Læknablaðið - 15.07.2004, Blaðsíða 47
Úr starfí
iæknafélaganna
Ný stjórn
nýrnalækna
í nýrri stjórn Félags íslenskra nýrnalækna
eru Margrét Árnadóttir formaður, Yiðar
Örn Eðvarðsson gjaldkeri og Hrefna
Guðmundsdóttir ritari. Endurskoðandi
félagsins er Þorvaldur Magnússon.
Ný stjórn þvag-
færaskurðlækna
Það var brœla og súld þegar Védís Skarphéðinsdóttir, Lars-Einar Floman heiðursritstjóri finnska
blaðsins og Vilhjálmur Rafnsson stigu á eitt af skrilljón skerjum í finnska skerjagarðinum. Herrarnir
klœðast treyjum í boði Finnanna. - Myndir: Álfheiður Steinþórsdóttir og Vilhjálmur Rafrtsson.
Finnska blaðið er mjög sanrtvinnað lækna-
félaginu, norska blaðið er mjög öflugt og
frískt, ekki síst á netinu, sænska blaðið hefur
siglt hægan byr um árabil peningalega en nú
sjá þau fram á breytta tíma og niðurskurð
þareð auglýsingum í blaðinu hefur snar-
fækkað, Danir eru rétt komnir útúr miklum
ógöngum og þurftu að horfast í augu við
gagngerar sparnaðarráðstafanir.
Blöðin eru eðli málsins samkvæmt nokk-
uð forn í lund, þó allsstaðar hafi bylgju
nýrrar tækni skolað að landi. Blöðin eru
öll á netinu og upplýsingastreymið er löngu
orðið að ógnar flóði. En markmið blaðanna
hefur haldist óbreytt: að efla og yrkja lækna-
vísindin, koma rannsóknum á framfæri og
halda læknum upplýstum og vel menntuð-
um eftir að úr skóla er komið.
Aðalfundur Félags íslenskra þvagfæra-
skurðlækna var haldinn 5. mars síðast-
liðinn. Þar var félaginu kjörin ný stjórn
en fráfarandi stjórn baðst undan endur-
kjöri. Nýja stjórnin er þannig skipuð:
Guðmundur Geirsson formaður gug@-
landspitali.is, Guðjón Haraldsson ritari
gudjonhar@landspitali.is og Baldvin Þ.
Kristjánsson gjaldkeri baldvin@landspi-
tali.is. Varamenn í stjórn eru Valur Þór
Marteinsson i'almart@fsa.is og Hafsteinn
Guðjónsson hafsteinn@fsa.is.
Bíll með
rómantíska
læknasögu
Willys Overland 4x4
árgerð 1959 til sölu.
Bíllinn er eins og nýr.
Upplýsingar í síma 898 8577.
Læknablaðið 2004/90 575