Læknablaðið - 15.07.2004, Blaðsíða 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGARÁÐUNEYTINU
Lyfjamál 127
Þunglyndislyf enn og aftur
Enn vex notkun þunglyndislyfja í flokki sér-
hæfðra serótónín endurupptökuhemla (N06AB) og
halda landsmenn enn tryggri forystu í þeim efnum
meðal Norðurlandaþjóða. Samkvæmt uppgjöri frá
Tryggingastofnun ríkisins (TR) var ávísað 5.420.611
dagskömmtum þessara lyfja á síðasta ári, en það
magn dugir 14.851 manni til meðferðar alla daga árs-
ins. Verðmætið nemur um 880 milljónum króna.
Þetta eru kannski ekki nýjar fréttir fyrir marga,
en nú er nýtt í gögnum TR að unnt er að skoða ald-
ursdreifingu og kyn notenda og kemur þá í Ijós að
321.606 dagskammtar, eða 5,7% notkunarinnar, er
hjá börnum og unglingum 19 ára eða yngri. Þetta sam-
svarar því ársnotkun fyrir 880 börn og unglinga.
Nú eru fimm lyf í flokki N06AB á markaði hér,
flúoxetín, cítalópram, paroxetín, sertralín og escítal-
ópram. Aðeins eitt þessara lyfja, sertralín, hefur
ábendingu fyrir notkun hjá börnum og unglingum,
það er við þráhyggju/áráttusýki 6-17 ára. Öll hin hafa
í barnaábendingu annaðhvort: ekki œtlað börnum,
ekki ráðlagt innan 18 ár, eða: upplýsingar um reynslu
og áhrifskortir.
Notkun sertralíns á aldursbilinu 0-19 ára var
135.858 dagskammtar sem samsvarar ársnotkun fyrir
372.
Segjum að sertralín ávísanirnar séu í lagi. Þá
standa eftir 185.748 dagskammtar. Það er með öðrum
orðum hugsanlega verið að gefa 509 börnum og ung-
lingum daglega flúoxetín, cítalópram, paroxetín og
escítalópram, lyf sem alls ekki eru skráð með ábend-
ingar fyrir börn.
í Danmörku veldur það nú vaxandi áhyggjum að
2830 börn undir 17 ára aldri fengu þunglyndislyf á
síðasta ári en Danir eru tuttugu sinnum fleiri en við.
Væri notkun okkar í takt við notkun þeirra væru hér
um 140 börn og unglingar í meðferð en ekki 880.
Ráðlagður dagskammtur/lOOOÍb./dag
Ráðlagóur dagskammtur
12%
Kyn
10%
0% Otil 1 árs 1-4 5-9 10-14 15-19 20-24 25-29 30-34 35-39 40-44 45-49 50-54 55-59 60-64 65-69 70-74 75-79 80-84 85 og eldri
■ KK 0,0% 0,0% 0,6% 2,5% 4,2% 6,2% 7,2% 7,5% 9,1% 10,4% 10,4% 8,8% 8,6% 6,0% 4,9% 5,6% 4,0% 3,1% 1,0%
■ KVK 0,0% 0,0% 0,3% 1,2% 3,4% 5,8% 7,2% 8,2% 10,2% 11,0% 10,7% 10,2% 8,5% 6,2% 5,3% 4,8% 3,7% 2,1% 1,2%
Mynd 2. NOóAB - Hlutfallsleg skipting á DDD eftir aldri.
Mynd 1. SSRI-geðdeyfð-
arlyfá Norðurlöndum
(NOóAB).
Grein þessi er tekin saman af
skrifstofu lyfjamála heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins
til upplýsingar fyrir lesendur
Læknablaðsins.
Af gefnu tilefni er grein
þessi ekki skrifuð undir nafni
einstaks embættismanns, því
þær greinar sem birtar hafa
verið á þessum vettvangi
endurspegla ekki endilega
persónuleg sjónarmið
viðkomandi embættismanns
heldur er um að ræða stefnu
ráðherra og ráðuneytis.
Læknablaðið 2004/90 587