Læknablaðið - 15.07.2004, Page 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMSKIPTAREGLUR
- Rætt við Jóhannes M. Gunnarsson framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala um
nýjar samskiptareglur starfsfólks við lyfjakynna og fleiri
Þröstur
Haraldsson
Töluverðar umræður hafa orðið á síðustu vikum
og mánuðum um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja.
Nú hafa þær ásamt öðru orðið til þess að á Landspít-
ala hafa verið settar reglur um kynningar fyrirtækja
inni á spítalanum, annars vegar á lyfjum og hins vegar
á tækjum, rekstrarvörum og þjónustu. Reglurnar ná
raunar einnig yfir samskipti starfsfólks spítalans við
kynna þótt þau fari fram utan sjúkrahússins, til dæmis
í utanlandsferðum sem starfsmönnum kann að verða
boðið í.
Læknablaðið leitaði til Jóhannesar M. Gunnars-
sonar framkvæmdastjóra lækninga á Landspítalanum
og spurði hverju sætti að spítalinn setti þessar reglur.
„Það er öllum til góðs að þessi samskipti séu
opin og allt uppi á borðinu hvað þau varðar,“ sagði
Jóhannes. „Læknafélag íslands og Samtök verslunar
og þjónustu hafa komið sér saman um samskiptaregl-
ur lækna og lyfjafyrirtækja og þessar reglur eru samd-
ar með hliðsjón af þeim. Sjúkrahúsið er hins vegar
ekki aðili aö þeim samningi svo við töldum eðlilegt
að það setti sér sínar eigin reglur.
Það er öllum ljóst að starfsfólk spítalans á mikil
samskipti við framleiðendur lyfja og tækja og selj-
endur þjónustu. Þessi samskipti eru nauðsynleg en
þau hafa verið tortryggð. Þess vegna er eðlilegt að um
þau gildi skýrar reglur, meðal annars til þess að þau
trufli ekki dagleg störf á spítalanum. Sannast sagna
hafa samskipti starfsfólks við kynna verið gagnrýnd
og við viljum ekki að fólk hafi ástæðu til að tortryggja
þau. Langflestir starfsmenn og kynnar eru strang-
heiðarlegir í störfum sínum og vilja hafa þau í föstum
skorðum. En vissulega eru dæmi um frávik frá því.“
Tvenns konar gagnrýni
- Hvernig hefur starfsfólk tekið þessum reglum?
„Yfxrleitt mjög vel en eins og við mátti búast hafa
heyrst gagnrýnisraddir. Það er aðallega tvennt sem
hefur sætt gagnrýni. Annars vegar er það ákvæði um
að um allar kynningar skuli hafa samráð við yfirlækni
þjónustudeildar lyfja eða sviðsstjóra á innkaupa- og
vörustjómunarsviði eftir atvikum. Þetta þykir sumum
of stíft en því er til að svara að við gerum ráð fyrir því
að aðilar komi sér saman um almennar reglur um fyrir-
komulag kynninga. Þegar þær línur hafa verið lagðar er
aðeins nauðsynlegt að tilkynna viðkomandi yfirmanni
um heimsókn eða kynningu.
Hins vegar er gagnrýni sem gengur í þveröfuga átt
því læknaráði spítalans finnst við of frjálslegir hvað
Reglur um lyfjakynningar á Landspítala og
samskipti lyfjakynna og starfsmanna spítalans
1. AUar kynningar skulu vera hlutlægar,
nákvæmar, sannar og í samræmi við lög
og almennt siðferði. Jafnframt skulu þær
vera í samræmi við ákvæði reglugerðar nr.
328/1995 um lyfjaauglýsingar með áorðn-
um breytingum skv. reglugerð nr. 95/2001
og breytingum er síðar kunna að taka gildi.
2. Lyfjakynnir skal hafa samráð við yfir-
lækni þjónustudeildar lyfja á lyfjasviði spít-
alans, um hvernig almennt skuli staðið að
lyljakynningum.
3. Aður en lyfjakynning er haldin á LSH
skal aflað heimildar yfirlæknis á viðkom-
andi starfseiningu. Skal kynningin fara
fram í samræmi við dagskrá og stað er
faglegur yfirmaður og kynnir hafa komið
sér saman um. Kynning og önnur sölu-
starfsemi er óheimil í húsnæði sem ætlað er
sjúklingum og/eða þar sem meðferð þeirra
fer fram.
4. Aður en kynning er haldin skal kynn-
ir afhenda, í móttöku á fyrstu hæð á
Eiríksgötu 5, eða hjá vaktmönnum á I. hæð
í Fossvogi, tilkynningu um fyrirhugaða
kynningu, hvað kynna skal, hvaða starfs-
mönnum eða hópurn er boðið, staðsetn-
ingu og tímasetningu og nafn yfirlæknis
sem haft hefur verið samráð við. Skal
kynni þá afhent merki þar sem skráður er
áætlaður tími lýrir kynninguna. Skal kynn-
ir staðfesta móttöku merkisins skriflega og
þá jafnframt undirrita yfirlýsingu þar sem
hann skuldbindur sig til að gæta þagmælsku
varðandi allar persónuupplýsingar er hann
kann að verða áskynja í starfi sínu innan
stofnunarinnar. Kynnir skal bera merkið
á sjáanlegan máta meðan hann dvelur á
stofnuninni vegna starfa sinna og skila því
þegar að kynningu lokinni. í móttöku á
Eiríksgötu 5 og hjá vaktmönnum 1. hæð í
Fossvogi skal halda skrá yfir kynningar og
hvenær merki er afhent og því skilað.
5.1 starfi sínu innan LSH skulu lyfjakynnar
ætíð bera merki þar sem fram kemur nafn
þeirra og vinnuveitanda. Skal merkið vera
vel sjáanlegt meðan á kynningu stendur.
LSH tekur ekki ábyrgð á öryggi lyfjakynna
í störfum þeirra innan stofnunarinnar.
6. Heimilt er að kynna lyf sem eru á lyfja-
lista stofnunarinnar svo og ný lyf. Þegar
um ný lyf er að ræða skal þess getið að um
sé að ræða nýja meðferð sem lyfjanefnd
stofnunarinnar hefur enn ekki fjallað um
eða tekið afstöðu til. Óheimilt er að kynna
570 Læknablaðið 2004/90