Læknablaðið - 15.12.2004, Síða 9
RITSTJÓRniARQREINAR
Ferliverk á FSA í ljósi skýrslu
ríkisendurskoðunar
í ljósi skýrslu ríkisendurskoðunar þykir rétt að drepa
niður penna og útskýra viðhorf undirritaðs sem lækn-
ingaforstjóra Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
(FSA) til ferliverkastarfsemi. Ferliverk skilgreini ég
sem læknisþjónustu við sjúkling sem sjúklingur þarf á
að halda og sú þjónusta er veitt án innlagnar á sjúkra-
hús. Liggur þá í augum uppi að um aðgerð getur ver-
ið að ræða eða annað inngrip, svo sem magaspeglun
eða viðtal við sérfræðing. Augljóslega þarf læknirinn
aðstoð annarra heilbrigðistarfsmanna við þessa þjón-
ustu en mismikla og stundum enga. Hér á Islandi hef-
ur sú hefð komist á að læknar hafa sinnt sjúklingum
sem ekki hafa þurft innlagnar við á stofum sínum,
sem á seinni árum hafa ekki verið staðsettar á sjúkra-
húsunum, og þegið greiðslur frá Tryggingastofnun
ríkisins (TR) fyrir unnin verk. Flestir eru sammála
um að þjónusta þessi sé þörf, gæði hennar séu mikil
og hún virðist ekki dýr.
Hins vegar er ljóst að þegar sjúklingur þarf að fara
á marga staði á milli sérfræðinga eða í rannsóknir eins
og er oft raunin, til dæmis á höfuðborgarsvæðinu, þá
getur af því hlotist talsvert óhagræði fyrir sjúklinga og
aðstandendur þeirra. Fyrir lækna er þetta líka meiri
vinna því þeir þurfa að fara af vinnustað sínum og á
stofu og síðast en ekki síst er ljóst að þegar læknirinn
er ekki á sjúkrahúsinu er hann ekki aðgengilegur fyrir
starfsemi þess. Ríkisendurskoðun hefur fært fyrir því
rök að þessi tvískipting sé óhagkvæm í þjóðhagslegu
tilliti. Er ekki ólíklegt að það sé rétt þegar tekið er tillit
til þess að víða geta tæki og búnaður staðið hálfnýtt.
Hér á FSA hefur verið löng hefð fyrir því að lækn-
ar hafi samning um rekstur ferliverka inni á sjúkra-
húsinu. FSA hefur þá lagt til aðstöðu og þá aðstoð
sem þurfa þykir og fyrir það hafa sérfræðingar greitt
aðstöðugjald til spítalans auk endurgjalds vegna þess
tíma er fer í ferliverkin. Sérfræðingar FSA geta mest
verið í 80% starfshlutfalli kjósi þeir að vinna ferli-
verk samkvæmt ferliverkasamningi. Samningar við
sérfræðingana og reksturinn hefur verið tekin út af
Ríkisendurskoðun og ekki gerðar athugasemdir. Við
teljum að fyrirkomulag þetta sé gott, sjúklingnum sé
veitt öll þjónusta á sama stað, aðstaða nýtist betur og
læknirinn hefur aðgengi að sjúkraskrám og því starfs-
fólki sem til þarf. Ljóst er að samlegð er með rekstri
sjúkrahússins og móttöku sérfræðinga. Ekki vilja allir
læknar vinna innan þessa kerfis og hafa kosið fast-
launasamning eins og kjarasamningar lækna bjóða.
Enginn munur er þó á vinnutilhögun lækna hvoru
kerfinu sem þeir tilheyra. Ekki eru þó allir jafnhrifnir
af þessu kerfi og er nærtækast að benda á gagnrýni
samstarfsmanna lækna, svo sem hjúkrunarfræðinga.
Gagnrýnisraddir hafa þó lækkað þegar fólki er ljóst
að læknar hafa engin laun ef engin eru verkin.
Velta má því fyrir sér hver framtíð slíks kerfis sé.
Ég er þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að læknar
geti valið hvort þeir þiggi fastlaunasamning eða kjósi
að vinna verk sín gegn greiðslu fyrir einstök verk. í
samkeppnisumhverfi okkar í dag finnst mér eðlilegt
og rétt að skilið verði á milli reksturs sjúkrahússins
og ferliverkanna þó svo að reksturinn sé allur undir
sama þaki. Við það ætti að vera hægt að bjóða verk
og þjónustuþætti út í ríkari mæli en gert er. Taka má
dæmi eins og sjúkraþjálfun og læknaritaraþjónustu.
En engin rós er án þyrna. FSA er gert að greiða fyrir
ferliverkin eftir taxta TR en af föstum fjárlögum. Það
verður ekki unað við það til langframa að lítill sem
enginn sveigjanleiki sé í greiðslufyrirkomulagi og að
það geti tekið tvö til þrjú ár að sækja fé til ferliverka á
fjárlögum. Skiljanlegt er að greiðandinn vilji stemma
stigu við hækkun á kostnaði við heilbrigðisþjónustu
en þetta fyrirkomulag gengur ekki. Minni stofnanir
á landsbyggðinni hafa ekki bolmagn til þess að veita
þessa þjónustu án þess að fé fylgi ferliverkunum.
Breytist það ekki í sama fyrirkomulag og er hjá sér-
fræðingum er vinna fyrir TR er sjálfhætt með þessa
þjónustu inni á sjúkrahúsunum, en við það er sérfræði-
þjónusta við sjúklinga á landsbyggðinni í uppnámi.
Þorvaldur
Ingvarsson
Höfundur er bæklunarskurð-
læknir og lækningaforstjóri
Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri.
Læknablaðið 2004/90 829