Læknablaðið - 15.07.2004, Blaðsíða 8
RITSTJÓRNARGREINAR
Blessuð sólin elskar allt ...
Nú er tími sumarleyfa, sólarlandaferða, sólbaða,
útivistar og vonandi eigum við eftir að njóta margra
góðviðrisdaga á þessu sumri. I tilefni af þessu er
ekki úr vegi að huga að því að „blessuð sólin“ hefur
einnig aðrar hliðar, skuggahliðar sem mun verða
fjallað um hér á eftir.
Sólargeislar geta valdið sólbruna, öldrun húðar
og húðkrabbameini (1). Faraldsfræðilegar rann-
sóknir hafa sýnt að flöguþekjukrabbamein tengjast
heildargeislamagni, en sortuæxli og grunnfrumu-
krabbamein hafa verið tengd við óreglulega sólun
(2, 3). Sortuæxli hafa einnig verið tengd sólbrunum
og sólböðum í æsku (2). Þrátt fyrir þessar stað-
reyndir eru margir tilbúnir að greiða dýru verði fyrir
brúnan húðlit (3, 4). Talið er að sólargeislarnir geti
valdið húðkrabbameini með því að valda stökk-
breytingum í mikilvægum stjórngenum eins og p53
Nýgengi pr. 100.000 íbúa
Greiningarár
Mynd 1. Sortuœxli í húð. Árlegt aldursstaðlað nýgengi miðað við 100.000 íbúa (8).
Bárður
Sigurgeirsson
Höfundur er húðiæknir.
Mynd 2. Sortuœxli í húð. Árleg aldursstöðluð dánartíðni miðað við 100.000 íbúa (8).
og með bælingu ónæmiskerfisins (5). Jafnvel minni
háttar roði í húðinni eftir sólbað er merki um DNA
skemmdir bæði í litarfrumum og homfrumum (6).
Húð flestra einstaklinga býr yfir öflugu viðgerðar-
kerfi sem oftast lagfærir slíkar skemmdir. Sjúklingar
sem hafa meðfædda viðgerðargalla fá hins vegar
fjölda húðkrabbameina, strax á fyrstu árum ævinn-
ar. Margt bendir til þess að sá lífstíll sem við tömd-
um okkur á tuttugustu öldinni valdi svo miklu álagi
á viðgerðarkerfi húðarinnar að í mörgum tilvikum
nái húðin ekki að laga skemmdirnar og að afleiðing-
arnar séu ört vaxandi nýgengi húðkrabbameina. Þó
talið sé að flest húðkrabbamein megi rekja til geisla
sólarinnar hafa nýlegar rannsóknir einnig sýnt fram
á tengsl húðkrabbameina við notkun ljósabekkja
(6,7).
Undanfarna ártugi hefur nýgengi húðkrabba-
meina, sérstaklega sortuæxla, aukist hratt hérlendis
(mynd 1) (8). Samkvæmt upplýsingum frá Krabba-
meinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðal-
tali 45 manns á ári með sortuæxli í húð, 45 með
önnur húðæxli og um 170 manns með svonefnd
grunnfrumuæxli í húð. Tíðni húðæxla í heild hefur
tvöfaldast á síðustu tíu árum og mest er aukningin
hjá ungum konum. Sortuæxlum hefur fjölgað mest,
en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameina og
algengasta krabbameinið hjá konum á aldrinum 15-
34 ára. A síðastliðnum tuttugu árum hefur nýgengi
sortuæxla hjá konum farið úr 5,3 tilvikum í 18,5
(miðað við 100.000 íbúa) (8).
Til að draga úr tíðni húðkrabbameina og dauðs-
föllum af þeirra völdum er talið árangursríkast að
beita fyrirbyggjandi aðgerðum og að greina meinin
snemma.
Það virðist vera að hérlendis gangi betur að
greina meinin snemma en áður. Til marks um
þetta er að dánartíðni (mynd 2) hefur ekki aukist
að sama skapi og nýgengi og að í flestum löndum
greinast nú þynnri æxli en áður (8). Mikilvægt er
að allir læknar hugi að greiningu húðkrabbameina.
Kjörið tækifæri gefst til að skoða húðina við flestar
læknisheimsóknir þó sjúklingurinn leiti ekki læknis
vegna húðbreytinga. Sýnt hefur verið fram á að
mörg húðkrabbamein greinast þegar sjúklingarnir
leita læknis vegna annarra vandamála (9). í
mörgum tilvikum þurfa sjúklingarnir að afklæðast
til að læknisskoðun geti farið fram og tekur þá ekki
langan tíma að skoða húðina samhliða. Á þennan
hátt geta greinst mein á frumstigi sem hefðu annars
hugsanlega greinst síðar og getur þannig skilið á milli
feigs og ófeigs. Vakni grunur um húðkrabbamein er
536 Læknablaðið 2004/90