Læknablaðið - 15.07.2004, Qupperneq 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMSKIPTAREGLUR
varðar gjafir fyrirtækja til starfsfólks, samanber 9.
grein. Þeir vilja ekki leyfa neinar gjafir. Við höfum
sagt sem svo að betra sé að setja hófsamlegar og
raunhæfar reglur sem farið verður eftir en strangar
reglur sem líklegt má telja að menn reyni að brjóta.
Slíkt gæti grafið undan þeirri hugmyndafræði sem að
baki reglunum býr en hún er sú að í þessum samskipt-
um ríki formfesta sem dregur úr tortryggni.“
- í 11. grein segir að starfsmönnum sé óheimilt að
beita áhrifum sínum við ákvörðun um lyfjakaup eða
önnur viðskipti við fyrirtæki sem þeir eiga hlutdeild í
eða tengjast með öðrum hætti. Er þetta sett þarna inn
af illri nauðsyn?
„Nei, þetta er ekki útbreitt vandamál en þó eru
þess því miður dæmi að einstakir starfsmenn hafi
skuldbundið spítalann án þess að það hafi hlotið
eðlilega umfjöllun. Þarna er að mörgu að hyggja, til
dæmis er ekki endilega sjálfsagt mál að kaupa eitt-
hvert tæki sem menn hafa séð á sýningu. Það þarf
að hyggja að þjónustu við tækið, viðhaldi og fleiru.
Spítalinn er líka bundinn af ýmsum reglum sem gilda
um innkaup, svo sem útboðsskyldu og reglum ríkisins
um innkaup."
Yfirlæknar afgreiði boðsferðir
Boðsferðir á vegum lyfjafyrirtækja og annarra
fyrirtækja hafa verið í brennidepli umræðunnar en
í 13. grein nýju reglnanna er fjallað um þær. Þar er
rætt um að sækja þurfi um leyfi til yfirlæknis, eða
framkvæmdastjóra lækninga ef yfirlæknir á í hlut,
vilji starfsmaður þiggja ferð sem hefur það markmið
að kynna lyf, meðferð, tæki eða aðrar vörur eða
þjónustu. En hvað um
boðsferðir á ráðstefnur?
„Lyfjafyrirtæki bjóða
læknum á margar góðar
ráðstefnur en oftast
er samhliða eitthvað í
boði sem tengist ein-
hverju lyfi eða annarri
framleiðsluvöru. Við
ætlumst lil þess að öll
slík boð fari um hend-
ur yfirlæknis. Þetta á
að draga úr óeðlilegum
tengslum ef þau eru til
staðar. Einnig viljum við
stuðla að því að sem
flestir njóti slíkra boðsferða enda séu þær í tengslum
við starfsemi viðkomandi deildar eða sviðs. Með því
að beina þessu til yfirlæknanna teljum við okkur geta
beint þessum ágætu menntunarmöguleikum inn í
réttan farveg.
Víða erlendis er fyrirtækjum gert að greiða sína
styrki í sjóði sem þau hafa engin áhrif á hvernig er
úthlutað úr. Þetta gildir til dæmis víða í Noregi. Við
göngum ekki svo langt,“ segir Jóhannes.
Hann bætti því við að eflaust myndu koma fram
einhverjir ágallar á þessum reglum en ákveðið væri
að heildarendurskoðun á þeim fari fram eftir þijú
ár. Læknablaðið birtir hér reglur um lyfjakynningar
en hinar reglurnar eru mjög sambærilegar að gerð
og uppbyggingu. Báðar reglurnar má finna á vef
Landspítalans.
Kynning á lyfjum og
öðruni vörum og þjónustu
er bönnuð í húsnœði sem
œtlað er sjúklingum eða
meðferð þeirra fer fram.
lyf sem hefur verið hafnað af lyfjanefnd
stofnunarinnar eða verið fjarlægð af lyfja-
lista.
7. Á kynningarfundi má afhenda kynning-
arefni en ekki skilja slíkt eftir á almennum
svæðum innan spítalans eða svæðum sem
ætluð eru sjúklingum.
8. Sýnishorn lyfja er heimilt að afhenda
starfsmanni sé það í samræmi við almennar
heimildir. Óheimilt er að nota slík sýnis-
horn til meðferðar sjúklinga.
9. Heimilt er að afhenda á kynningarfundi
hlut/gjöf sem hefur táknræna merkingu
fyrir viðkomandi kynningu eða er í tengsl-
um við starf viðkomandi starfsmanns og
bjóða má upp á einfaldar veitingar. Gæta
skal þess að verði slíkra hluta og veitinga
sé mjög stillt í hóf. Óheimilt er að bjóða
starfsmönnum gjafir eða ívilnanir að öðru
leyti í tengslum við slíkar kynningar eða
í því augnamiði að hvetja starfsmenn til
að beita sér fyrir innkaupum viðkomandi
vöru til stofnunarinnar. Starfsmönnum er
óheimilt að þiggja slík boð.
10. I kynninguin skulu koma fram upp-
lýsingar um verð, t.d. verð á dagskammti
viðkomandi lyfs.
11. Starfsmönnum LSH er óheimilt að
annast kaup eða beita áhrifum sínum við
ákvörðun á lyfjakaupum f.h. spítalans frá
fyrirtækjum sem þeir eiga hlut í eða tengj-
ast að öðru leyli.
Kynningar utan LSH
12. Allar kynningar á lyfjum fyrir starfs-
menn LSH sem fara fram utan spítal-
ans skulu vera í samræmi við samning
Læknafélags íslands og Samtaka verslun-
arinnar um samskipti lækna og lyfjafyrir-
tækja sem framleiða og flytja inn lyf og ein-
nig reglur annarra fagfélaga sem selt hafa
sérstakar reglur þessu viðkomandi.
13. Boð til starfsmanna LSH um ferð-
ir erlendis á vegum lyfjafyrirtækis eða
umboðsaðila þess til að kynna lyf eða
lyfjameðferð skal senda skriflega til yfir-
læknis sem tekur ákvörðun um hvort og þá
hvaöa starfsmaður muni fara í viðkomandi
ferð. Yfirlæknir skal senda framkvæmda-
stjóra lækninga upplýsingar um ferðina
og þátttakendur í henni og ákveði yfir-
læknir að fara sjálfur í slíka kynningar-
ferð skal tilkynning þar að lútandi send
framkvæmdastjóra lækninga áður en ferð
er farin. Framkvæmdastjóri lækninga skal
halda skrá yfir ferðirnar og þátttakendur.
Slíkar kynningarferðir fela ekki í sér nein-
ar skuldbindingar af hendi LSH um neins
konar frekari viðskipti og í tengslum við
ferðir er starfsmanni óheimilt að gera ráð-
stafanir sem skuldbundið geta spítalann.
14. Listar með nöfnum lækna eða ann-
ars starfsfólks eru einungis ætlaðir LSH
og starfsfólki spítalans og er óheimilt að
afhenda þá lyfjakynnum eða sölumönn-
um.
Læknablaðið 2004/90 571