Læknablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRAMHALDSNÁM LYFLÆKNA
Framhaldsnám í lyflækningum við Landspítala:
Fyrstu deildarlæknarnir útskrifaðir
Um miðjan nóvember útskrifuðust fyrstu deildar-
læknarnir eftir þriggja ára framhaldsnám á lyflækn-
ingasviðum Landspítalans. Þau Hilmar Kjartansson,
Guðni A. Guðnason og Sigríður Björnsdóttir hafa
stundað nám í almennum lyflækningum og stefna nú
á frekara framhaldsnám í útlöndum.
Hafist var handa um að koma á fót framhaldsnámi
við Landspítalann eftir sameiningu sjúkrahúsanna og
eru nú um 20 deildarlæknar skráðir í sérnám í lyflækn-
ingum á ýmsum stigum. I námi þeirra er lögð áhersla
á að veita þjálfun í undirstöðuþáttum almennra lyf-
lækninga og byggja upp klíníska færni, trausta dóm-
greind og fagmennsku. Jafnframt eru námslæknar
þjálfaðir í vísindastörfum og hvattir til að temja sér
sjálfstæða þekkingaröflun.
Deildarlæknunum er falin stigvaxandi ábyrgð með
hliðsjón af færni þeirra og reynslu. Pegar blaðamaður
Læknablaðsins ræddi við hina nýútskrifuðu deildar-
lækna hrósuðu þeir ekki síst þeim þætti námsins. Þau
hefðu verið farin að stjórna vöktum og starfa sjálfstætt
á göngudeild en að sjálfsögðu með það í bakhöndinni
að geta leitað stuðnings sérfræðilækna ef á þyrfti að
halda. Petta fyrirkomulag bætti líka starfsandann á
sjúkrahúsinu vegna þess að það brúaði bil sem oft vill
myndast á milli unglækna og sérfræðinga. Pað væri
líka gott fyrir sérfræðingana sem fengju meiri örvun
við að kenna lengra komnum nemendum.
Þegar blaðamaður innti þau eftir því hvað tæki
nú við voru svörin á þá leið að Hilmar er á leiðinni
til Nýja-Sjálands á næstu vikum þar sem hann ætlar
að leggja stund á framhaldsnám í bráðalækningum á
sjúkrahúsi í borginni Christchurch á Suðurey. Hann
segist fá námið við Landspítalann metið til styttingar
á náminu ytra. Þau Guðni og Sigríður eru að þreifa
fyrir sér með framhaldsnám en bæði stefna þau í sér-
fræðinám í efnaskipta- og innkirtlasjúkdómum, helst
á Norðurlöndum eða Bretlandseyjum, hún næsta vor
en hann að ári liðnu. Þangað til munu þau starfa hér
innanlands.
Deildarlœknar á lyflœkningadeildum Landspílala ásamt forstöðumönnum framhaldsmennt-
unar. Standandi frá vinstri: Guðni A. Guðnason, Eva Sigvaldadóttir, Runólfur Pálsson,
ína K. Ögmundsdóttir, Friðbjörn Sigurðsson, Þórður Harðarson, Steinn Jónsson, Kristján
Erlendsson, Oddur Steinarsson, Berglind Libungan og Ragnheiður Halldórsdóttir. Sitjandi
frá vinstri: Guðrún B. Reynisdóttir, Hilmar Kjartansson, Vilhelmína Haraldsdóttir, Hjalti M.
Björnsson og Lovísa Leifsdóttir.
Þau voru sammála um að það væri ótvíræður
kostur fyrir unglækna að hafa val um það hvort þeir
hefja framhaldsnám hér á landi eða fara strax utan.
Ekki síst væri þetta góður kostur fyrir fjölskyldufólk
því þetta stytti þann tíma sem það þyrfti að dvelja í
útlöndum. Þeir sem fara til Norðurlanda til náms í
undirsérgrein fá þetta nám metið að fullu og þá tekur
nám þeirra ytra ekki nema þrjú eða fjögur ár. Þá nýtt-
ist þessi kostur þeim læknum sem hyggja á framhalds-
nám í öðrum greinum en lyflækningum því í mörgum
sérgreinum væri gerð krafa um að læknar taki hluta af
sínu framhaldsnámi á lyflækningadeild.
Það var Steinn Jónsson framhaldsmenntunarstjóri
lyflækningasviða sem útskrifaði þremenningana og
óskaði þeim velfarnaðar í frekara námi og starfi.
Deildarlœknarnir
nýútskrifuðu, Hilmar
Kjartansson nœstur,
þá Sigríður Björns-
dóttir og Guðni A.
Guðnason fjœrstur.
Ljósm. Þórdís
Ágústsdóttir.
Læknablaðið 2004/90 865