Læknablaðið - 15.12.2004, Síða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SJÁLFSSKAÐAR
Vísvitandi sjálfsskaðar, Sjálfsvígstilraunir
Það gengur hægt að leysa sumar lífsgáturnar og
skilningur okkar á mörgum furðufyrirbrigðum mann-
lífsins er enn á fremur lágu stigi þrátt fyrir allar rann-
sóknir og merkilegar niðurstöður vísindanna. Stund-
um getur maður orðið óþolinmóður þegar svör við
síendurteknum spurningum kynslóðanna láta bíða
eftir sér. Yfirburðamenn á ýmsum sviðum hafa fyrir
löngu komið orðum að lykilatriðum eins og heim-
spekingurinn Spren Kierkegárd um kvíða í bókinni
Begrebet Angest 1844, félagsvísindamaðurinn Émile
Durkheim um sjálfsvíg (Le suicide 1897) og geðlækn-
irinn Erwin Stengel um sjálfsvígstilraunir í bókinni
Suicide & Attempted Suicide 1964. Sá síðastnefndi
kemur einkum við sögu í þessari umfjöllun vegna for-
göngu hans um rannsóknir á sfnu sviði.
Hugtakið vísvitandi sjálfsskaði er vandræðalegt
við fyrstu sýn því að það getur þýtt bókstaflega allt
frá sjálfsvígi til reykinga og ofáts. Allt frá augljósri
fyrirætlun um að stytta sér aldur með einum verkn-
aði og yfir í að ástunda óheilbrigða lifnaðarhætti um
langan tíma. Frá því sem enskumælandi menn nefna
intentional self-destructive act og yfir í deliberate
self-harm. Það hefur samt orðið að samkomulagi að
nota það við vísindarannsóknir og þrengja merking-
una þegar um fjölsetrarannsóknir er að ræða. Allt
frá því að athygli fór að beinast að sjálfsvígstilraun-
um (suicidal attempts) upp úr miðri síðustu öld hafa
vísindamenn komist nær því að verða einhuga um
skilgreiningar á rannsóknarverkefnum á þessu sviði.
Með þeim alfyrstu til að gefa tóninn var Stengel (1) í
bók sinni, en þar segir svo:
A suicidal act (attempt) is any deliberate act of self-damage which the person com-
mitting the act could not be sure to survive. Clinicians as well as lay persons ought
to regard all cases of potentially dangerous self-poisoning or self-infiicted injury as
suicidal acts whatever the victim's explanation, unless there is clear evidence to the
contrary. “Potentially dangerous” means in this context: believed by the “attempter”
possibly to endanger life. For instance, if a person who is ignorant of the effects of
drugs takes double or three times the prescribed dose, this might have to be regarded
as a suicidal attempt because in taking that overdose the person took a risk that may
have proved fatal....
Þessi skilgreining hefur staðist með nokkrum lag-
færingum í 40 ár. Það liggur í augum uppi að álita-
mál verða sífellt á vegi rannsakenda og vísindaleg úr-
vinnsla á allt undir nákvæmri samstillingu milli landa
og svæða, sem tryggð er með samræmdum vinnuregl-
um.
Ut er komin bókin „Suicidal Behaviour in Europe
Höfundurergeölæknirvið „ . , , , . _
Fjórðungssjúkrahúsið á “ Results from the WHO/Euro Multicentre Study
Akureyri. on Suicidal Behaviour“ (2). Ritstjórar eru Armin
Brynjólfur
Ingvarsson
Schmidtke, Unni Bille-Brahe, Diego DeLeo og Ad
Kerkhof, sem öll eru meðal þekktustu fræðimanna
heims á sviði sjálfsvígsfræða. Inngang skrifar Nils
Retterstöl, prófessor emeritus í Noregi og fyrrverandi
forseti IASP (1989-1991). Hann undirstrikar þýð-
ingu Evrópusamstarfsins sem hófst 1989 og hefur
þegar skilað veigamiklum rannsóknaniðurstöðum.
Hann bendir á að skráning sjálfsvíga hófst í löndum
Evrópu fyrir 200 árum og jafnvel fyrr á stöku stað, en
sjálfsvígstilraunir hafi hvergi verið skráðar á landsvísu.
Skráning þeirra miðast því fremur við landsvæði en
lönd.
Evrópusamstarf um rannsóknir á vísvitandi sjálfs-
sköðum hefur dafnað og vaxið jafnt og þétt undan-
farna tvo áratugi. Eins og skýrt var frá í grein í mars-
hefti Læknablaðsins hafa borgir um alla Evrópu
safnað saman upplýsingum um sjálfsvíg og sjálfsvígs-
tilraunir í einn stað, Wúrtsburg í Þýskalandi, þar sem
prófessor Armin Schmidtke og samstarfsfólk hans sér
um úrvinnslu gagna. Sá hluti rannsóknanna sem bein-
ist að sjálfsvígstilraunum heitir The WHO/EURO
Multicentre Study on Attempted Suicide frá því að
þátttakendur urðu sammála um þessa nafngift 1994,
en áður þekktust önnur heiti. Nafnbreytingarnar gefa
fyrst og fremst til kynna þróun skilgreininga og af-
markana við að tryggja sambærilega gagnasöfnun frá
öllum borgunum. Ætlunin er að fylgja þessum fyrri
áfanga gagnavinnslunnar eftir með öðrum áfanga
með aðalbækistöð í Oðinsvéum, Danmörk, þar sem
áhersla verður lögð á rannsóknir á endurteknum
sjálfsvígstilraunum.
Orðalagsbreytingar undanfarinna ára hafa tafið vinn-
una. Heitið parasuicidium var innleitt 1969 (Kreit-
man) og Evrópusamstarfið byggði í fyrstu á skilgrein-
ingu parasuicidiums 1986:
... an act with non-fatal outcome in which an indi-
vidual deliberately initiates a non-habitual behav-
iour that, without interventions from others, will
cause self-harm, or deliberately ingests a substance
in excess of the prescribed or generally recognized
therapeutic dosage, and which is aimed at realizing
changes which the subject desired via the actual or
expected physical consequences.
Þessi skilgreining felur í sér að atvik teljast með þó
að tilgangur verknaðar hafi verið að kalla á hjálp en
ekki deyja og gildir einu þó að gripið sé inn í atburða-
rás og hættu afstýrt áður en skaði skeður. Sjálfsskaði
af óvitaskap telst hins vegar ekki með. (Ofurölvi
einstaklingar, þroskaheftir, alvarlega heilabilaðir og
868 Læknablaðið 2004/90