Læknablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 5
y M R Æ fl fl 0 G F R É T T I R
864 Af sjónarhóli stjórnar
LÍ: Lífeyrir - tryggingar
- bankaviðskipti
Birna Jónsdóttir
Minnum lækna á að taka
þátt í rannsókn á umgjörð
og heilsu í starfi lækna
865 Framhaldsnám í lyflækn-
ingum á Landspítala:
Fyrstu deildarlæknarnir
útskrifaðir
866 Óhagkvæmt að flytja ferli-
verkin til baka
Rætt við Stein Jónsson um kostn-
aðargreiningu Hagfræðistofnunar
Háskóla íslands á nokkrum teg-
undum heilbrigðisþjónustu
Þröstur Haraldsson
868 Vísvitandi sjálfsskaðar.
Sj álfs vígstilr aunir
Brynjólfur Ingvarsson
869 Orlofskostum fjölgar
870 Heilbrigðiskerfið sem hag-
stjórnartæki
Ingólfur S. Sveinsson
873 Rekstrarvandi og uppbygg-
ing Landspítala
Ólafur Örn Arnarson
874 Eru barna- og unglingageð-
lækningar að deyja út?
Viðhorf stjórnvalda til barna þarf
að breytast segja þær Guðrún
Bryndís Guðmundsdóttir, Dag-
björg Sigurðardóttir og Helga
Hannesdóttir
Þröstur Haraldsson
875 Afmælisboð
Læknablaðsins
876 Bókarumfjöllun: Hugsjónir
og hugarvingl
Tómas Helgason
877 Frá fulltrúa LÍ í fastanefnd
evrópskra lækna
Katrín Fjeldsted
878 Þegar Henry Gray kom
fyrst í læknadeild Háskóla
Islands
Örn Bjarnason
879 Félagið er afrakstur nor-
rænnar samvinnu
Rætt við Atla Þór Ólason for-
mann Félags áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar en félagið
verður fertugt á jólaföstunni
Þröstur Haraldsson
881 Ráðstefna til minningar
um Jón Steffensen
882 Minning: George W.
Simmons M.D.
Halldór Baldursson
883 Frá Eli Lilly: Niðurstöður
rannsókna birtar
opinberlega
884 Reglur Fjölskyldu- og
styrktarsjóðs sjúkrahús-
lækna og heilsugæslulækna
Fastir pistlar
887 íðorð 172: Blóðgjöf Jóhann Heiöar Jóhannsson
889 Faraldsfræði 42: Þáttagreining Anna Birna Almarsdóttir
891 Broshorn 54: Ofeldi og falskar Bjarni Jónasson
892 Læknadagar 2005
898 Styrkir/lausar stöður/ þjónusta
899 Okkar á milli
902 Sérlyfjatextar
907 Minnisblaðið
Hin margumrædda vinnu- tímatilskipun Katrín Fjeldsted
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
Birgir Andrésson (f. 1955) er
myndlistarmaður sem segja má að
sé mjög íslenskur en um leið fæst
hann við málefni sem ofarlega eru á
baugi í alþjóðlegu samhengi. Hann
hefur leitað fanga í sögum, hefðum
og handverki þjóðarinnar og dregið
fram í verkum sínum sem unnin eru
í ólíka listmiðla. Þau eiga það sam-
eiginlegt að vera aðlaðandi, litrík og
oft á tíðum gamansöm en geta um
leið vakið áhorfendur til umhugsunar
um knýjandi málefni okkar tíma. Fáir
hérlendir listamenn hafa tekist á við
sjálfsmynd þjóðar og rýni í menn-
ingarsögu með þeim hætti að af því
megi bæöi hafa gagn og gaman. (
sinni nýjustu myndaseríu, Nýbúar, frá
þessu ári, sækir hann ekki langt aftur
í tímann en Ora niðursuðudósirnar
skipa óneitanlega sérstakan sess hjá
þjóðinni sem vinsæl neysluvara. Á
hverri Ijósmynd hefur Birgir plantað
framandi plöntu í dós undan mis-
munandi framleiðsluvöru niðursuðu-
fyrirtækisins og tilgreinir með texta á
myndinni hvað um sé að ræða. Allar
eru plönturnar í dósunum gróskum-
iklar og gefa von um að með frekari
umönnun og umpottun í varanlegan
jarðveg komi þær til með að dafna
vel. Hér er ekki flókið myndmál á
ferðinni og boðskapurinn Ijós, ef til
vill pólitískari en áður hefur sést frá
listamanninum. Önnur ný verk Birgis
eru af svipuðum toga en það eru
textamálverk þar sem titlar þekktra,
erlendra, svart/hvítra kvikmynda
eru málaðir með „íslenskum litum".
Hann hefur lagt sig eftir að finna
séríslenska liti sem hann leitar uppi
í íslenskri byggingarlist og á minja-
söfnum og flokkar eftir alþjóðlegum
litakerfum. Hvort tveggja, Ijósmynd-
irnar og málverkin, eru góð dæmi um
hugmyndafræði listamannsins og
húmor sem sjaldan er langt undan.
Hann hefur verið fulltrúi Islands á
Feneyjatvíæringnum þar sem hann
sýndi m.a. handprjónaða fána í
sauðalitunum. Ný verk prýða nú
hina endurnýjuðu ferju Norrænu þar
sem hann vann með gömul, íslensk
frímerki. Ef til vill er hann þekktastur
fyrir textaverk sem eru portrett eða
lýsingar, þar sem fjallað er um fólk,
hross, byggingar og sjórekin lík svo
dæmi séu tekin. Þá er hann mikill
teiknari auk þess sem hann vinnur
með Ijósmyndir, skúlptúra, mynd-
bönd og hljóð. Fram í janúar stendur
yfir kynning á verkum Birgis í Safni á
Laugavegi. Gleðileg jól!
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið 2004/90 825