleikann á blóðkalíumlækkandi verkun við gjöf stórra skammta af beta2-örvum. Sérstök varúð er ráðlögð við bráðan alvarlegan astma þar sem vefildisskortur getur aukið hættuna. Blóðkalíumlækkandi áhrif geta aukist við samtímis gjöf xantín-afleiða, stera og þvagræsilyfja. Ráðlagt er að fylgjast með þéttni kalíums í sermi við meðferö á bráðum alvarlegum astma. Eins og við á um alla beta2-örva, ætti að hafa í huga aö auka tíðni blóðsykursmælinga hjá sykursjúkum. Lyfiö inniheldur mjólkursykur (<1 mg/innöndun). Þetta magn hefur venjulega ekki vandamál í för meö sér hjá einstaklingum meö mjólkursykuróþol. Milliverkanir við lyf og annað: Milliverkanir vegna lyfjahvarfa: Ketókónazól 200 mg einu sinni á dag sexfaldaði að meðaltali plasmagildi búdesóníðs (einn 3 mg skammtur) sem gefið var samtímis. Milliverkanir vegna lyfhrifa: Betablokkar geta dregið úr eða hamlað verkun formóteróls. Lyfið skal því ekki gefa samtímis betablokka (þ.m.t. augndropum) nema brýna nauðsyn beri til. Meðganga og brjóstagjöf: Engar klínískar upplýsingar liggja fyrír um notkun lyfsins eða samtímis meöferöar með formóteróli og búdesóníði á meðgöngu. Fullnægjandi upplýsingar um notkun formóteróls hjá þunguðum konum liggja ekki fyrír. Upplýsingar benda ekki til aukinnar hættu á vansköpun vegna notkunar búdesónlös til innöndunar. Á meðgöngu ætti einungis að nota lyfið þegar væntanlegur ávinningur vegur þyngra en hugsanleg hætta. Nota ætti lægsta skammt af búdesóníöi sem gefur viðunandi stjóm á astma. Ekki er vitað hvort formóteról og búdesóníð berast I brjóstamjólk. Eingöngu ætti að gefa konum með bam á brjósti lyfiö ef væntanlegur ávinningur móður er talinn meiri en hugsanleg hætta fyrir barnið. Aukaverkanir: Þar sem lyfið inniheldur bæði búdesóníö og formóteról, getur sama mynstur aukaverkana komið fram og greint hefur veriö frá við notkun þessara efna. Ekki hefur sést aukin tíöni aukaverkanatilvika eftir að þessi tvö efni hafa verið gefin samtímis. Algengustu aukaverkanir lyfsins eru þekktar aukaverkanir vegna lyfhrifa beta2-ön/a, eins og skjálfti og hjartsláttarköst. Þær eru yfirleitt vægar og hverfa venjulega innan nokkurra daga. Aukaverkanir sem hafa verið tengdar búdesóníði eða formóteróli eru taldar upp hér á eftir. Algengar (>1%): Miðtaugakerfi: Höfuöverkur. Hjarta- og æðakerfi: Hjartsláttarköst. Stoökerfi: Skjálfti. Öndunarvegur: Sveppasýkingar í munni og koki, væg erting í hálsi, hósti, hæsi. Sjaldgæfar (0,1-1%): Hjarta- og æðakerfi: Hraður hjartsláttur. Stoðkerfi: Vöðvakrampar. Miðtaugakerfi: Æsingur, eirðarleysi, taugaveiklun, ógleði, sundl, svefntruflanir. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Húð: Útbrot, ofsakláöi, kláöi. Öndunarvegur: Berkjukrampi. Afar sjaldgæfar aukaverkanir, þar af geta sumar verið alvarlegar eru m.a.: Búdesóníö: Geðræn einkenni eins og depurð, hegðunartruflanir (aðallega hjá bömum), merki og einkenni um almenna barkstera verkun (þ.m.t. vanstarfsemi nýrnahettna), snemm- eða síökomiö ofnæmi (þ.m.t. húöbólga, ofsabjúgur og berkjukrampi), marblettir. Formóteról: Hjartaöng, blóðsykurshækkun, truflanir á bragöskyni, breytingar á blóðþrýstingi. Eins og við á um önnur innöndunarlyf, getur I einstaka tilvikum komiö fram berkjusamdráttur, sem er I þversögn við verkunarhátt lyfsins (sjá Vamaöarorö). Greint hefur veriö frá hjartsláttartruflunum eins og gáttatitríngi, ofansleglahraötakti og aukaslögum við notkun annarra betæ-ön/a. Ofskömmtun: Ofskömmtun formóteróls myndi líklega valda verkunum sem eru einkennandi fyrir beta2-adrenvirka ön/a: skjálfti, höfuðverkur, hjartsláttarköst og hraður hjartsláttur. Lágþrýstingur, efnaskiptablóðsýring, kalíumskortur og blóösykurshækkun geta einnig komiö fram. Bráð ofskömmtun með búdesóníði, jafnvel í stórum skðmmtum, er ekki taliö klínískt vandamál. Lyfhrif: Lyfið inniheldur formóteról og búdesóníö. Verkunarmáti þessara efna er mismunandi, en þau hafa samleggjandi verkun við aö draga úr versnun astma. Upplýsingar um verkunarhátt hvors lyfjaefnis um sig eru hér á eftir. Búdesónið: Búdesóníö gefið til innöndunar (ráðlögðum skömmtum hefur barkstera bólgueyðandi verkun (lungum sem dregur úr einkennum og versnun astma og hefur minni aukaverkanir í för meö sér en þegar barksterar eru gefnir óstaðbundið. Nákvæmur verkunarháttur þessara bólgueyðandi áhrifa er óþekktur. Formóteról: Formóteról er sértækur beta2-adrenvirkur örvi sem veldur slökun á sléttum vöðvum (berkjum hjá sjúklingum með tímabundna teppu ( öndunarvegum. Berkjuvíkkun hefst fljótt, innan 1-3 m(n. eftir innöndun og verkunarlengd er 12 klst. eftir einn skammt. Pakkningar: Symbicort Turbuhaler: Innöndunarduft 160/4,5 míkróg/innöndun: 120 skammtar: 9.612 kr. 360 skammtar (3 x 120): 25.624 kr. Afgreiðslumáti: R. Greiðsluþátttaka: B. Maí 2002. Markaösleyfishafi: AstraZeneca A/S, Albertslund, Danmark. Umboð á íslandi: PharmaNor hf., Hörgatúni2, Garðabæ. Nánari upplýsingar er að finna í Sérlyfjaskrá Læknablaðið 2002/88 841
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.