Læknablaðið - 15.07.2004, Side 40
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Nefnd Jónínu Bjartmarz
Sigurbjörn
Sveinsson
Höfundur cr formaöur LÍ.
í pistlunum Af sjónurhóli
stjórnar birta stjórnarmenn
LÍ sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Að undanförnu hefur spurningum um verka-
skiptingu í heilbrigðiskerfinu og viðbrögð þess við
aðhaldi í ríkisfjármálum gjarnan verið svarað með
vísan til væntanlegra tillagna ráðherraskipaðrar
nefndar undir forystu Jónínu Bjartmarz er fjallar
um þetta efni. Formaður nefndarinnar hefur nú lýst
því yfir að nefndin geti ekki skilað áliti á tilsettum
tíma og dregst starf nefndarinnar fram á haust að
minnsta kosti. Undirritaður var skipaður í nefndina
á sínum tima án tilnefningar en augljóslega vegna
formennsku í LÍ.
I kjölfar þess ákvað stjórn LI að skipa nefnd
lækna til að taka þátt í þessu verkefni með undir-
rituðum og fékk tilnefningar um nefndarmenn frá
Læknafélagi Reykjavíkur, Félagi íslenskra heimilis-
lækna, Læknaráði LSFI og Læknaráði FSA. Sigurður
Guðmundsson landlæknir var skipaður formaður
nefndarinnar án tilnefningar. í kjölfar þeirrar vinnu
sem læknar lögðu fram síðastliðinn vetur lagði undir-
ritaður fram tillögur sínar fyrir nefnd JB 30. apríl.
Fjalla þær fyrst og fremst um hvaða aðferðum á að
beita við verkaskipti í heilbrigðiskerfinu, um eðlilega
þróun án miðstýringar frá degi til dags, um farvegu
fjármagnsins og um afl faglegra sjónarmiða í dreif-
ingu verkefnanna.
Nú verður því ekki með sanngirni haldið fram, að
skortur á hugmyndafræðilegri vinnu eða markvissum
tillögum um niðurstöður tefji verklok nefndar Jónínu
Bjartmarz. Tillögur lækna gefa að sínu leyti tilefni
til málefnalegrar umræðu og að afstaða sé til þeirra
tekin. Ég vil gera í örstuttu máli grein fyrir leiðar-
stefjum og nýmælum.
Tillögur LI snúast um;
- almennar leikreglur fyrir alla í heilbrigðiskerf-
inu, heilbrigðisstarfsmenn, sjúklinga og pólitík-
usa (fjárveitendur),
- að gæta jafnræðis jafnt fyrir sjúklinga og heil-
brigðisstarfsmenn,
- að nýta hugmyndir um samkeppnisumhverfi til
hagræðingar og bættrar þjónustu,
- að faglegra sjónarmiða sé gætt um veitingu
þjónustu og komi þau á undan fjárhagslegum
sjónarmiðum, það er hvar rétt sé að hægt að
gera hlutina frá faglegum sjónarhóli,
- að sá sem fjármagnar þjónustuna eigi val um
hvar hún sé veitt og að gefnu því, að sá sem
borgar vilji að þjónustan sé veitt við kostnaðar-
minnstu kringumstæðurnar,
- að fullnægðum faglegum kröfum ráði sjónar-
mið hagkvæmni og hagræðingar mestu um
þróun heilbrigðiskerfisins og hvar það leitar
jafnvægis.
Nýmæli eru þau helst;
- að greina á milli kaupenda og seljenda heil-
brigðisþjónustu með uppskiptingu heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytisins,
- að ekki séu unnin læknisverk á tilteknum stöð-
um nema að mættum faglegum kröfum land-
læknis, sem byggja m.a. á magni læknisverka,
- að greiðslur fyrir verk fjármagni heilbrigðis-
kerfið eins og kostur er,
- að jafnræðis verði gætt milli ríkisreksturs og
einkareksturs og á milli sjúkrastofnana og
einkarekinna læknastofa,
- að jafnræðis verði gætt í gjaldtöku á milli sjúk-
linga, sem njóta þjónustu innan spítala annars
vegar og utan þeirra hins vegar.
Undirritaður hefur verið gagnrýndur fyrir, að frá
honum komi tillögur, sem greiða fyrir dagdeilda- og
göngudeildastarfsemi sjúkrahúsa. Sé það í trássi við
markaða stefni aðalfunda LÍ í 15 til 25 ár.
Þó ég hafi verið þekktur af öðru en að draga taum
opinbers reksturs gagnvart einkarekstri duga þau rök
ein ekki til að hrinda þessari gagnrýni, heldur vegur
hitt þyngra, að vaxandi fjöldi lækna hefur af ýmsum
ástæðum kosið að vina eingöngu á sjúkrahúsum.
Þessir læknar búa yfir þekkingu, sem sjúklingar utan
sjúkrahúsa geta nýtt sér og læknarnir eru tilbúnir til
að leggja fram í þeirra þágu. Það er umhugsunarefni
að hve miklu leyti Læknafélag íslands getur beitt sér
fyrir takmörkunum á alnbogarými þessara lækna til
að stunda sérsvið sín, ef þeim er skapað svigrúm til.
Þá er hitt ekki síður mikilvægara, að í vörnum
sínum fyrir einkarekstri lækna, hefur LÍ hvað eftir
annað vitnað til jafnræðiskröfu og samkeppnissjón-
armiða. í umsögn læknafélaganna, frá 12. nóvem-
ber 2001, um frumvarp til breytinga á lögum um
almannatryggingar, var undirtónninn sá að sjálfstæð-
ur stofurekstur síðustu ára hafi byggst á jafnræði og
jafnri samkeppnisstöðu í þeirri trú að reksturinn væri
hagkvæmur fyrir þjóðfélagið. Meðal annars sagði í
umræddri umsögn: „Hvað snertir þá ályktun ráðu-
neytisins að þessi breyting muni auka hagkvæmni
skal á það bent, að ekki liggur ennþá fyrir kostnað-
argreining á starfsemi spítalans, sem unnt væri að
leggja til grundvallar í samningsgerð um ferliverk.
Vitað er að ýmis ferliverkastarfsemi, sem unnin er
á spítalanum, íþyngir fjárhagslegum rekstri hans.
Starfsemi sjálfstætt starfandi lækna er kostnaðar-
greind að fullu og hefur skilað þolanlegri afkomu í
flestum tilfellum þó svo að læknar greiði að jafnaði
lægra aðstöðugjald í eigin stofum en þeim stendur til
boða á spítalanum. Það er því mat læknafélaganna
568 Læknablaðið 2004/90